Morgunblaðið - 04.02.2012, Side 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2012
STUTTAR FRÉTTIR
● Engar eignir fundust í búi K08, félags
í eigu Ingvars Vilhjálmssonar, fyrrver-
andi framkvæmdastjóra markaðs-
viðskipta hjá Kaupþingi, en lýstar kröfur
í búið námu tæpum 7,8 milljörðum
króna.
Ingvar er einn þeirra starfsmanna
Kaupþings sem fluttu lán sín vegna
hlutafjárkaupa í Kaupþingi í einkahluta-
félög stuttu fyrir hrun.
Engar eignir í búi K08
● Ekkert fékkst upp í kröfur í þrotabú
Sólmons ehf. en stjórnarformaður fé-
lagsins var Magnús Ármann. Alls voru
lýstar kröfur í búið rúmir 3,3 milljarðar
króna. Sólmon var á sínum tíma í eigu
Materia Invest, eignarhaldsfélags
Magnúsar Ármanns, Þorsteins M. Jóns-
sonar og Kevins Stanfords.
Kröfuhafar Sólmons
töpuðu 3,3 milljörðum
Á mánudaginn, 30. janúar, var
stofnuð norræn sjávarútvegshug-
veita á fundi í Kaupmannahöfn.
Grímur Valdimarsson sem er í
stjórn hugveitunnar fyrir hönd Ís-
lands segir að hugmyndin hafi verið
að stofna umræðuvettvang um mót-
un nýtingarstefnu í sjávarútvegin-
um. „Sjávarútvegur skiptir Norður-
landaþjóðirnar miklu máli.
Norðmenn og Danir eru stórar fisk-
veiðiþjóðir og ef tekinn væri saman
fiskútflutningur allra Norðurlanda-
þjóðanna þá værum við stærsti fisk-
útflytjandi í heimi. En í dag er Kína
stærsti fiskútflytjandi heims. Vægi
fisksins mun bara aukast þegar
fram í sækir, enda eru alltaf að
koma nýjar og nýjar rannsóknir
sem sýna hversu holl fæða hann er.“
Að sögn Gríms hefur þessi hug-
veita verið lengi í smíðum. „Fyrir
nokkrum áratugum gátu menn veitt
og nýtt auðlindirnar án þess að
nokkurra spurninga væri spurt og
við gengum svolítið á þær. Svo fór-
um við kannski svolítið út í hinar
öfgarnar og umhverfisverndarsam-
tök og umhverfisverndarsjónarmið
urðu svolítið ráðandi. Það var geng-
ið svolítið langt í að láta veiðimenn
sanna að þeir yllu ekki neinum
skaða með veiðum sínum og sífelld
vottun var nauðsynleg. Þetta er
spurning um að finna eitthvert jafn-
vægi í þetta.“
Norræna sjávarútvegshugveitan
mun meðal annars fjalla um makríl-
deiluna í Norður-Atlantshafi,
stjórnun fiskveiða á alþjóðlegum
hafsvæðum, auk þess að skrá hvern-
ig fiskveiðar og önnur nýting sjávar
hefur áhrif á hafið. Í alþjóðlegum
umræðum er þörf á því að skilja á
milli staðreynda og, í versta falli,
rangra upplýsinga, segir í tilkynn-
ingu frá hugveitunni.
borkur@mbl.is
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Fiskurinn Nýtingarstefna er nauðsynleg þegar um mikilvægustu auðlind
landsins er að ræða. Sjávarútvegshugveita var stofnuð í vikunni.
Að móta nýting-
arstefnu um fisk
Norðurlandaþjóðirnar eru stærstar í
fiskútflutningi Sjávarútvegshugveita
FRÉTTASKÝRING
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Útlit fyrir meiri verðbólgu á fyrsta
fjórðungi ársins og vísbendingar um
kröftugri hagvöxt en fyrri spár hafa
gert ráð fyrir munu að öllum lík-
indum verða til þess að Seðlabanki
Íslands sjái sér ekki annað fært en
að hækka stýrivexti bankans 8. febr-
úar næstkomandi – annaðhvort um
25 punkta eða 50 punkta.
Að sögn viðmælenda Morg-
unblaðsins veltur mikið á vænt-
anlegri spá Seðlabankans í nýjum
Peningamálum sem verður birt sam-
hliða vaxtaákvörðun peningastefnu-
nefndar bankans í næstu viku. Fari
svo að uppfærð spá bankans geri ráð
fyrir kröftugri hagvexti, verðbólgu
og einkaneyslu þá er einsýnt að að-
haldsaðgerðir Seðlabankans muni
fara fyrr af stað en búist var við.
Að mati greiningardeildar Arion
banka er ennfremur líklegt að í kjöl-
farið fylgi önnur vaxtahækkun upp á
0,25 prósentur strax í mars. Fram
kom í yfirlýsingu peningastefnu-
nendar Seðlabankans í desember að
núverandi vaxtastig – 4,75% stýri-
vextir – virtist vera um það bil við
hæfi á komandi mánuðum. Rétt eins
og greiningardeild Arion banka
bendir á var það mat hins vegar
byggt á framvindu verðbólgunnar
sem nú hefur þróast í þá átt að vera
umtalsvert meiri en fyrri spár gerðu
ráð fyrir. Þrálátari verðbólga en von-
ir stóðu til mun því að öðru óbreyttu
leiða til þess að Seðlabankinn þarf að
auka aðhald peningastefnunnar.
