Morgunblaðið - 27.01.2012, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 27.01.2012, Qupperneq 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2012 ✝ Aldís ÞorbjörgGuðbjörns- dóttir fæddist í Reykjavík 8. októ- ber 1939. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 18. janúar 2012. Foreldrar henn- ar voru Hansína Metta Kristleifs- dóttir, f. 25.5. 1918, d. 1.5. 1997, verkakona og Guðbjörn Sig- fús Halldórsson, f. 26.12. 1916, d. 25.2. 1960, leigubíl- stjóri. Eftirlifandi systkini Al- dísar eru 1) Kristleifur, kvæntur Margréti Stefaníu Ólafsdóttur. 2) Guðrún Soffía, gift Gylfa Sigurðssyni. 3) Halldór, kvæntur Guðfinnu Ólafsdóttur. 4) Sólbrún gift Víkingi Halldórssyni. 5) Hrefna, gift Agli Þráinssyni. 6) Gíslný, gift Jóhanni Ósk- arssyni. Aldís ólst upp í Reykjavík Ásgerður Alda Friðbjarn- ardóttir, f. 17.2. 1975, þeirra sonur er Friðbjörn Grétar, f. 30.4. 2010. Fyrir á Haraldur 1) Auðun Bjarka, f. 25.4. 1997. 2) Björn Andra, f. 25.4. 1997. 3) Ingu Bryndísi, f. 27.1. 1993. Fyrir var Aldís gift Guðmundi Elvari Eiríkssyni, f. 2.10. 1930. Þau slitu samvistir. Dóttir þeirra var Hrafnhildur Auður Guðmundsdóttir, f. 2.3. 1959, d. 28.11. 2001. Hennar börn eru: 1) María Katrín Fernandez, f. 18.2. 1982, gift Gesti Má Þráinssyni, f. 3.4. 1975 og og þeirra barn er Há- kon Garri, f. 16.8. 2007. Fyrir á María Katrín Gunnar Gauta, f. 15.8. 2002. 2) Friðrik Hrafn Pálsson, f. 16.2. 1989. Aldís vann hin ýmsu störf og má þar nefna fiskvinnslu, saumaskap, í kaffihöllinni í Reykjavík og kokkur á sjó með Birni eiginmanni sínum. Aldís bjó síðustu 28 árin í Kópavogi. Eftir að Björn lést bjó Aldís á Borgarhaldsbraut 74 þar sem heimili þeirra var og svo í Auðbrekku 2. Útför Aldísar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 27. jan- úar 2012, og hefst athöfnin kl. 15. en var líka í sveit á Efri Hrísum og Fögruhlíð í Fróð- arhreppi. Í kringum 1964 hitti Aldís Björn Haraldsson, f. 27.5. 1939, d. 21.9. 1988, stýrimann frá Skagaströnd. Foreldrar hans voru Sigurlaug Björnsdóttir, f.13.6. 1911, d. 7.9. 1982, verkakona og Haraldur W. Sigurjónsson, f. 23.1. 1914, d. 13.5. 1986, verkamaður. Bræður Björns eru Grétar, f. 4.7. 1945, kvæntur Díönu Kristjánsdóttur, 21.4. 1958 og Sigurjón, f. 20.4. 1949. Aldís og Björn gengu í hjú- skap 31. desember 1968. Þau bjuggu lengst af í Ólafsvík en einng í Rifi, Kópavogi og Skagaströnd. Sonur þeirra er Haraldur Björnsson, f. 3.10. 1967. Sambýliskona hans er Tengdamóðir mín Aldís Guð- björnsdóttir verður borin til grafar í dag eftir erfið veikindi síðustu ár. Hún var búin að berj- ast lengi og greinilegt að lífsvilj- inn var mikill. Við fjölskyldan stöndum í eilífri þakkarskuld við Margréti Pálsdóttur, vinkonu Al- dísar, sem stóð svo þétt við bakið á henni og var svo góð við hana og okkur. Einnig Sólu systur hennar sem er búin að vera okk- ar stoð og stytta á erfiðum tím- um. Aldís átti oft á tíðum við mikla erfiðleika að stríða og missti eig- inmann sinn árið 1988 og svo dóttur sína 2001 sem hafði átt við mikil veikindi að stríða. En hún missti ekki lífsviljann, svo mikill var krafturinn í henni. Hún reyndist Halla syni sínum mjög góð sérstaklega síðustu ár- in. Hann var svo ánægður er hann kom frá henni núna viku fyrir jól og hún var svo hress og vissi greinilega að hann væri að koma seint að kvöldi og beið hans með kaffi og nýbakaðar vöfflur. Ég er þakklát fyrir þær stundir sem við áttum saman. Við vorum alltaf velkomin í kaffi. Aldís var hjartahlý og beinskeytt kona og lá ekki á sínum skoð- unum, sama hverjar þær voru. Aldís var alltaf góð við mig, er ég þakklát fyrir að hafa kynnst henni. Við vorum svo lánsöm að geta gert henni glaðan dag þeg- ar hún varð sjötug fyrir rúmum tveimur árum og fjölskyldan kom saman og fagnaði með henni. