Morgunblaðið - 27.01.2012, Síða 38

Morgunblaðið - 27.01.2012, Síða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2012 Sjö viðburðir eru á dagskrá Myrkra músíkdaga í dag:  09.30 Eldborg: Tónsmiðastofa Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Danska tónskáldið Hans Abraham- sen leiðbeinir þremur ungum ís- lenskum tónskáldum, Guðmundi Steini Gunnarssyni, Gunnari Karel Mássyni og Kristjáni Guðjónssyni. Ilan Volkov verður með hljómsveit- ina alla til taks. Frjáls aðgangur.  12.30 Kaldalón í Hörpu: Guðrún Jóhanna Ólafs- dóttir messó- sópran og Franc- isco Javier Jáuregui flytja efnisskrá með ís- lenskum og spænskum sam- tímaverkum, m.a. eitt sem þau hafa samið í sameiningu sjálf. Þá frum- flytja þau tvö spænsk verk, eftir Marisu Manchado Torres og Agust- ín Castilla-Ávila.  15.00 Kalda- lón: Íslensk verk fyrir tvær fiðlur. Duo Landon – fiðluleikararnir Hlíf Sigurjóns- dóttir og Martin Frewer, flytja dagskrá sem samanstendur af fiðludúettum eftir íslensk tónskáld, þar af verður eitt þeirra frumflutt á tónleikunum – Furioso eftir Jónas Tómasson.  17.00 Kalda- lón: Nordic Af- fect leikur nú- tímatónlist á barokkhljóðfæri. Gunnar Andreas Kristinsson, Hugi Guðmunds- son, María Huld Markan Sigfúsdóttir og Hafdís Bjarnadóttir eiga öll verk.  20.00 Norðurljós í Hörpu: Caput- hópurinn flytur verk Önnu Þor- valdsdóttur. Flest verkin sem flutt verða eru nýkomin út á geisladiski Önnu, en eitt verður frumflutt – Streaming Arhythmia.  20.00 Kaldalón: Einleiks- tónleikar Áshildar Haraldsdóttur flautuleikara. Hún frumflytur nokkur verk eftir íslensk tónskáld – Þuríði Jónsdóttur, Inga Garðar Er- lendsson og Jón Hlöðver Áskelsson. Áshildur fær Íslenska flautukórinn einnig til liðs við sig.  24.00 Norðurljós: Miðnætur- tónleikar Duo Harpverk en hann skipa Katie Buckley hörpuleikari og Frank Aarnink slagverksleikari. Þau flytja verk eftir nemendur úr tónsmíðadeild Listaháskóla Íslands og í kaupbæti verk eftir ung sænsk og dönsk tónskáld. Mörg tón- verk frum- flutt í dag Sýningar hefjast í kvöld, föstu- dag, á Sögu þjóðar á Litla sviði Borgarleikhússins. Þessi sjón- leikur með tvíeykinu Hundi í óskilum, í leikstjórn Benedikts Erlingssonar, verður sýndur í janúar og febrúar og er sam- starfsverkefni Hunds í óskil- um, Leikfélags Akureyrar og Borgarleikhússins. Hundur í óskilum eru þeir Eiríkur Þ. Stephensen og Hjörleifur Hjartarson. Í sýningunni fara þeir í tali og tónum á hundavaði í gegnum Íslandssöguna frá upphafi til okkar daga. Tónleikar hjá Hundi í óskilum hafa oft minnt meira á sirkus eða uppi- stand en venjulega tónleika. Leikhús Saga þjóðar með Hundi í óskilum Hundur í óskilum Fyrsta listasýning ársins í Ar- tíma galleríi er í raun tvær sýn- ingar og verða þær opnaðar í dag, föstudag, klukkan 18. Ar- tíma gallerí er á Smiðjustíg 10. Alexander Jean Edvard Le Sage de Fontenay stýrir sýn- ingunni S/H/91-93. Þar er að finna tíu listaverk eftir jafn marga listamenn. Þeir tengjast allir á þann hátt að vera eða hafa verið í fornámi í listum. Efni sýningarinnar er svart og hvítt. Fjölbreytni ræður ríkjum og val miðla ýmislegt. Oddný Björk Daníelsdóttir stýrir yfirlitssýn- ingu með verkum eftir listakonuna Heiðu Rún Steinsdóttur. Myndlist Tvær sýningar opnaðar í Artíma Alexander Jean de Fontenay Út er komin bók þar sem sænski fræðimaðurinn Lasse Mårtensson fjallar um handrit Stofnunar Árna Magn- ússonar, AM 557 4to, sem stundum er kallað Skálholts- bók og hefur að geyma tólf Ís- lendinga sögur, sjálfstæða Ís- lendinga þætti og riddarasögur, en það er senni- lega einna þekktast fyrir að vera annað aðalhandrit Eiríks sögu rauða. Nefnist bók hans Kodikologisk, grafonomisk och ortografisk undersökning av en isländsk sammelhandskrift från 1400-talet. Í tilkynningu Árnastofnunar segir að um sé að ræða mikilvægt framlag til handritarannsókna. Bókmenntir Hefur rannsakað Skálholtsbók Lasse Mårtensson Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Það er alltaf tími fyrir Mozart,“ seg- ir Tryggvi M. Baldvinsson tónskáld. Á tónleikum á Kjarvalsstöðum í dag, þar sem flutt verða Kvintett fyrir horn og strengi og Diverti- mento í D-Dúr fyrir strengi og tvö horn, spjallar hann við tónleikagesti um tónskáldið og tónlist hans. Í dag, 27. janúar, er fæðingardagur Wolf- gangs Amadeusar Mozarts en hann fæddist í Salzburg árið 1756. Eins og undanfarin ár býður Reykjavík- urborg til þessara ókeypis tónleika á afmælisdegi meistarans. „Hvers vegna er alltaf tími fyrir Mozart?