Seðlabankinn lækkaði í nóvember
síðastliðnum verðbólguspá sína fyrir
fyrsta fjórðung þessa árs úr 6,5% í
6%. Þrátt fyrir að tólf mánaða verð-
bólga í janúar hafi hækkað um 1,3%
milli mánaða – margfalt meira en
spár greinenda gerðu ráð fyrir – þá
telur einn viðmælandi Morgunblaðs-
ins mikilvægt að oftúlka ekki þá
hækkun og bendir á að ef tekið sé
mið af meðalspám greiningaraðila þá
megi búast við að verðbólga verði
um 6,2% á ársgrundvelli á fyrstu
þremur mánuðum ársins.
Það hlýtur hins vegar að vera
áhyggjuefni fyrir peninga-
stefnunefnd Seðlabankans að verð-
bólguvæntingar – mældar sem mun-
ur á ávöxtunarkröfu óverðtryggðra
og verðtryggðra ríkisskuldabréfa –
eru enn töluvert yfir verðbólgu-
markmiði Seðlabankans. Á það er
bent í vikulegu fréttabréfi verð-
bréfafyrirtækisins Júpiters að verð-
bólguálag á skuldabréfamarkaði hef-
ur hækkað skarpt samfara
verðlækkun á löngum óverð-
tryggðum skuldabréfum. „Vænt-
ingar markaðarins um vaxtahækkun
og verðbreytingar markflokka geta í
kjölfarið aukið líkur á vaxtahækk-
un.“
Markaðsaðilar vænta 25 eða 50 punkta stýrivaxtahækkunar í næstu viku
Virkir stýrivextir Seðlabanka Íslands
og verðbólga (%)
10%
9%
8%
7%
6%
5%
4%
3%
2%
1%
0%
J F M A M J J Á S O N D J F M A M J J Á S O N D J F M A
2010 2011 2012
Spá fyrir
næstu
mánuði
Virkir stýrivextir
Ársverðbólga
Heimild: Greiningardeild Arion banka
Fer svipan á loft?
» Peningastefnunefnd
Seðlabankans tilkynnir vaxta-
ákvörðun sína næstkomandi
miðvikudag
» Flestir greinendur á mark-
aði eru sannfærðir um að
vextir verði hækkaðir um
0,25 prósentur. Önnur vaxta-
hækkun gæti fylgt í næsta
mánuði.
» Vísbendingar eru um að
verðbólgan muni reynast
þrálátari en að sama skapi
gæti hagvöxturinn orðið
kröftugri á þessu ári.
Vaxtahækkanir í kort-
unum hjá Seðlabankanum
Eigendur að 36%
hlut í Íslenskum
verðbréfum hf.
hafa falið Fyr-
irtækjaráðgjöf
Íslandsbanka hf.
að annast form-
legt ferli sem
lýtur að mögu-
legri sölu á eign-
arhlut sínum í fé-
laginu. Þessi
hlutur er í dag í eigu Íslandsbanka
hf., Hildu hf. og Sparisjóðs Þórs-
hafnar og nágrennis. Þetta kemur
fram í tilkynningu frá Íslands-
banka.
Íslensk verðbréf hf. er sjálfstætt
starfandi eignastýringarfyrirtæki
sem þjónar einstaklingum.
36% hlut-
ur í boði
Íslandsbanki
Íslensk verðbréf
hf. í opið söluferli
Afgangur af vöruskiptum í janúar
er mun meiri en hann var í janúar í
fyrra, eða sem nemur um 49% á
föstu gengi, og einnig meiri en
hann hefur að jafnaði verið síðasta
árið.
Þannig nam afgangurinn af vöru-
skiptum í janúar í fyrra um 8,1
milljarði kr. reiknað á sama gengi,
sem er svipað og hann var að með-
altali í mánuði hverjum síðasta ár-
ið. Samkvæmt bráðabirgðatölum
Hagstofu Íslands var afgangurinn
12 milljarðar í janúar 2012. Meiri
útflutningur sjávarafurða skipti
mestu í þessu.
Afgangur af
vöruskiptum
!"# $% " &'( )* '$*
+,,-./
+0/-0,
+,,-.1
,+-200
,+-324
+5-,/1
+//-50
+-234+
+50-0
+2+-/+
+,,-1,
+0.-/0
+,,-5/
,+-12,
,+-+,1
+5-,0
+/.-,2
+-2305
+03-.1
+2+-12
,,,-31
+,/-3+
+0.-52
+,/-+0
,+-5,4
,+-+50
+5-/./
+/.-2/
+-2+.4
+0+-3.
+2,-,+
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
TILBOÐ
á 1 lítra
Kókómjólk
Hátíð í hjarta
Reykjavíkur!
L A N G U R L A U G A R D A G U R
Allir velkomnir á Austurvöll
laugardaginn 4. febrúar kl. 14:00
sjá nánar Kærleikar
á facebook
Við kveikjum ljós í skammdeginu á Löngum
laugardegi og göngum Kærleiksgöngu.
Verum, gerum og njótum
þar sem hjartað slær!