Morgunblaðið - 27.01.2012, Page 19

Morgunblaðið - 27.01.2012, Page 19
FRÉTTIR 19Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2012 Embættismenn í Brasilíu sögðu síðdegis í gær að fimm lík hefðu fundist í rústum skrifstofuhúsa sem hrundu í miðborg Rio de Janeiro í fyrrinótt, hér bera björgunarliðar eitt fórnarlambið á brott. Þrjú háhýsi hrundu í mið- borginni og leitaði lögreglan enn að 16 manns í rústunum. Eitt húsið var 20 hæða og þegar það hrundi tók það með sér tvö minni hús. Talið er að burð- arvirki hafi gefið sig en vitni heyrðu sprengingu áður en húsið hrundi. Háhýsi hrundu í Rio Reuters Liðsmenn verkalýðssambandsins CGTP í Portúgal hrópa slagorð gegn stefnu stjórnvalda í atvinnu- málum á mótmælafundi í Lissabon í gær. Efnahagur Portúgals er afar ótryggur, skuldatryggingarálag í hæstu hæðum. Spáð er að verði Grikkland gjaldþrota verði stutt í að Portúgal fari sömu leið. Reuters Efnahagur á heljarþröm Portúgalar mótmæla atvinnustefnu stjórnvalda Kristján Jónsson kjon@mbl.is Bandaríska varnarmálaráðuneytið hyggst bæta upp samdrátt í fjár- framlögum með því að efla hnatt- rænt net sitt af stöðvum fyrir ómannaðar flugvélar og sérsveit- armenn, að sögn vefsíðu Fox- sjónvarpsstöðvarinnar. Á þannig að gera Bandaríkjamönnum kleift að beita hervaldi um allan heim eftir þörfum, þrátt fyrir niðurskurðinn. Vélunum er fjarstýrt af hermönn- um í bækistöðvum í Bandaríkjunum. En L.A. Times segir að verið sé að þróa nýja og mun fullkomnari gerð vélar með hugbúnaði sem geri henni kleift að lenda á flugmóðurskipi. Í reynd geti slíkar vélar í framtíðinni sjálfar ákveðið hvaða aðgerð verði notuð. Þær verði að talsverðu leyti sjálfstæðar þótt sjálfur hugbúnaður- inn sé að sjálfsögðu mannanna verk. En menn spyrji hver beri þá ábyrgð- ina ef eitthvað fari úrskeiðis, sak- laust fólk falli. Stjórnandi vél- arinnar? Stjórnmálamaðurinn sem veitti leyfi fyrir notkun hennar? Varnarmálaráðuneytið sem keypti hana? Framleiðandinn? Fjölga fjar- stýrðum vélum  Bandaríkin efla einnig sérsveitirnar Vígtól Ómönnuð, bandarísk Preda- tor-vél skýtur flugskeyti. Mistök eru gerð » Ómönnuðu vélarnar, sem oft eru vopnaðar, eru búnar full- komnum myndavélum og gervihnattasambandi. » Stjórnendurnir í Bandaríkj- unum geta því metið aðstæður áður en þeir ákveða að láta vél- ina gera árás. En stundum verða þó slæm mistök. Kristján Jónsson kjon@mbl.is Yfirvöld í hluta Sichuan-héraðs í Kína virtust í gær hafa stöðvað öll fjarskipti borgaranna við umheim- inn en undanfarna daga hefur komið þar til blóðugra bardaga milli lög- reglu og fólks úr þjóðarbroti Tíbeta. Ókyrrðin er víðar, alls hafa á innan við ári 16 Tíbetar í Kína kveikt í sér í mótmælaskyni. Stuðningshópar Tíbeta segja að mótmælin hafi upprunalega verið friðsamleg. En þrír hafi fallið á mánudag og þriðjudag þegar lög- reglumenn beittu skotvopnum. Stjórnvöld segja að tveir hafi fallið. Átökin í vikunni urðu í borgunum Luhuo og Seda, að sögn AFP en þær eru báðar í Ganzi-sýslu í Sichuan, fjöllóttu og fámennu svæði við landa- mærin