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Vald. Briem.) Elsku Aldís, ég minnist þín með kærleik og vinsemd. Hvíl í friði. Ásgerður Alda. Kæra systir, nú skilur leiðir okkar og þú heldur af stað í betri heim þar sem þú munt hitta Bangsa heitinn og hana Hrafn- hildi þína. Þú hefur ávallt verið stór hluti af mínu lífi enda stóra systir mín. Þegar ég hugsa til þín man ég að við höfum lengi verið samferða í þessu lífi og það sem stendur upp úr er þegar ég byrjaði að passa hana Hrafnhildi fyrir þig 10 ára gömul. Þú hefur ávallt farið þínar eigin leiðir í líf- inu en það sem ég hef dáðst hvað mest að er hversu kraftmikil og ákveðin þú varst. Þú lést veik- indin ekkert stoppa þig í að halda áfram í lífinu. Þannig ætla ég að muna eftir þér, mín kæra systir, kraftmikil og ákveðin. En nú er kominn tími til þess að kveðja og ég veit að Hrafnhildur og Bangsi taka vel á móti þér á nýja staðnum. Þegar eitthvað virðist þjaka mig þarf ég bara að sitja og hugsa um þig, þá er eins og losni úr læðingi lausnir öllu við. Þó ég fái ekki að snerta þig veit ég samt að þú ert hér, og ég veit að þú munt elska mig geyma mig og gæta hjá þér. Og þó ég fengi ekki að þekkja þig þú virðist alltaf geta huggað mig, það er eins og þú sért hér hjá mér og leiðir mig um veg. (Ingibjörg Gunnarsdóttir.) Þín systir, Sólbrún Guðbjörnsdóttir. Aldís, elsta systir mín sem við kveðjum í dag, var snemma afar sjálfstæð og glæsileg kona. Fyrstu árin bjuggum við fjöl- skyldan á Njálsgötu 28 og þegar Aldís var 7 ára fluttum við á Bergþórugötu 41 og þar bjó hún þangað til að hún leigði sér her- bergi 15 ára gömul, enda sjálf- stæð eins og áður sagði Íbúðin okkar á Bergþórugötunni var af- ar lítil eða aðeins 40 fermetrar og margir í heimili. Það þótti því sérdeilis flott að Aldís var komin með sérherbergi. Mamma okkar var dugleg að sauma föt á okkur systkinin og mér er minnisstætt þegar hún saumaði blúndukjól á Aldísi þegar Aldís var 16 ára hvað hún var falleg og fín. Hún var glaðlynd og hafði gaman af því að dansa og skemmta sér. Hún átti það til að vera orðhvöt og svaraði þá vel fyrir sig. Það var oft fjör á Bergþórugötunni eins og nærri má geta. Sem barn var Aldís í sveit á sumrin, bæði á Snæfellsnesi og fyrir austan fjall. Hún fór snemma að vinna fyrir sér og vann hin ýmsu störf til sjós og lands, t.d. við framreiðslu á veit- ingahúsi, matsveinn til sjós og við hin ýmsu fiskvinnslustörf og þótti víkingur til allra verka. Hún bjó víða á landinu, Skaga- strönd, Rifi, Ólafsvík og fleiri stöðum. Síðast í Kópavogi. Henni mættu ýmsar hindranir á lífsleiðinni, hún missti Björn manninn sinn árið 1988 og dóttur sína Hrafnhildi Auði árið 2001. Nokkur undanfarin ár hefur hún verið sjúklingur enda fór hún illa með sjálfa sig í gegnum tíðina en var samt ótrúlega sterk. Margrét nágrannakona hennar hjálpaði henni óhemju- mikið við allt mögulegt og eru henni færðar hér miklar þakkir fyrir fórnfýsina. Hinn 18. janúar sl. varð Aldís að lúta í lægra haldi fyrir æðri máttarvöldum. Ég kveð þig núna, kæra syst- ir, og trúi því að Hrafnhildur og Björn taki vel á móti þér. Halli minn, við Gylfi vottum þér Öldu og fjölskyldu innileg- ustu samúð. