Morgunblaðið - 27.01.2012, Síða 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2012
✝ Steinunn BjörkGuðmunds-
dóttir fæddist í
Reykjavík 17. júní
1944, (fyrsta lýð-
veldisbarnið). Hún
lést í Luxor í
Egyptalandi 11.
janúar síðastliðinn.
Foreldrar henn-
ar voru Guð-
mundur Sigurðson,
f. 27.2. 1912, d.
30.9. 1972 og Fjóla Haralds-
dóttir, f. 22.3 1913, d. 2.6. 2004.
Bræður Steinunnar eru: Guð-
mundur B. Guðmundsson, f. 6.8.
1935, og Óttar Guðmundsson, f.
börn þeirra: Ari, f. 23.7. 2002,
og Mía, f. 15.3. 2004. Högni er
búsettur í Þýskalandi ásamt fjöl-
skyldu. 2) Ragna Fróðadóttir, f.
26.12. 1970, gift Þorkeli Sigurði
Harðarsyni, f. 23.7. 1969. Dætur
þeirra eru Högna Sól, f. 29.6.
2000, og Harpa Kristín, f. 14.11.
2002. Ragna er búsett í New
York ásamt fjölskyldu. 3) Halla
Fróðadóttir, f. 9.2. 1973, gift Há-
koni Péturssyni, f. 28.4. 1973.
Synir þeirra eru Máni, f. 20.8.
2002, og Bjartur, f. 25.10. 2004.
Þau búa í Dalsgarði í Mosfelss-
dal. 4) Birta Fróðadóttir, f. 10.5.
1980, búsett í Kaupmannahöfn.
Steinunn starfaði sem ritari alla
sína starfsævi. Lengst af í utan-
ríkisráðuneytinu og hjá Arn-
mundi Backman hrl.
Steinunn verður jarðsungin
frá Fríkirkjunni í Reykjavík í
dag, 27. janúar 2012, og hefst at-
höfnin klukkan 15.
29.4. 1949. Hinn 28.
febrúar 1970 giftist
Steinunn Fróða Jó-
hannssyni, f. 26.10.
1945. Foreldrar
hans voru Jóhann
Kr. Jónsson, f. 16.4.
1912, d. 30.1. 2000,
og Birta Fróðadótt-
ir, f. 17.10. 1919, d.
9.8. 1975. Börn
Steinunnar og
Fróða eru: 1) Högni
Fróðason, f. 27.8. 1969, fyrri
sambýliskona Petra Paarman,
sonur þeirra Mímir Högnason, f.
24.11. 1998. Eiginkona Högna
Marion Schorn, f. 16.3. 1973,
Það verður erfitt að kveðja
mömmu í dag. Ég á eftir að sakna
hennar óskaplega mikið.
Ég sé mömmu fyrir mér í góð-
um stól inní stofu að prjóna eða í
eldhúsinu að elda eitthvað gott og
alltaf með jazzinn í botni. Það var
oft mikil sveifla í kringum hana og
hún átti auðvelt með að hrífa fólk
með sér í þessari sveiflu.
Núna þegar ég hugsa til baka
og minnist mömmu er ég fyrst og
fremst þakklát. Þakklát fyrir það
sem hún hefur gefið mér og okkur
öllum. Hún veitti okkur systkinun-
um mikinn kærleik og hlýju, kom
fram við okkur sem jafningja og
studdi okkur í því sem við tókum
okkur fyrir hendur. Ég er þakklát
fyrir að strákarnir mínir fengu að
kynnast henni.
Hún lifði lífinu lifandi og til fulls.
Hún fór ekki alltaf vel með sig og
var orðin heilsulítil síðustu árin.
Hún átti erfitt með að með sætta
sig við það. Ég vona að hún sé nú
komin á stað þar sem hún svífur
um í sinni laufléttu jazzsveiflu.
Halla.