að Tíbet. Tíbetar á svæðinu hafa lengi kvartað undan kúgun. Stuðningshópur Tíbeta með aðset- ur í Bandaríkjunum (ICT) segir að á þriðjudag hafi hundruð Tíbeta safn- ast saman með friðsamlegum hætti á aðaltorgi Seda. Lögreglan hafi beitt táragasi og skotið inn í hópinn. „Sumir gátu ekki hlaupið burt af því að þeir voru svo illa særðir,“ er haft eftir sjónarvotti. Um er að ræða hörðustu átök Tíbeta og kínverskra öryggissveita síðan 2008 en þá urðu mannskæð mótmæli gegn yfirráðum Kínverja í Tíbet. Tíbetar mót- mæla kúgun  Mannfall hefur orðið í Sichuan-héraði Reuters Tortryggni Lögreglan yfirheyrir bílstjóra í Danba í Sichuan í gær. Einangrun » Þegar fréttamenn reyndu að hringja í fólk í Luhuo í gær heyrðist aðeins tónn sem benti til að samband við svæðið hefði verið rofið. » Fréttamenn AFP reyndu að komast á staðinn en voru stöðv- aðir um 130 km frá borginni. Nýjar kannanir í Rússlandi gefa til kynna að stuðn- ingur við Vladím- ír Pútín forsætis- ráðherra hafi aukist á ný, hann fái 62% atkvæða í forsetakjörinu í mars. Næstur honum, að fylgi verði Gennadí Sjúganov, leiðtogi Kommúnista- flokksins, með 15%. Yfirvöld í Moskvu hafa nú gefið stjórnarandstæðingum leyfi til að halda fjöldafund í miðborginni 4. febrúar. Merkir þetta að fólk getur tekið þátt í fundinum án þess að harðhentir lögreglumenn handtaki það strax fyrir óspektir. Verður þetta í þriðja sinn sem slíkur fundur er leyfður á undanförnum tveim mánuðum og fögnuðu andstæðingar Pútíns ákaft í gær. kjon@mbl.is Sjúganov með næst- mest fylgi Táknið Gennadí Sjúganov. Jean-Claude Mas, eigandi franska fyrirtæk- isins PIP, sem framleiddi svikn- ar brjóstafyll- ingar, hefur verið handtekinn í Six- Fours-les-Plages í Frakklandi. PIP notaði svo- nefnt iðn- aðarsílikon í brjóstafyllingar en það er ekki hannað til slíkra nota. Mas hefur viðurkennt að hann hafi vísvitandi notað bannað efni til að geta boðið lægra verð en keppi- nautarnir. Yfir 400 þúsund konur um allan heim eru með efnið í brjóst- um sínum en mörg dæmi eru um að fyllingin hafi rofnað og sílikonið lek- ið út í líkamsvefi. Frönsk stjórnvöld segja að ekki sé hætta á að efnið valdi krabbameini en mæla þó með því að það sé fjarlægt. kjon@mbl.is Eigandi PIP handtekinn Gripinn Mas í bíl lögreglu í gær. Uppreisnarmenn í Líbíu hafa pynt- að marga fanga og nokkrir hafa lát- ist af völdum þessa, segir í yfirlýs- ingu mannréttindasamtakanna Amnesty. Samtökin hafi hitt sjúklinga í Trí- pólí, Misrata og Gheryan sem hafi verið með opin sár á höfði, útlimum og á baki, að sögn BBC. Samtökin Læknar án landamæra hafa hætt störfum í Misrata eftir að hafa sinnt yfir 100 sjúklingum með áverka eftir pyntingar. Samtökin segjast hafa verið misnotuð: þeim hafi verið gert að hjúkra sömu föngunum eftir hverja pyntingalotu. Talsmaður Am- nesty segir að liðsmenn stjórnvalda standi að pyntingunum en einnig „fjöldi vopnaðra hópa sem starfa ut- an við ramma laganna“. kjon@mbl.is Stjórn Líbíu sökuð um að standa fyrir pyntingum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.