Morgunblaðið - 27.01.2012, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 27.01.2012, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2012 VIÐTAL Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Eftirlifandi skipverji af Hallgrími SI-77 gerði allt rétt miðað við að- stæður og er þess vegna lífs. Þetta er mat Olves Arnes, flugstjóra á annarri norsku björgunarþyrlunni sem fór á slysstaðinn á miðviku- daginn og bjargaði manninum. „Hann lifði af vegna alls þess sem hann gerði. Hann fór í björg- unargallann snemma, fór alveg rétt í hann og gætti að öllu. Hann var meðvitaður um hvað var að gerast með skipið, fann að það var að sökkva og hann undirbjó sig vel. Hann gerði allt rétt í þessari stöðu,“ sagði Arnes í samtali við Morgunblaðið. Hitastig sjávar var um 2°C og velktist maðurinn um í þrjá og hálfa klukkustund áður en honum var bjargað. Mjög slæmar aðstæður Arnes segir að fólk geti alveg lifað svo lengi í sjó í björg- unargalla sem er í lagi. „Maðurinn náði ekki að komast í björgunarbát því vindurinn feykti honum alltaf í burtu. Þá einbeitti hann sér að því að halda sér á floti og nudda hnén til að halda á sér hita. Hann ákvað að hann ætlaði að lifa og gerði allt til þess. Ástand hans var mjög gott þegar við fundum hann þegar tek- ið er mið af aðstæðum og hvað hann var lengi í sjónum.“ Arnes segir að aðstæður hafi verið mjög slæmar. Þeir voru um einn og hálfan tíma á leiðinni að slysstaðnum frá Florø, en björg- unarþyrlurnar komu frá Florø og Ørlandet. Vindurinn þar var 24 metrar á sekúndu, eða 52 hnútar, og ölduhæð 15 til 20 metrar. „Þeg- ar við mættum á leitarsvæðið var lítið eftir af skipinu, aðeins einn tómur björgunarbátur og nokkrir hlutir úr skipinu í sjónum, að- allega ljós og baujur. Við fórum eins lágt og við gátum og skoð- uðum hvern hlut mjög vel. En við sáum aðeins um 100 metra frá okkur, við urðum að fara alveg of- an í hvern hlut. Eftir um hálftíma sáum við manninn sem bjargaðist, hann var í björgunarfatnaði sem lýsti af og veifaði höndunum.“ Arnes hefur eftir sjómanninum að skipið hafi sokkið mjög hratt, aðeins á nokkrum mínútum. Hann segir að skipið hafi farið niður á versta stað með tilliti til björg- unaraðgerða því langt var á næsta stað til að ná í meira eldsneyti á þyrlurnar. „Þetta var langt frá Noregi, Íslandi, Sjálandseyjum og líka langt frá olíupöllum,“ segir Arnes. Björgunarþyrlurnar þurftu að snúa til lands eftir um 40 mín- útna leit til að fylla á eldsneytis- tanka og sneru ekki til baka á slysstaðinn vegna veðurs. Nætursjónaukinn nauðsyn Þyrlur norska lofthersins eru allar af gerðinni Westland Sea King. Spurður hvernig búnaður hafi komið að gagni við björg- unina segir Arnes að það hafi að- allega verið nætursjónaukinn. „Þegar veðrið er eins slæmt og það var þarna, því það rigndi mjög mikið, koma innrauðu myndavél- arnar ekki að góðu gagni. Best eru hið mannlega auga, nætursjón- aukinn og ljósin á þyrlunni, það gerði okkur mögulegt að finna eitthvað. Í svona aðgerðum þarf að hafa stóra þyrlu sem getur tek- ið mikið af eldsneyti því það þarf að ferðast langt út á sjó í slæmu veðri.“ Arnes segir að þyrlurnar muni ekki fara aftur út á leitarsvæðið. „Þetta var lítið svæði. Við fórum vel yfir það á miðvikudaginn og nú er komið að skipunum að skoða svæðið niður í dýpið. Við sem stóð- um að björgunaraðgerðinni teljum að við höfum gert allt sem við gát- um á slysstaðnum þegar tekið er mið af aðstæðum.“ „Hann ákvað að hann ætlaði að lifa“  Flugstjóri norsku þyrlunnar sem bjargaði skipverjanum af Hallgrími segir að hann hafi gert allt rétt og það hafi orðið honum til lífs  Skipið sökk mjög hratt og aðstæður til leitar voru slæmar Loftherinn Olve Arnes, þriðji frá vinstri, ásamt félögum sínum í norska loft- hernum. Þeir notast við þyrlur af gerðinni Westand Sea King. Ljósmynd/Sondre Dalaker Kapteinn Olve Arnes flaug þyrlunni sem bjargaði íslenska sjómanninum. Hallgrímur SI 77 Neyðarkall berst frá togaranumkl. 13.14 að íslenskum tíma.