Þegar ég fór að venja komur
mínar upp í Mosfellsdal fyrir
margt löngu vissi ég ekki við
hverju ég átti að búast. Ég var
tæplega tvítugur, nýbyrjaður með
elstu heimasætunni í Dalsgarði.
Ég hafði heyrt sögur af fjörinu í
Dalnum og hafði allan vara á mér.
Þar hitti ég fyrir kátt og víðsýnt
fólk sem tók mér vel. Það að elsta
dóttir þeirra Fróða og Steinunnar
vildi eitthvað með mig hafa var
nægileg trygging fyrir gæðum
mínum. Mér var fljótlega trúað
fyrir að Steinunn héti reyndar
Steinunn Björk Lýðveldína, því
hún væri fyrsti frjálsborni þegn
lýðveldisins – fædd korteri eftir
lýðveldisstofnunina 1944. Ég heils-
aði samviskusamlega með „Sæl
Lýðveldína“ næstu árin – en upp-
götvaði þá að gleymst hafði að leið-
rétta brandarann í mín eyru. Þá
var eiginlega of seint að leiðrétta
þetta.
Ég tengdi sterkt við Steinu í
eldhúsinu – bæði í veisluhaldi af
stærri gerð og klassískum eldhús-
partíum síðla nætur. Við áttum
margar góðar stundir í eldhúsinu,
þar sem ég tileinkaði mér ýmislegt
frá henni sem enn fleytir mér langt
í matargerð. Ég sá að þarna var
heimskona þegar ég sá matseðil-
inn í matarboðunum í Dalsgarði.
Manneskja sem tileinkar sér heim-
seldhúsið eins og Steina gerði er
frjálslynd og með opinn huga. Þau
hjónin voru góð heim að sækja –
öllum ber saman um það. Oft var
sagt að þau mættu ekki sjá útlend-
ing, þá hæfist fiskisúpupartí með
reiðtúr í lopapeysu frá Steinu.
Herbie Hancock kom í Dalsgarð
og fékk allt þetta – súpu, partí,
reiðtúr og lopapeysu. Að skilnaði
tók hann í hendur viðstaddra.
Enginn þvoði sér um hendur í viku
eftir það. Djass og blús dunaði í
botni í Dalsgarði og var djassinn
helsta ástríða Steinunnar á eftir
fjölskyldunni og eiginmanninum
sem hún var ávallt afskaplega
skotin í.
Steina og Fróði studdu börn sín
í hverju því sem þau ákváðu að
gera. Mættu fleiri taka sér þau til
fyrirmyndar. Það læra börnin sem
fyrir þeim er haft og sést það á
börnunum að hjónin voru heims-
hornaflakkarar. Steina vann í
Bandaríkjunum og Sovétríkjunum
og flakkaði síðar sífellt um heim-
inn, sér til ánægju og yndisauka.
Börn þeirra eru illa haldin af hinu
ólgandi sígaunablóði og eru sífellt
á faraldsfæti. Steina hélt því áfram
fram á síðasta dag. Hún lést í
Egyptalandi þar sem þau Fróði
höfðu vetursetu. Áður en hún lést
hafði hún eignast góða vini þar.
Fróði og Steina gerðu þetta alls
staðar – ættleiddu leigubílstjóra
og gerðust guðmóðir og guðfaðir
fátæklinga allt frá Kúbu til
Egyptalands. Það var ekki hangið í
öruggri fjarlægð á meðal túrist-
anna á hótelbörum – heldur farið
alla leið, eins og í öllu sem Stein-
unn gerði. Það er sterkasta minn-
ing mín um hana – stór kona í hví-
vetna. Stór í hugsun. Stórar
veislur. Stórar fagrar tilfinningar
og mikið gefið. Þegar ósætti kom
upp var það stórt – og sættirnar
líka.
Ég kveð þig með söknuði og veit
að veislan heldur áfram hinum
megin. Þú situr á milli vina okkar,
Ben Webster og Coleman Hawk-
ins, teljandi inn í gamla slagara.
