Morgunblaðið - 04.02.2012, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2012
Dagur leikskólans verður haldinn
hátíðlegur um allt land á mánudag.
Munu allir leikskólar leggja sér-
staka áherslu á að gera starf sitt
sýnilegt þennan dag.
Hefur m.a. verið útbúið vegg-
spjald með gullkornum barna. Fyr-
irhugað er að afhenda ráðamönn-
um í öllum sveitarfélögum
veggspjaldið með formlegum hætti.
Þetta er í sjötta sinn sem haldið
er upp á dag leikskólans.
Dagur leikskólans
Kostnaður vegna Herjólfs í fyrra
var um 250 milljónir umfram fjár-
heimildir. Miðað við óbreytt
ástand á siglingum Herjólfs til
Vestmannaeyja verður kostnaður í
ár 300-400 milljónir umfram fjár-
veitingar ársins.
Í yfirliti frá Vegagerðinni kem-
ur fram að rekstur
Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs
hefur reynst erfiðari vegna þess
að ýmist er siglt til Þorlákshafnar
eða til Landeyjahafnar. Viðbót-
arkostnaður vegna þessa var að
hluta til bættur í fjáraukalögum
2011 og með hækkuðum fjár-
framlögum 2012. Það sem hins
vegar setur fjárhagsáætlanir úr
skorðum er miklu umfangsmeiri
viðgerð á skipinu í fyrra en í
fyrstu hafði verið gert ráð fyrir.
Þannig reyndist hagkvæmt að
taka upp aðalvél skipsins og gera
aðrar lagfæringar sem hefði mátt
láta bíða til þessa árs en ákveðið
var að gera samhliða öðrum lag-
færingum þegar skipið fór í slipp.
Fjarvera skipsins frá þjónustu
við Vestmannaeyjar var því lengri
en gert var ráð fyrir með auknum
kostnaði við leigu á Breiðafjarð-
arferjunni Baldri. Hins vegar má
gera ráð fyrir því að frátafir verði
þeim mun minni á þessu ári þar
sem skipið telst nú í mjög góðu
ástandi og þarf því ekki að fara
aftur í slipp á þessu ári en Herj-
ólfur fer í slipp annað hvert ár.
Morgunblaðið/RAX
Kostnaður vegna reksturs Herjólfs 250
milljónum meiri en áætlað hafði verið
Sýning, undir yfirskriftinni Biblían
í þrívídd, verður opnuð í Kaldalóni í
Hörpu í dag þar sem sagan í Biblí-
unni er kynnt.
„Biblían hefur verið notuð í ýms-
um tilgangi,“ segir Manfred Lenke,
fjölmiðlafulltrúi sýningarinnar, í
tilkynningu. „Algengast er að ritn-
ingarvers séu tekin úr samhengi og
yfirfærð á breyttar aðstæður án
umhugsunar. Þessi aðferð getur
sjaldan leitt til annars en misskiln-
ings. Með sýningunni erum við að
reyna að sýna stóru söguna í Biblí-
unni. Við vonumst til þess að þessi
tilraun okkar geti hjálpað land-
anum að gefa þessari mögnuðu bók
gaum á ný og finna í henni von og
uppörvun.“
Sýningin verður opin 4.-16. febr-
úar frá klukkan 10-22 daglega. Á
níu kvöldum verða flutt erindi um
félagsleg efni, tónverk af helstu
kórum landsins, erindi um biblíuleg
efni sem tengjast einum af níu bás-
um sýningarinnar. Hver kvöld-
dagskrá mun vara u.þ.b. 80 mín-
útur.
Biblían í þrívídd
Ljósið, endurhæfingar-og stuðningsmiðstöð, hefur und-
anfarin ár haldið námskeið fyrir börn sem eiga nákom-
inn fjölskyldumeðlim sem hefur greinst með krabba-
mein.
