Morgunblaðið - 04.02.2012, Qupperneq 10
Hópur nemenda í hótelstjórn í
Menntaskólanum í Kópavogi
munu galdra fram byggottó-
kúlur sem eru eins konar ís-
lensk útgáfa af rísottó, en í
þessari útgáfu er rísottóinu,
sem gert er úr byggi frá Móður
Jörð, rúllað saman með osti í
miðjunni og steikt. Byggottóið
verður borið fram með sterkri
sósu í kramarhúsi fyrir sælkera
á faraldsfæti. Hópurinn verður
rétt hjá Hemma og Valda á
Laugavegi frá klukkan 12.
Rísottó á ís-
lenska vísu
BYGGOTTÓ Í KRAMARHÚSI
dóttir og Sari Peltonen ákváðu um
leið að setja upp slíkan dag í
Reykjavík.
Brot af finnskri stemningu
„Við vinnum báðar í hönnunar-
miðstöð og okkur langaði að fá
svona smá brot af finnsku stemn-
ingunni hingað. Auk þess erum við
báðar miklar áhugamanneskjur um
matargerð og fannst þetta falleg og
skemmtileg hugmynd. Þessi dagur
er tilvalinn fyrir fólk til að prófa
hugmynd sem það hefur gengið
með í maganum lengi. Í Helsinki
hefur fólk til að mynda notað þetta
til að kynna rétti frá heimalöndum
sínum. Líkt og í Helsinki getur fólk
framreitt matinn þar sem það vill,
hvort sem það er úti í garði eða
inni í stofu. Mamma mín ætlar til
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Á Restaurant Day Reykjavík sem
fram fer í dag munu sælkerar víða
um borg gleðja bragðlauka sam-
borgara sinna. Dagurinn á uppruna
sinn í Helsinki sem útnefnd hefur
verið hönnunarborg ársins 2012.
Þann titil geta borgir sóst eftir að
bera en Finnar tóku þann pól í
hæðina að leyfa Norðurlöndum að
njóta heiðursins með sér. Þannig
verður Hönnunarmars, sem ís-
lenskir hönnuðir standa fyrir, angi
af hönnunarborginni Helsinki í ár.
Um helgina verður þar haldin helj-
arinnar „popup“-matarveisla þar
sem fjöldi matstaða mun spretta
upp um alla borg.
Þær Edda Kristín Sigurjóns-
að mynda að nota tækifærið og
prófa nýjar hugmyndir. Hún er
hjúkrunarkona og mikil áhuga-
manneskja um mat. Ég og tvær
vinkonur mínar verðum með stað-
inn Hjartarætur. Hann verður á
vinnustofunni minni og þar verður í
boði smáréttaseðil. Í Helsinki hefur
fólk verið með búninga og atriði en
líka bara súpu úti á götuhorni,“
segir Edda Kristín.
Á vefsíðunni restaur-
antday.org hafa sælkerar getað
skráð sig og þar má nálgast allar
helstu upplýsingar um þá staði þar
sem krásir verða í boði. Borg-
arbúum er treyst til að nýta þetta
tækifæri kjósi þeir svo og síðan
hefur fólk nýtt samskiptavefinn
Facebook til að kynna sinn stað.
Nú hafa um tíu staðir skráð sig og
þar af einn á Ísafirði en einnig ætla
Sælkerar gleðjast í Reykjavík
Matarmenning
fær að blómstra
Kaffitími Fólk ræður hvað það vill bera fram og fyrir hve marga.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2012
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Ánámskeiðinu Jógakrakk-ar eru gerðar skemmti-legar jógaæfingar, farið ífjölbreytta leiki sem þjálfa
athygli og samhæfingu, hugleitt og
slakað á svo fátt eitt sé nefnt. Kenn-
arinn, Arnbjörg Kristín Konráðs-
dóttir, fræðir krakkana líka um jóga
og þau fá að kynnast jógadýrum. En
eitt slíkt kemur í heimsókn á hverju
námskeiði. Námskeiðið er ætlað fyr-
ir krakka á aldrinum 6-10 ára en
Arnbjörg Kristín hefur kennt krökk-
um jóga síðan síðastliðið haust.
Einnig er hún í samstarfi með öðrum
barnajógakennara, Álfrúnu Helgu
Slökun er líka nauð-
synleg fyrir börnin
Börn hafa gott af því að koma í jóga og slaka á og hugleiða líkt og fullorðna fólkið.
Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir barnajógakennari notar fjölbreytta leiki á jóga-
námskeiði fyrir börn og tvinnar inn í tímana skapandi æfingum.
Kennari Arnbjörg Kristín iðkar daglega jóga og kennir öðrum.
Félag gulrófnabænda heldur úti góðri
síðu undir slóðinni rofa.is. Þar er
margt fróðlegt og skemmtilegt um
þetta grennandi góðmeti, gulrófuna,
en hún er sérlega ódýr vítamíngjafi.
Hún er mjög C-vítamínrík, úr 100
grömmum af gulrófum fáum við
u.þ.b. 45 mg af C-vítamíni. Blessuð
rófan er líka A-vítamín- og steinefna-
rík og hún ber í sér litla fitu en er rík
af kolvetni. Einungis eru 38 kcal (160
KJ) í hverjum 100 g, sem er t.d. meira
en helmingi minna en í kartöflum. Á
þessari ágætu heimasíðu rófunnar er
hægt að lesa fréttir og fróðleik sem
tengist rófum og ræktun þeirra,
skoða myndir frá ferðalögum bænda
til útlanda, panta boli, nálgast rófu-
uppskriftir og ótal margt fleira.
Vefsíðan www.rofa.is
Morgunblaðið/RAX
Gómsæti Gulrófur eru bæði meinhollar og góðar, hráar eða soðnar.
Allt um sítrónu norðursins
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.