Ég hlakka til að vera boðið til
þeirrar veislu ef hún er í líkingu við
þær fyrri.
Þorkell S. Harðarson.
Hún var glæsileg, hávaxin, með
skolleitt sítt hár, stór sólgleraugu
og appelsínugulan varalit, í myntu-
grænni kaðlapeysu, stuttu ullar-
pilsi, og háum leðurstígvélum,
svona leit Steina út þegar ég sá
hana í fyrst. Hún var allt öðruvísi
en allar konur sem ég hafði séð,
það var eitthvað framandi og
spennandi við hana. Undir hrjúfu
yfirborði var viðkvæm kona.
Steina átti eftir að verða mágkona
mín, þegar hún giftist Fróða.
Eftir að frumburðurinn Högni
fæddist var ég mikið á heimili
þeirra að passa, fyrst á Gljúfra-
steini og síðan í Dalsgarði.
Heimili þeirra var mjög per-
sónulegt, þar var mikið af fallegum
listaverkum frá Rússlandi, hand-
málaðar skálar, Babúska, vefnað-
ur, íkonar, og myndir, sem Steina
hafði flutt með sér frá Moskvu, þar
sem hún hafði unnið í utanríkis-
þjónustu, og ofnu mexíkósku
skikkjurnar á stólunum, sem þau
Fróði klæddust einu sinni í Kefla-
víkurgöngu. Fróði hafði smíðað
sófa, sófaborð, og hjónarúmið, sem
Steina svo heklaði fallegt grænt
teppi á. Smám saman kynntist ég
Steinu, þar var engin venjuleg
kona á ferð, hún átti eftir að hafa
mikil áhrif á mig. Hún talaði alltaf
við mig sem jafningja. Enda hafði
hún einstakt lag á að tala við börn
og unglinga. Í eldhúsinu hjá Steinu
var ekki bara matreiðslubók
Helgu Sigurðar, þar voru mat-
reiðslubækur frá Rússlandi, Ítalíu,
Ameríku, Indlandi, Kína o.s.frv.
hún var svo langt á undan sinni
samtíð í allri matargerð, hún bjó til
pitsu löngu áður en þær þekktust á
Íslandi, og rússneskan blíni með
kavíar og sýrðum rjóma. Hún
kenndi mér að búa til besta spag-
hetti bolognese sem ég hef smakk-
að.
Steina hafði unun af öllum list-
um, enda mjög listfeng sjálf, þar
naut ég góðs af. Hún prjónaði á
mig peysu með Hönsestrik-
munstri, sem var í miklu uppáhaldi
hjá henni. Hún bauð mér á sýn-
ingu rússneska Bolshoj-ballett-
sins, sem kom hingað til landsins
og sýndi Svanavatnið í Þjóðleik-
húsinu, það var ógleymanleg upp-
lifun fyrir mig. Seinna átti ég eftir
að búa erlendis um tíma, þá voru
það bréfin frá Steinu sem glöddu
mig mest, löng vélrituð bréf, hún
var fljót að vélrita, enda búin að
vinna sem ritari í mörg ár, hún
hafði einstaka frásagnarhæfileika,
og skrifaði fyndin og skemmtilega
bréf, um hversdagslega hluti.
Þetta var þegar börnin voru orðin
fjögur, Högni, Ragna, Halla og
Birta, og lífið snerist um að skipta
um bleiur, klæða þau í og úr polla-
göllunum, gefa að borða, og svo
fréttir af nágrönnum og fjölskyldu,
og djasstónleikum, sem hún stund-
aði árum saman, nýjustu myndun-
um sem hún hafði séð í bíó, og
skemmtilegum bókum. Steina
hafði mikið dálæti á djassi, og setti
oft Stan Getz á fóninn, og spilaði
hátt, og sagði … hlustaðu …, og
spilaði jafnvel sama stefið aftur og
aftur.