Á námskeiðunum fá börnin tækifæri til að efla eigið
sjálfstraust, vinna með samskipti og samvinnu, tjáningu
og leik. Þau verða meðvitaðri um eigin færni, líðan og
jákvæðni.
Námskeiðin eru upprunnin frá Foreldrahúsi og hefur
Elísabet Lorange, listmeðferðarfræðingur, umsjón með
þeim auk þess sem iðjuþjálfi, með menntun í ævintýra-
meðferð, kemur að námskeiðunum.
Nú er að fara af stað nýtt 10 vikna námskeið fyrir aldurshópinn 7-9 ára
börn, en Ljósið sinnir einnig öllum öðrum aldurshópum eftir þörfum. Nám-
skeiðin eru styrkt af Velferðarsjóði barna og því ókeypis.
Frekari upplýsingar eru á www.ljosid.is.
Ljósið með námskeið fyrir börn
Elísabet Lorange
Fermingarbörn í söfnuðum Kópa-
vogs halda sameiginlegan risa-
flóamarkað í Digraneskirkju á
sunnudag kl. 16-18.
Einnig verður þar háð úrslitavið-
ureign í spurningakeppni ferming-
arbarna í Kópavogi og poppmessa
þar sem allir prestar Kópavogs
koma við sögu. Um tónlistina sjá
hjónin Regína Ósk og Svenni Þór.
Margt verður í boði á hlægilega
lágu verði, segir í tilkynningu frá
Hjálparstarfi kirkjunnar en
öll innkoma rennur til innan-
landsaðstoðar hjálparstarfsins.
Risaflóamarkaður
í Digraneskirkju
STUTT
ÚR BÆJARLÍFINU
Andrés Skúlason
Djúpivogur
Djúpavogshreppur er eitt þeirra
fáu sveitarfélaga á landsbyggðinni
sem hafa haldið tiltölulega háu hlut-
falli ungs fjölskyldufólks í byggð-
arlaginu, en sveitarfélagið hefur ein-
mitt lagt mikla áherslu á það á
undanförnum árum að byggja upp
góða grunnþjónustu fyrir þennan
mjög svo mikilvæga hóp fyrir hvert
samfélag. Síðastliðin tvö ár hefur
nýr leikskóli á Djúpavogi verið full-
setinn og er ekkert lát á barneignum
á svæðinu.
Atvinnuástand hefur verið mun
betra það sem af er vetri á Djúpa-
vogi en síðustu ár, en fáeinir ein-
staklingar vinna þó enn utan sveitar-
félagsins, m.a. í kringum
verktakastarfsemi í Noregi. Full-
yrða má að Álver Alcoa hafi ekki náð
að heilla atvinnuleitendur á Djúpa-
vogi enda er sá vinnustaður ekki tal-
inn fjölskylduvænn og ennþá síður
ásættanlegur fyrir virka ein-
staklinga sem vilja taka þátt í ein-
hverri félagsstarfsemi.
Samgöngumál eru íbúum á
Djúpavogi ofarlega í huga og eru
þeir mjög ósáttir um þessar mund-
ir við að horfa upp á að vegurinn
um Öxi fáist ekki ruddur svo íbúar
geti stytt sér leið hér innan svæðis.
Íbúar á Djúpavogi sækja alla
helstu þjónustu í Egilsstaði, auk
þess sem þar er flugvöllurinn og
framhaldsskólastigið og því liggur
það augljóslega fyrir þegar veg-
urinn um Öxi er ófær að íbúar eru
ekki sáttir við að þurfa að keyra
142 km krók í hvert sinn sem þeir
þurfa að sækja þjónustu út fyrir
bæinn.
Í vikunni féll svo stórt aurflóð í
Þvottárskriðum sem lokaði veginum
í margar klukkustundir og því má
með sanni segja að samgöngur til og
frá Djúpavogi séu með öllu óvið-
unandi úr báðum áttum.
Félagslíf er öflugt á Djúpavogi
og svo hefur verið um langa hríð og
eru jafnan reglulegir viðburðir og
uppákomur af einhverju tagi og
þátttaka góð.