Þá er hann staddur um 150 sjómílur NVaf Álasundi. Skotland Ísland Færeyjar Noregur Danmörk Sjóslysið við Noreg BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Síðasti íslenski togarinn sem farist hefur hér við land er Krossnes SH-308 sem fórst á Halamiðum í febrúar 1992. Hallgrímur SI-77 var systurskip Krossness. Sjóslysum hefur fækkað mjög á undanförnum áratugum. Síðastliðinn áratug hafa að meðaltali tveir sjómenn farist ár- lega en á áttunda og níunda áratug síðustu aldar var algengast að 15 til 30 sjómenn biðu bana á hverju ári. Ekkert banaslys varð á sjó á síð- asta ári og þegar Hallgrímur SI fórst á milli Íslands og Noregs voru nærri tvö ár liðin frá síðasta bana- slysi. Ekkert dauðaslys varð 2008 en leiða má líkur að því að það hafi verið fyrsta árið frá landnámi sem enginn Íslendingur fórst á sjó. „Guðsgjöf að ekki fór enn verr“ Mörg slys urðu á árinu 2001 þeg- ar sjö sjómenn fórust. Þá sökk stór togbátur, Ófeigur VE, við Suður- land með einum manni en átta björguðust. Tveir fórust þegar Una í Garði fórst. Þrír menn fórust þeg- ar Svanborgu SH rak vélarvana upp í kletta í Svörtuloftum á Snæ- fellsnesi. Einum skipverja var bjargað upp í björgunarþyrlu Varn- arliðsins eftir langa bið á brúarþaki bátsins. Lengra er síðan togari fórst en það var ekki óalgengt á síðustu öld. Skuttogarinn Krossnes SH-308 frá Grundarfirði fórst á Halamiðum 23. febrúar 1992 með þremur mönnum en níu var bjargað í nærstödd skip. Hallgrímur SI var systurskip Krossness. Skipverjum af Krossnesi sem blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við eftir að komið var með þá til Ísafjarðar bar saman um að skipið hefði sokkið á þremur til fjórum mínútum. „Þetta gerðist allt á svip- stundu. Það er guðsgjöf að þetta fór ekki enn verr,“ sagði Hafsteinn Garðarsson skipstjóri. Átta skip- verjum tókst að komast í gúmbjörg- unarbáta en vegna þess hversu hratt skipið sökk náðu aðeins tveir þeirra að komast alveg í flotgalla. Níundi maðurinn lenti í sjónum. Bergþór Gunnlaugsson, annar stýrimaður á Sléttanesinu, bjargaði honum á síðustu stundu með því að fleygja sér í sjóinn til hans með líf- taug og Markúsarnet. Stöðugra vinnuumhverfi „Slysum hefur fækkað stórlega. Það verða alltaf óhöpp og atvik sem þarf að rannsaka en umhverfið er gjörbreytt,“ segir Jón Arilíus Ing- ólfsson, forstöðumaður rannsókn- arnefndar sjóslysa sem rannsakar fjölda slysa og óhappa á hverju ári. Eins og sést á meðfylgjandi súlu- riti hefur banaslysum á sjó fækkað mjög á undanförnum fjórum ára- tugum. Á árinu 1973 létust 65 sjó- menn og á áttunda og fram á miðj- an níunda áratuginn fórust oftast 15 til 30 sjómenn á ári, stundum fleiri. Í lok níunda áratugarins og fram eftir þeim tíunda urðu að meðaltali um 10 banaslys á ári en síðan tvö að meðaltali undanfarin tíu ár. „Það er starf Slysavarnaskóla sjómanna og endurmenntunin og al- menn vakning hjá mönnum. Mitt persónulega mat er að vinnuum- hverfi sjómanna sé orðið stöðugra. Menn eru vanari, færri breytingar verða og sami mannskapurinn er lengur um borð. Það þýðir að þeir geta unnið betur saman og þekkja hvað ber að varast,“ segir Jón þeg- ar leitað er skýringa á fækkun banaslysa á sjó. Hann telur einnig að starf rann- sóknarnefndarinnar hafi ákveðið forvarnagildi. Nefnir hann sem dæmi að eftir það hörmulega slys þegar Svanborg fórst við Snæfells- nes hafi verið kannað ofan í kjölinn hversu algengt væri að skip yrðu vélarvana og þyrftu aðstoð til að komast að landi og reynt að grafast fyrir um orsakir þess. Segir hann mikilvægt að draga lærdóm af slík- um atvikum. Banaslysum á sjó fækkað stórlega  Systurskip Hall- gríms sökk á 3-4 mínútum Banaslys á íslenskum sjómönnum 19 71 19 72 19 73 19 74 19 75 19 76 19 77 19 78 19 79 19 80 19 81 19 82 19 83 19 84 19 85 19 86 19 87 19 88 19 89 19 90 19 91 19 92 19 93 19 94 19 95 19 96 19 97 19 98 19 99 20 00 20 01 20 02 20 03 20 04 20 05 20 06 20 07 20 08 20 09 20 10 20 11 70 60 50 40 30 20 10 0 B an as ly s 31 56 65 33 15 30 14 15 40 39 27 11 26 32 14 21 9 11 7 10 11 12 9 4 2 9 5 3 1 3 7 2 2 2 3 3 5 0 1 1 0 Ný lög um rannsóknir sjóslysa (nr. 68/2000) og reglugerð (nr. 133/2001) Nýtt ákvæði um rannsóknir sjóslysa í siglingalögum 1986Slysavarnaskóli sjómanna stofnaður 1985 Heimild: Rannsóknarnefnd sjóslysa Ljósmynd/Íslensk skip Systurskip Krossnes SH-308 sökk á Halamiðum í febrúar 1992.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.