Nú er kominn tími til að þakka
fyrir sig. Ég þakka Steinu fyrir
samfylgdina, og það sem hún gaf
mér. Blessuð sé minning hennar.
Elsku Fróði, Högni. Ragna,
Halla og Birta og allir sem þótti
vænt um Steinu, megi allar góðar
vættir vera með ykkur, og gefa
ykkur styrk.
Arndís Jóhannsdóttir.
Ljúft er mér og skylt í senn að
minnast þessarar kostakonu –
konu sem ég hef þekkt náið allt frá
bernsku. Með því að hún og kona
mín eru náskyldar voru samskipti
tíð, vinfengið gott og hlýtt. Að
missa Steinunni er því fyrir okkur
sem að kveðja kæra systur eða
góðan fjölskylduvin.
Steinunn var bráðger, skarp-
greind, glæsileg, glögg, ákveðin í
sjónarmiðum, en jafnan opin til að
skoða og virða viðhorf annarra.
Hún var höfðingi heim að sækja,
hjartahlý og örlát. Traustur og eft-
irsóttur starfskraftur var hún og
kunni vel til verka sinna.
Um tíma var hún nemandi hjá
mér, var fyrirmyndar skólaþegn
og fyrir henni lá allur lærdómur
opinn. En nú er hún farin og við lít-
um fram til funda á landi lifenda.
Blessuð veri minning hennar.
Kæri Fróði og aðrir ástvinir.
Meðtakið djúpa samúð frá okkur.
Guð blessi ykkur og styðji.
Sólveig, Jón Hjörleifur
Jónsson og fjölskylda.
Elsku bestu frændsystkini,
mikið var vont að á fréttirnar af
mömmu ykkar og vera svona langt
í burtu. Mig langar svo ótrúlega til
að segja ykkur hvað ég samhrygg-
ist ykkur innilega. Síðastliðna tvo
daga hef ég verið í siglingu niður
Mekong-fljót og hef því haft góðan
tíma til að hugsa og syrgja. Mikið
er erfitt að gera það svona ein.
Vildi að ég gæti gert það með ykk-
ur heima á Íslandi. Þegar ég skrifa
þetta bréf er ég að sigla á Mekong,
í táraflóði (mikið er samt gott að
gráta), hlusta á Sigurrós og
ímynda mér Berg okkar taka á
móti Steinu okkar og þau
skemmta sér yfir góðum sögum og
drykk eins og þau gerðu forðum
daga í veislunni hans Bergs. Mikið
eru þau fallegt og gott fólk.
Elsku bestu frændsystkini,
mikið þykir mér vænt um ykkur,
hugur minn er hjá ykkur. Ég sendi
ykkur mínar bestu samúðarkveðj-
ur.
Ykkar
Þórunn.
Við Steinunn sátum hlið við hlið
við altarið í Mosfellskirkju.
Stundin var ógleymanleg; það
var verið að gefa börnin okkar
saman og við mæðurnar vorum
svaramenn. Ég hafði staðið við hlið
Þorkels sonar míns og horft til
þeirra mæðgna. Steinunn, sem
klæddist útsaumuðum antík-kjól
frá Marokkó og handsmíðuðum
leðurstígvélum, trú sínum gamla
hippastíl, leiddi geislandi dóttur
sína inn kirkjugólfið. Glæsilegar
báðar tvær, hvor með sínu móti.
Við Steinunn fundum báðar að
kirkjan var full af ást, allir kirkju-
gestir fundu það. Og einhverntím-
ann yrðum við ömmur sömu
barnanna. Mér hlýnaði um hjarta-
rætur við þá tilhugsun. Steinunn
myndi gefa mikið af sér og hún
hafði af miklu að taka.
