Morgunblaðið - 04.02.2012, Síða 11
tveir litlir veitingastaðir að vera
með sérstaka rétti í tilefni dagsins.
Annar þeirra er St Paul’s en þar
ætlar eigandinn, Paul Maguire, að
elda rétt frá heimabæ sínum Liver-
pool. Rétturinn kallast Scouse og
er eins konar kjötsúpa.
Sérstakt matarapp í símann
Fyrir tæknivædda sælkera má
ná sér í sérstakt matarhátíðarapp í
símann. Þetta segir Edda Kristín
hafa skapað stemningu í Helsinki í
fyrra þegar fólk gat búið til sinn
rúnt á milli staða. Þá voru yfir 200
staðir opnaðir um alla Helsinki,
sumir í aðeins klukkutíma en aðrir
lengur. Fólki er í sjálfsvald sett
hvort það biður um greiðslu eða
framlag fyrir matinn. Aðalatriðið
er að fólk komi saman og eigi gott
spjall yfir mat.
Ljósmynd/restaurantday.org
Matargleði Súpa framreidd fyrir ánægða matarsgesti á horni í Helsinki.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Jógatími Arnbjörg Kristín fræðir krakkana um jóga og mikilvægi þess að slaka reglulega á.
Örnólfsdóttur. En þær verða með
námskeiðið Leikum saman á degi
heimshamingju þann 11. febrúar nk.
í jógasal Ljósheima fyrir foreldra og
börn.
Foreldrar og börn í jóga
„Að upplagi er ég kundalini-
jógakennari og starfa við meðferðir
en bætti síðan barnajógakenn-
aranáminu við mig. Ég hef kennt það
síðan síðastliðið haust og er nú að
byggja upp krakkajógastarfið í jóga-
sal Ljósheima í Borgartúni 3. Þar er
ég nú byrjuð með nýtt námskeiðs-
form þar sem krakkarnir iðka jóga
saman í fimm skipti og læra grunn-
inn í jóga og verða þrjú slík nám-
skeið haldin nú á vorönn. Mér finnst
þetta starf mikilvægt, skemmtilegt
og mjög gefandi. Fullorðið fólk velur
að fara reglulega í jóga til að kyrra
hugann og slaka á og er mjög eðli-
legt að börnin þurfi það líka. Við bú-
um öll í sama samfélaginu sem er
ríkt af áreiti og hraða. Þau þurfa líka
slökun og læra leiðir til að kyrra
hugann og slaka á. Jógakrakka-
námskeiðin næra þau á skemmtilega
hátt,“ segir Arnbjörg Kristín.
Jógadýr
Margar jógastöður eru kenndar
við dýr og í hverjum tíma er poki
með leikfangadýrum látinn ganga.
Hvert barn dregur úr pokanum og
gerir síðan þá jógastellingu sem dýr-
ið segir til um. Stundum búa börnin
líka til sögu í kringum dýrið og þá er
farið hringinn og smám saman bætt
við söguna með innleggi hvers og
eins.
„Ég segi þeim líka til hvers við
gerum jóga og gef þeim sömu upp-
lýsingar og ég myndi gefa full-
orðnum en orða það á einfaldan hátt.
Ég segi þeim t.d. frá fingrunum og
fingrastöðu í hugleiðslu. Ef þú lætur
þumal snerta vísifingur er það kallað
viskustaðan í tímunum okkar en ef
þumall snertir löngutöng er það fyr-
ir þolinmæði. Ég læt þau velja sér
fingur í hugleiðslunni eftir hvað þau
þurfa. Þá horfa þau inn á við og
hlusta. Einn strákur velur oft alla
putta, það er líka allt í lagi. En þetta
er mjög skemmtilegt. Þau tileinka
sér efnið og þau sem eru búin að
vera lengur ná að sitja kyrr og hug-
leiða í þrjár mínútur sem var bara
hálf mínúta fyrst. Þegar það eru
komnir fleiri öruggir í hópinn finna
hinir fyrir því og það hjálpar þeim að
tileinka sér jógað, segir Arnbjörg
Kristín.
Í seinasta tímanum eru for-
eldrar boðnir velkomnir og þá kenn-
ir Arnbjörg Kristín öllum hópnum
jógaleiki sem foreldrar og börn geta
farið í saman eftir að námskeiði lýk-
ur. Ef mamma og pabbi komast ekki
eru amma og afi eða aðrir úr fjöl-
skyldunni velkomnir.
Dagleg iðkun
Jóga hefur blómstrað upp á síð-
kastið og segir Arnbjörg Kristín
marga sem hafi ekki verið starfandi í
kennslu nú vera farna að kenna. Í
samfélaginu í dag er gott að kyrra
hugann daglega og leita lífsfyllingar
innan frá.
„Ég var í hefðbundinni líkams-
rækt og fann að það nærði mig ekki
alveg nóg. Þannig að ég fór í jóga-
kennaranám bara fyrir mig til að
læra að stunda það daglega. Þá bjó
ég á Akureyri þar sem voru ekki
daglegir jógatímar en það endaði
þannig að ég fór að kenna mjög mik-
ið. Nú er ég í kundalini jógaþerapíu-
námi og vinn mikið með ein-
staklingum sem vilja jóga og hug-
leiðslu til heimaiðkunar. Þá kenni ég
jóga í vatni í Boðaþingi og á Grensás
sem samanstendur af jógaæfingum,
fljótandi slökun og hugleiðslu. Slíkt
er sérstaklega gott fyrir fólk sem á
erfitt með hreyfingar þó námskeiðið
sé vissulega opið öllum. Sjálf stunda
ég jóga daglega og er hluti af því
heimaverkefni í náminu mínu þar
sem mikil áhersla er lögð á eigin iðk-
un. Ég er jú að læra þetta til að
hjálpa fólki að líða betur og þarf að
upplifa áhrif iðkunar sjálf. En ég hef
mjög gott af þessu og nýt þessa lífs-
stíls. Það heillar mig líka að ég get
gert þetta hvar sem er því ég ferðast
mikið og held námskeið á lands-
byggðinni ásamt því að kenna aðra
hverja helgi í Orkulundi á Ak-
ureyri,“ segir Arnbjörg Kristín.
Slökun Krakkarnir hugleiða og læra mismunandi fingrastöðu í hugleiðslu.
Fullorðið fólk velur að
fara reglulega í jóga og
er mjög eðlilegt að
börnin þurfi það líka
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2012
Á morgun, sunnudag, kl. 14.00 verð-
ur leiðsögn um sýningar Listasafns
Íslands í fylgd Sigríðar Melrósar
Ólafsdóttur, deildarstjóra sýn-
ingadeildar. Sigríður mun fjalla um
sýninguna ÞÁ OG NÚ sem spannar
tímabilið frá miðri 19. öld fram til
dagsins í dag. Að því loknu mun Sig-
ríður fjalla um verk þeirra Libiu
Castro og Ólafs Ólafssonar á sýning-
unni Í afbyggingu sem er í sölunum á
efri hæð safnsins. Sigríður mun ræða
um sýningarnar út frá einstökum
verkum og tengja saman með áherslu
á verk sem endurspegla þjóðfélags-
umrót og átök í þróun myndlistar hér
á landi með hliðsjón af erlendum
straumum.
Endilega…
…njótið leiðsagnar um listasafn
Listasafn Safnið í vetrarbúningi.