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti, sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Guðrún systir. Aldís Þorbjörg Guðbjörnsdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku amma hvíl í friði. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson.) Friðbjörn Grétar. ✝ Ámundi fædd-ist í Hjarð- arholti í Reykjavík hinn 8. ágúst 1943. Hann lést á líkn- ardeild Landspít- alans hinn 17. jan- úar 2012. Foreldrar hans voru Jakobína Ámundadóttir, f. 2. janúar 1909, d. 19. maí 1994. og Ro- bert Sullins frá Texas. Hann var giftur Önnu Cörlu Örlygsdóttur, f. 10. september 1945. En þau skildu árið 1991. Þau áttu 3 börn saman, Þórður Ámundason, f. 8. ágúst 1966. Börn Þórðar eru Jakob Ævar Þórðarson, Ágúst Már Þórðarson, Sigurrós Vest- mann Þórðardóttir. Helga Bryndís Ámundadóttir, f. 18. desember 1967. Börn Helgu eru María Rut Guðna- dóttir, Rebekka Ann Cook og Ro- bert Curtis. Sig- urbjörg Ámunda- dóttir, f. 19. mars 1971. Gift Guðna Skúlasyni, f. 13. janúar 1965. Börn þeirra eru Ír- is Dögg Guðnadóttir, f. 15. októ- ber 1987. Sunna Rut Guðnadótt- ir, f. 4. desember 1995. Jarðarför Ámunda fer fram frá Kópavogskirkju í dag, föstu- daginn 27. janúar 2012, klukkan 13. Ég bið Guð að gæta mín, góða anda að hugga mig. Sama ósk er eins til þín: Almættið það sjái um þig. (Leifur Eiríksson) Elskulegur faðir minn. Þú skildir við og yfirgafst jarðríkið 17. janúar 2012. Veikindi þín urðu til þess að þú hvarfst á braut. Margar stundirnar áttum við er ég var ungur strákur og síðan ungur maður. Margt hefur þú kennt mér og ég hef lært af þér. Minnist ég fyrstu veiðiferð- arinnar sem var farin að Stóra- Arnarvatni þar sem ég lærði að renna fyrir fisk. Það var ómet- anleg stund hjá mér, aðeins sjö ára gömlum, sérstaklega er ég fékk minn fyrsta fisk ásamt svo mörgu öðru sem ég hef lært og numið hjá þér. Meðal annars ýmsan lærdóm í bílaviðgerðum og slíkt sem þú varst iðinn við að kenna mér, af því að ég hafði alltaf gaman af að sjá hvað um var að vera er bíll bilaði. Í dag ertu búinn að gera mig að þeim manni sem ég er og þökk sé þér fyrir. Ég mun alltaf sakna þín og verða hugsað til þín. Það er svo margs að minnast, en það kemst víst ekki fyrir í þessari litlu grein, en ég veit að þú berð það með þér í huga þér hvað var brallað á þessum tíma og hvað ég hef gaman af því að njóta þess sem þú kenndir mér að gera, sem nýtist mér bæði í leik og starfi. Mun ég aldrei gleyma neinu í okkar góðu samskiptum. Núna hafa amma Bína, Doddi og langamma Fanney og þitt fólk tekið á móti þér með bros á vör og hlýju í huga. Hvíldu í friði, kæri faðir minn, og ég bið að heilsa. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Þinn sonur, Þórður Ámundason. Mig langar með fáum orðum að votta virðingu einstökum vini. „Ámundi minn“ var engum líkur; átti sinn eigin skilning á lífinu og tilverunni og var svo sannarlega vinur vina sinna. Hann var greið- vikinn og hjálpsamur, enginn átti jafn mikið af verkfærum og þeir sem þekktu hann muna eflaust eftir lazergeislanum góða. Margs er að minnast en allar samveru- stundirnar á Þingvöllum standa þar upp úr. Þar var smíðað og gert við, farið að veiða, spjallað um þennan heim og annan geim – og lífsins notið í góðra vina hópi. Ótal