Það væri synd að segja að logn-
molla hafi fylgt henni. Allt við
Steinunni var stórt og málað sterk-
um litum. Hún var spaugsöm og
gædd miklum og fjölþættum hæfi-
leikum; var mikill tónlistarunnandi
og -iðkandi, afar ritfær og fyndin,
fínn kokkur, og litaskyn hennar
heillandi. Það sýna glöggt flíkurn-
ar sem hún prjónaði.
Nú þegar Steinunn hefur kvatt
þetta líf skilur hún stórt skarð eftir
sig.
Við Hörður þökkum hlýja sam-
fylgd og sendum Fróða og börnum
þeirra Steinunnar, og fjölskyld-
unni allri, innilegar samúðarkveðj-
ur okkar hjóna.
Kristín Þorkelsdóttir.
Ég kynntist Steinunni sem lítilli
stúlku líklega um 1950. Hún var
fyrsta barn íslenska lýðveldisins.
Bróðir hennar Óttar var bara
tveggja ára, en ég kannski 12 ára.
þau bjuggu í risinu, en fjölskylda
mín á fyrstu hæðinni. Það mynd-
uðust strax náin tengsl milli þess-
ara fjölskyldna sem endast enn í
dag. Foreldrar Steinunnar voru
Guðmundur Sigurðsson, skáld-
mæltur skrifstofumaður og þekkt-
ur háðfugl og Fjóla Haraldsdóttir,
sem spilaði bæði á píanó og gítar.
Það var oft glatt á hjalla í risinu,
þar komu saman skáld og mynd-
listarmenn, skattstjóri og saka-
dómari, svo eitthvað sé nefnt.
Pabbi og mamma tóku þátt í þessu
þegar mikið lá við. Guðmundur var
hrókur fagnaðarins, Fjóla spilaði
undir, og þær mamma höfðu hæst
þegar tregabundin ljóð þjóðskáld-
anna voru sungin. Ég var með á
minn hátt og passaði börnin tvö og
heyrði ásamt þeim óminn af sam-
komunni. Stundum stungu skáld
og málarar höfði inn um gættina
hjá okkur í barnaherberginu og
spurðu af ábyrgð hvort hér væri
ekki allt í besta lagi. Ég fékk eitt
skáldverk Halldórs Laxness í jóla-
gjöf frá þeim á hverju ári. Vinskap-
ur foreldranna áttu sér enn eldri
rætur, þau voru öll sósíalistar og
könnuðust hvert við annað úr bar-
áttunni. Á fyrstu hæðina vöndu
komur sína verkamenn sem unnu
með pabba og ungir og gamlir
kommar. Stundum runnu 1. hæðin
og risið saman og þá var fjörugast
og fróðlegast. En kynnin voru líka
persónulegri og mjög náin. Stein-
unn og Óttar urðu líka börn pabba
og mömmu og ég varð barn Guð-
mundar og Fjólu. Ég man eftir
þeim mæðrunum í eldhúsinu á
fyrstu hæðinni þegar þær voru að
leggja mér lífsreglurnar rétt áður
en ég fór til náms í Svíþjóð tvítug-
ur að aldri. Sérstaklega átti ég að
fara varlega í samskiptum við kon-
ur í því landi. Steinunn fór
snemma í utanríkisþjónustuna og
var mikið erlendis líka. Við hitt-
umst ekki oft í þessu heimsrölti
okkar, en hvar sem ég hitti ein-
hvern sem hafði unnið með Stein-
unni var henni lýst sem góðri
manneskju og úrvals starfskrafti.
Kynni okkar endurnýjuðust þegar
bæði voru komin heim, og hún
komin með sér við hlið öðlinginn
Fróða Jóhannsson í Dalsgarði.
Ég minnist á þessari stundu
hlýju Steinunnar og fjölskyldu
hennar og góðra samskipta. Við
Ingibjörg skilum hjartans samúð-
arkveðjum héðan úr útlandinu, þar
sem við dveljumst nú um stundir.
Ragnar Stefánsson.