Segja má að það séu þrjár nokk-
uð stórar samkomur á hverju ári á
Djúpavogi, þ.e. Hammond-hátíð sem
er 4 daga tónlistarveisla að vori, þá
Sviðamessa sem er fjölbreytt
skemmtidagskrá haldin á haustin, og
síðan þorrablótið í lok janúar. Milli
þessara viðburða er svo fjöldinn allur
af öðrum minni uppákomum sem
gerir Djúpavog að þeim líflega og
skemmtilega bæ sem hann er.
Ekkert lát á barneignum
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Djúpivogur Á sumardegi er fagurt um að litast við Berufjörðinn.
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Heilbrigðisstofnun Austurlands
(HSA) hefur fengið viðbótarfjármagn
frá ríkinu, um 30 milljónir króna,
vegna rekstrar þessa árs. Einar Rafn
Haraldsson, forstjóri HSA, segir
þetta gera það að verkum að ekki
þurfi að loka Fjórðungssjúkrahúsinu
í Neskaupstað í sumar, eins og til
stóð. Engu að síður verður sjúkra-
rúmum fækkað úr 23 í 12 yfir sum-
armánuðina en bæði skurð- og fæð-
ingardeildir verða opnar í sumar.
„Við erum búin að liggja yfir því í
nokkurn tíma að finna aðrar lausnir
og komumst hálfa leið innan stofnun-
arinnar. Velferðarráðuneytið tók þá
ákvörðun um mánaðamótin að leið-
rétta rekstrargrunninn um 30 millj-
ónir króna og það dugði til þess að
okkur tókst að loka áætluninni innan
tilskilins ramma,“ segir Einar Rafn
en HSA var samkvæmt fjárlögum
gert að skera niður um 70 milljónir
króna á þessu ári, þannig að segja má
að sú upphæð lækki um 30 milljónir.
Til að ná endum saman verður
sjúkrarúmum fækkað í Neskaupstað
um helming. Bendir Einar Rafn á að
legudeildir séu einnig á Seyðisfirði og
Egilsstöðum og svigrúm sé því til
staðar ef annríki verður meira en
venjulega í sumar. Annars verði að
treysta á sjúkraflutninga til Akureyr-
ar og Reykjavíkur. „Við munum
reyna að láta þetta ganga og erum
ánægð með að það gekk eftir að við
þyrftum ekki að loka í sumar. Það
hefði verið mjög slæmt.“
Getum ekki misst fleiri
Einar Rafn segir engar ákvarðanir
liggja fyrir um uppsagnir starfs-
manna, til að ná hagræðingarkröf-
unni fram sem eftir stendur. Sparnaði
verði frekar náð gegnum starfs-
mannaveltuna og með því að ráða
ekki í stað þeirra sem hætta. „Annars
erum við orðin það fáliðuð að við get-
um varla misst fleiri starfsmenn. Höf-
um orðið að fækka fólki það mikið á
síðustu þremur árum að þetta er orð-
ið mjög þröngt,“ segir Einar Rafn.
Heilbrigðisstofnanir hafa fengið
viðbótarfjármagn frá ríkinu að und-
anförnu, til að draga úr niðurskurði,
og eftir er að ganga frá rekstraráætl-
unum fleiri stofnana.
Hætt við lokun sjúkrahúss-
ins í Neskaupstað í sumar
MorgunblaðiðÁgúst Blöndal
Neskaupstaður Sjúkrahúsið verð-
ur opið í sumar, en færri sjúkrarúm.
Viðbótarfé fékkst frá ríkinu Fækka þarf sjúkrarúmum í sumar
Sófasett, hornsófar, svefnsófar, borðst.
Grazia 3-1-1 leður Sandy 3-1-1 tau.
Monaco hornsófi.
Athea borðstofhúsgögn Celtic svefnsófi.
Opið í dag 11 - 15