Morgunblaðið - 06.02.2012, Page 9
Ferðakostnaður
Alþingis erlendis
árið 2011
Meðalkostnaður á hvern ferðalang
Alþingis: 308.711 kr.
Þingmenn sem fóru í
utanlandsferðir 40
Fjöldi ferðalaga (í flestum
fara fleiri en einn) 69
Heildarfjöldi ferða þingmanna 155
Heildarfjöldi ferða
starfsmanna Alþingis 66
Fargjöld 31.052.703 kr.
Dagpeningar 19.578.833 kr.
Dvalarkostnaður 14.197.721 kr.
Samtals 64.829.257 kr.
BAKSVIÐ
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Kostnaður við utanlandsferðir al-
þingismanna nam alls ríflega 64
milljónum króna í fyrra. Ferðir ráð-
herra eru ekki taldar með því þær
eru greiddar af viðkomandi ráðu-
neyti og ekki fóru heldur allir þing-
menn til útlanda. Kostnaður við al-
þjóðasamstarf nam 80 milljónum
árið 2008 og 172 milljónum árið 2007
en þá var hér haldið NATO-þing.
Á vef Alþingis má sjá allar þær
ferðir sem farið var í árið 2011 og
hverjir fóru, jafnt þingmenn sem
starfsmenn þingsins. Þar má sjá að
40 þingmenn fóru til útlanda í 69
ferðir. Samtals voru þingmannaferð-
irnar 155. Þingmannaleiðirnar voru
misjafnlega langar. Flestar voru til
Kaupmannahafnar í tengslum við
norrænt samstarf og til Brussel í
tengslum við Evrópusamstarf.
Einna lengstu ferðirnar voru til
Víetnam, á fund framkvæmda-
stjórnar þingmannanefndar EFTA,
og til Panamaborgar til að sækja
124. þing Alþjóðaþingmanna-
sambandsins.
Ferðir á hvern þingmann eru afar
mismargar enda láta þeir misjafn-
lega mikið til sín taka í alþjóðlegu
samstarfi.
Árni Þór Sigurðsson, formaður
utanríkismálanefndar og formaður
Íslandsdeildar þingmannanefndar
EFTA og EES, fór í flestar utan-
landsferðir, alls 16. Helgi Hjörvar,
sem á sæti í utanríkismálanefnd og
er formaður Íslandsdeildar Norð-
urlandaráðs, fór í ellefu ferðir. Ell-
efu þingmenn fóru í fimm til átta
ferðir, sextán þingmenn fóru í tvær
til fjórar ferðir og ellefu þingmenn
fóru í eina ferð.
Í um helmingi allra ferða á vegum
Alþingis fara þingmenn einir, oftast
þó með starfsmann þingsins með
sér. Í öðrum fara þeir tveir eða fleiri
saman. Fjölmennasta sendinefndin
fór á fund sameiginlegrar þing-
nefndar Íslands og Evrópusam-
bandsins eða níu þingmenn og einn
starfmaður Alþingis. Næstflestir
voru í nefndarferð utanríkismála-
nefndar til Helsinki, Tallinn, Riga og
Kaupmannahafnar í september í
fyrra eða alls átta þingmenn og einn
starfsmaður. Sjö þingmenn og einn
starfsmaður fóru á janúarfund
Norðurlandaráðs í Esbo, sex þing-
menn fóru á þemaráðstefnu Vest-
norræna ráðsins í Færeyjum í júní,
ásamt tveimur starfsmönnum, og
sami fjöldi fór á marsfund Norð-
urlandaráðs í Stokkhólmi í mars.
Ferðakostnaður Alþingis bliknar
hjá ferðakostnaði starfsmanna ráðu-
neytanna en upplýst hefur verið að
fargjöld og dagpeningar þeirra
námu alls 1,2 milljörðum króna á
fyrstu níu mánuðum þessa árs.
Utanferðir Alþingis kostuðu 64 milljónir
40 þingmenn fóru í utanlandsferðir
á vegum Alþingis í fyrra Oftast farið
til Kaupmannahafnar og Brussel Sá
sem fór oftast fór 16 sinnum til útlanda
Þingmenn í ferðalögum 2011
Arkhangelsk 1
Azores-eyjar 1
Árósar 1
Belgrad 1
Bern 1
Brussel 6
Búdapest 3
Búkarest 1
Dubrovnik 1
Edinborg 1
Esbo 1
Genf 1
Haag 1
Helsinki 3
Kaupmannahöfn 7
Kænugarður 2
Lofoten 1
Málmey 1
Murmansk 1
New York 1
Nuuk 1
Ósló 4
Panamaborg 1
Pskov 1
Riga 3
San Diego 1
Washington 1
Víetnam 1
Þórshöfn 2
Tromsö 3
Stokkhólmur 2
Turku 1
Valletta 1
Strassborg 5
Varna 1
Varsjá 3
Tallin 2
Svalbarði 1
Vín 2
Vaduz 1
Syktyvkar 1
[Rauðu tölurnar tákna fjölda ferða]
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2012
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
sé
r
ré
tt
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
.a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
41
63
2
Frá kr. 199.800
Ferð fyrir eldri borgara
Heimsferðir gerir eldri borgurum frábært tilboð í ferð til Benidorm í vor. Einstakt sértilboð með
gistingu á Hotel Mediterraneo. Gríptu þetta frábæra tækifæri og njóttu lífsins í vor á Benidorm á
ótrúlegum kjörum. Fjölbreytt dagskrá í boði í fylgd fararstjóra Heimsferða.
Benidorm
Sértilboð
199.800 á mann í tvíbýli
með allt innifalið 20. apríl í 19 nætur
250.900 á mann í tvíbýli
með allt innifalið 20. apríl í 26 nætur
289.900 á mann í tvíbýli
með allt innifalið 20. apríl í 33 nætur
Tilboðið gildir til 15. febrúar!
Eftir það hækkar verðið um 10.000 kr.
með öllu inniföldu
20. apríl í 19, 26 eða 33 nætur