Á meðan tónlist heillar, bækur
hrífa og fyndni skapar óumræði-
lega sælu, er hún Steina nálæg í
blíðu og stríðu.
Steina var frumburður lýðveld-
isins og þurfti að bera þá byrði,
sem feimin telpa, að vera árleg for-
síðumynd á alþýðutímaritum.
Klædd í barnapeysuföt með ljósa
slöngulokka og uppnefnd Lýðveld-
ína. Síðasta myndin sem sýndi
„lýðveldisbarnið“ var af síðhærðri
blondínu í mínípilsi og hnéháum
leðurstígvélum með óransbleikan
varalit. Hún aftók frekari mynd-
birtingar af sér í þessu einstæða
hlutverki.
Afar okkar voru bræður. Við
þekktumst frá fyrstu tíð. Ólum
börnin okkar upp í dalnum. Bök-
uðum saman jólakökur með börn-
unum – þær brunnu í ofninum.
Skárum með þeim laufabrauð sem
hundarnir stálu. Fórum í ferðalög
um landið og fengum góð tjald-
stæði í gegnum pólitísk tengsl okk-
ar við Alþýðubandalag Kjósar-
sýslu. Keyrðum í gegnum Evrópu
og settumst að á Spáni um tíma.
Börnin þurftu sól, við ódýrt rauð-
vín og steikta smáfiska.
Steina var hálfgerður unglingur
þegar hún hóf störf sem ritari í
fjarlægum sendiráðum Íslands.
Langtímadvöl í Washington og
Moskvu. Hún bakaði blínís og sauð
rauðrófusúpu að hætti Hversdags-
Rússa, blandaði draumkennda
kokteila að hætti stöndugra Am-
eríkana. Í báðum borgunum hélt
hún áfram píanónámi. Ófáir sögðu
að hún hefði getað orðið konsertpí-
anisti ef hún hefði nú reynt að sýna
örlítinn metnað og þor. Hún barð-
ist við tárin undir fallega fluttri
klassík. Djassinn gerði hana „óða á
örskammri stund“.
Steinunn og Guðný systir urðu
afkastamiklar prjónakonur í Mos-
fellsdal. Þær gengu prjónandi milli
bæja og þvílíkar og aðrar eins
peysur. Stórar með munstrum
allra trúarbragða. Þær sömdu
munstur. Þessir gripir sem þær
skópu eru í dag eftirlæti afkom-
enda okkar. Um síðustu aldamót
vitum við lífsnautnakonurnar ekki
fyrr til en við erum fluttar úr Daln-
um og orðnar 101 kellingar sem
þræddu restauranta, bari, snyrti-
vöruverslanir, bókabúðir, skó-
smíðaverkstæði og hárgreiðslu-
stofur. Aldrei bar skugga á þessar
gefandi ferðir okkar um miðborg-
ina. Á sumrin var oft fjör í kringum
fóninn þegar við fylgdumst með
skrúð- og mótmælagöngum á
Laugaveginum. Steina hafði mikið
dálæti á skrúðgöngum og lúðra-
blæstri. Sjálfsagt eitthvað haft
með afmælisdaginn og Moskvud-
völina að gera.
Við töluðum daglega saman í
síma, yfirleitt á milli tíu og tólf.
Ekkert þótti henni svo merkilegt
eða ómerkilegt að ekki þyrfti að
viðra það. Fólkið mitt sagði „voða-
lega ertu búin að rífast og hlæja
mikið í morgun, varstu að tala við
Steinu?“
Steinunn var glæsileg kona. Há-
vaxin og svipmikil, augun dimm-
græn og alvarleg. Röddin djúp,
brosið svo fallegt. Skapmikil en yf-
irveguð. Svo greind að það þvæld-
ist fyrir henni í hversdagslífinu.
Ótal orðatiltæki og örsögur hennar
urðu að stjörnum. „Nei, ég segi
svona …“ haft eftir gömlum
frænda hennar í móðurætt. „Mér
líður best illa …“ sagði jafn
skemmtilegur frændi úr föðurætt.