margar eru samræð- urnar sem áttu sér stað og svo sannarlega skildi ég ekki alltaf hvað þessi góði vinur minn var að segja og meina. En það gerði hann líka svo ótrúlega áhuga- verðan og skemmtilegan. En það kemur kannski að því hjá mér – enda var hans eigin heimspeki þar á ferð … Hann var andlega þenkjandi, mannvinur mikill og viðkvæm og falleg sál. Ég er þakklát fyrir vinsemd- ina, samveruna og hjálpina, fyrir allt sem hann gerði fyrir mig og dóttur mína og að hafa fengið að kynnast honum og ganga með honum part úr lífsins göngu. Ég hef kveikt á steinalampanum sem Ámundi færði mér að „ekki gjöf“ og finn fyrir birtu og hlýju. Við höfðum kveikt á samskonar lampa á líknardeild Landspítal- ans þegar við kvöddumst að sinni og hlustuðum á fallegu tónlistina með Páli Óskari og Moniku. Ég er sannfærð um að Ámundi er kominn heill heilsu í ljósin heima. Farðu í friði og gleði, góði vinur, þín verður sárt saknað og við sjáumst þegar við sjáumst. Ragnheiður Linda Skúladóttir. Elsku Ámi okkar, nú ert þú kominn á betri stað og við vitum að pabbi tekur vel á móti þér. Við höfum þekkt þig í nokkur ár en samt finnst okkur systrum við hafa þekkt þig alla ævi. Þú varst alltaf svo góður við okkur fjöl- skylduna og reyndist okkur vel, börnin elskuðu Áma. Það hefur enginn átt neitt herbergi uppi í Króktúni nema þú, ekki einu sinni við systur og hefur þetta herbergi og mun ávallt vera kall- að Áma herbergi. Þú naust þín vel í sveitinni og áttum við marg- ar góðar stundir saman í Krókt- úni. Við erum þakklátar fyrir að hafa kynnst þér og fyrir þær stundir sem við höfum fengið með þér og voru þær nú ófáar. Við sendum fjölskyldu þinni innilegar samúðarkveðjur. Rakel, Berglind og Helga. Ámundi Ævar ✝ Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi, bróðir og mágur, ERLINGUR AÐALSTEINSSON, Þórunnarstræti 93, varð bráðkvaddur mánudaginn 23. janúar. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánu- daginn 30. janúar kl. 13.30. Lára María Ellingsen, Óttar Gautur Erlingsson, Margrét Helgadóttir, Rakel María og Elisabeth Eiríka Óttarsdætur, Ólöf Hörn Erlingsdóttir, Sigurður Hólm Sæmundsson, Tumi Snær, Katla Snædís og Auður Gná Sigurðarbörn, Margrét Aðalsteinsdóttir, Gylfi Aðalsteinsson, Nanna K. Christiansen. Þökkum innilega fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ást- kærrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÓLAFAR P. HRAUNFJÖRÐ bókavarðar, sem andaðist þriðjudaginn 6. desember. Sérstakar þakkir til starfsfólks 14 E-G á Landspítalanum við Hringbraut fyrir hlýhug og góða umönnun. Karl Árnason, Petrina Rós Karlsdóttir, Jóhannes Hraunfjörð Karlsson, Ólöf Pétursdóttir, Pétur Karlsson, Valeryja Karlsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, og systur, RANNVEIGAR MARÍU GARÐARS. Maríanna Alexandersdóttir, Garðar Thor Middleton, Guðrún Stefánsdóttir, Sigríður E. Bjarnadóttir, Bragi Sigurðsson, Anna Garðars, Marinó Þorsteinsson. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SIGURGÍSLA SIGURÐSSONAR húsgagna- og innanhússarkitekts, Gullsmára 9, Kópavogi. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Heimahjúkrunar Kópavogs fyrir góða umhyggju. Guðmundur Vikar Einarsson, Guðrún Garðars, Hjördís Sigurgísladóttir, Dennis Davíð Jóhannesson, Hilmar Sigurgíslason, Ásgerður Atladóttir, Sjöfn Sigurgísladóttir, Stefán Jökull Sveinsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.