“, spyr Tryggvi og veltir svari fyrir sér. „Tónlist hans er svo skýr og heiðrík. Það er frískandi og upplífgandi að hlusta á tónlist Moz- arts. Tónlist hans fylgir innblástur sem nær manni yfirleitt alltaf. Tær- leikinn nær svo vel í gegn að það er eins og að lesa fallegt ljóð.“ Tryggvi segir hreinleika og ein- faldleika vera viðloðandi klassíska tímabilið, en þótt tónlist Mozarts sé tær þá sá hún langt í frá einföld. „Hún er það mikið unnin að hún verður aldrei of einföld“ Ótrúlega góð laglínugreind „Mozart hefur haft ótrúlega góða laglínugreind,“ segir Tryggvi. „Mið- að við hvað hann samdi gríðarlega mikið af tónlist þá eru eyrnaorm- arnir ekkert mjög margir, en þessar laglínur tala alltaf til manns. Ung tónskáld ganga oft gegnum tímabil þar sem þeim finnast verk Mozarts frekar óspennandi, því átök vanti í þau. En átökin eru vitaskuld þarna, þótt þau séu annarskonar en í tón- list Beethovens eða rómantíska tímabilsins. Sjálfur gekk ég gegnum þetta tímabil. Þegar ung tónskáld eru að baksa við að setja hugmyndir sínar á blað, þá er næstum ósann- gjarnt að sjá hvað Mozart hefur átt auðvelt með þetta,“ segir hann og hlær. „Maður finnur hvað tónlistin hefur streymt átakalaust frá hon- um. Sumir segja að Mozart sé fyrir þroskað fólk og ungabörn!“ Það er frískandi og upplífgandi að hlusta á tónlist Mozarts Morgunblaðið/Eggert Flytjendurnir „Maður finnur hvað tónlistin hefur streymt átakalaust frá honum,“ segir Tryggvi um Mozart.  Boðið á tónleika á Kjarvalsstöðum í dag, á afmæli tónskáldsins Kammerkórinn Hymnodia heldur tónleika í Langholtskirkju á morg- un, laugardag, klukkan 17.00. Tón- leikarnir eru haldnir í samstarfi við Listafélag Langholtskirkju. Efnisskrá tónleikanna er þannig saman sett að hver kórfélagi hefur valið sitt eftirlætisverk af eldri tón- leikaskrám kórsins og verða þau öll flutt. Kórinn var stofnaður árið 2003 og hefur haldið tugi tónleika með afar ólíkum efnisskrám; má því búast við að fjölbreytileg verk- hljómi í Langholtskirkju á morgun. Meðal annars verður flutt tónlist eftir Önnu Þorvaldsdóttur, Hildi- gunni Rúnarsdóttur, Tryggva Bald- vinsson, Jón Hlöðver Áskelsson, Heinrich Isaac, T.L. da Victoria, Edvard Grieg, Eric Whitacre og Tómas Jennefeldt. Arna Valsdóttir sýnir myndbandsverk á tónleik- unum. Eyþór Ingi Jónson, organisti og söngstjóri við Akureyrarkirkju, er stjórnandi kórsins. Samtíma- og barroktónlist Hymnodia þýðir dýrðarsöngur. Í þennan rómaða kammerkór hefur Eyþór Ingi valið einvalalið söng- fólks til að flytja metnaðarfulla kór- tónlist, kirkjuleg verk og veraldleg. Hymnodia hefur tekið að sér fjöl- breytileg verkefni en einkum ein- beitt sér að samtímatónlist og bar- rokktónlist. Í starfi Hymnodiu hefur verið lögð mikil áhersla á fjölbreytni í efnisvali, óvanalega og líflega framkomu og síðast en ekki síst kórspuna. Hefur kórinn meðal annars haldið tónleika sem eru nán- ast eingöngu spunnir og þá í sam- starfi við hljóðfæraleikara og myndlistarmenn. Óvenjulegir bún- ingar og uppákomur fylgja gjarnan tónleikum kammerkórsins. Kórfélagar velja eftirlætislög Kemmerkórinn Hymnodia flytur fjölbreytileg verk á tónleikunum.  Kammerkórinn Hymnodia kemur fram á tónleikum í Langholtskirkju Svavar aðstoðaði ljósmyndarann James Balog við ljósmyndaverkið Extreme Ice Survey 39 » Líkt og undanfarin ár verða tón- leikar til heiðurs Wolfgang Ama- deusi Mozart haldnir á Kjarvals- stöðum á fæðingardegi hans, 27. janúar. Tónleikarnir hefjast klukk- an 18 í dag og á efnisskránni eru Kvintett fyrir horn, fiðlu, tvær víól- ur og selló, ásamt Divertimentói í D-Dúr fyrir strengi og tvö horn. Flytjendur á tónleikunum á Kjar- valsstöðum eru fiðluleikararnir Laufey Sigurðardóttir og Sig- urlaug Eðvaldsdóttir, víóluleik- ararnir Þórunn Ósk Marinósdóttir og Guðrún Þórarinsdóttir, Bryndís Halla Gylfadóttir á selló og horn- leikararnir Joseph Ognibene og Þorkell Jóelsson. Tónverk fyrir strengi og horn TVÖ VERK EFTIR MOZART Á EFNISSKRÁNNI Í DAG Myrkir músíkdagar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.