Lokasímtalið var frá Luxor í
Egyptalandi til Ísafjarðar á Ís-
landi. Hún spurði hvort ekki væri
yndislegt á Ísafirði. Ég spurði
hvort hún væri ekki búin að ná lit í
sólinni. „Komdu í vetur og svo för-
um við næsta sumar …. Þannig fór
um þær sjóferðir stóru kellingar-
innar og litlu kellingarinnar.
Innsæi, persónutöfra og rausn-
arskapar hennar búum við að sem
þessa daga syrgjum hjartans
besta vin.
Sigríður Halldórsdóttir.
Meira: mbl.is/minningar
Elsku vinkona mín, Steina, er
ekki lengur með okkur. Ég hugsa
til baka, árið er 1983, við Bjarni ný-
lega flutt í Mosfellssveit. Ég fer í
Kaupfélagið með litlu drengina
okkar, Sæmund og Sigurgísla,
þessa notalegu verslun, þar sem
allir þekktu alla. Ég tók eftir þess-
ari glæsilegu konu sem ég átti oft
eftir að rekast á næstu árin, nokkr-
um sinnum var hún með litla dótt-
ur sína með sér. Ekki gat ég
ímyndað mér á þessum tíma að
þessar mæðgur yrðu mínar vin-
konur seinna.
Árin liðu, Sæmundur orðinn 14
ára og tilkynnir mér að hann ætli
að eignast kærustu. Nýr ungi hafði
bæst í bræðrahópinn þ.e. Óskar
Björn. Sæmundur kynnir okkur
fyrir Birtu sem var dóttir glæsi-
legu konunnar sem ég sá í kaup-
félaginu. Upp frá þeim degi sem
Sæmundur og Birta urðu vinir
varð til ótrúlega fallegt og
skemmtilegt vinasamband á milli
okkar foreldra þeirra, Sæmundar
og Birtu, sem aldrei hefur fallið
skuggi á. Steina og Fróði stóðu við
hlið okkar eins og klettur í gegnum
veikindi Sæmundar okkar. Erum
við þeim ævinlega þakklát fyrir
það. Í dag er ég að kveðja þessa
góðu vinkonu mína sem ég sakna
ótrúlega mikið. Ég ætla að muna
öll hlátursköstin, faðmlögin góðu,
brosið blíða og allt það góða sem
hún kenndi mér.
Í perlubandi daganna er alltaf einn og
einn
sem eitthvað sérstakt hefir manni að
færa.
Í minningunni ljómar hann sem ekta eð-
alsteinn
og angar eins og lambagrasið skæra.
(Áróra Guðmundsdóttir.)
Elsku Fróði, Högni, Ragna,
Keli, Halla, Hákon og elsku hjart-
ans Birta okkar ásamt öllum
ömmu- og afabörnunum, megi allt
það besta í heimi varðveita og
passa hana elsku Steinu okkar.
Ykkar elskandi vinir,
Hrafnhildur (Haddý),
Bjarni, Sigurgísli, Sandra
og Óskar Björn.
Steinunn B.
Guðmundsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Steina var einstök kona.
Hún var með stóra sál og
sterkan húmor, margfalt
öflugri en flestir réðu við.
Hún var hjartahlý og
kenndi mér svo margt. Um
elskuna, styrkinn og veik-
leikann. Um breytileika
mannlífsins. Hún átti djúpa
elsku gagnvart börnum og
ungu fólki. Ég gleymi aldr-
ei augntilliti hennar þegar
hún horfði á börnin mín
smá. Augu hennar voru
djúp og ljómandi. Æ síðan
kemur þetta augntillit til
mín.
Kæru vinir, ég votta
ykkur mína dýpstu samúð.
Þið eruð svo rík að hafa átt
hana Steinu – og hún ykk-
ur.
Ykkar einlæg,
Vera.