Morgunblaðið - 06.02.2012, Blaðsíða 13
Almenni
» Sjóðfélagar kjósa stjórn Al-
menna lífeyrissjóðsins á árs-
fundi. Lífeyrissjóðurinn er op-
inn öllum en jafnframt
starfsgreinasjóður arkitekta,
lækna, leiðsögumanna, hljóm-
listarmanna og tæknifræðinga.
» Almenni lífeyrissjóðurinn
seldi hlutabréf í Kaupþingi fyrir
170 milljónir á síðasta ársfjórð-
ungi 2008 og jók eign sína í
Glitni sem því nam. Sjóðurinn
keypti mikið í FL Group 2007 í
gegnum verðbréfasjóði Glitnis.
Sunna Ósk Logadóttir
sunna@mbl.is
Hlutabréfaeign Almenna lífeyris-
sjóðsins var fyrir hrun áberandi mest
í Glitni eða allt að 77% af hlutabréfa-
safninu í árslok 2006. Lengi vel var
stór hluti af eignum lífeyrissjóðsins
ávaxtaður í verðbréfasjóðum Glitnis.
Með rekstrarsamningi var Glitni falin
stjórn og rekstur sjóðsins í mörg ár
og eru þessi tengsl gagnrýnd í
skýrslu úttektarnefndar á vegum
Landssamtaka lífeyrissjóða.
Áætlað tap Almenna lífeyrissjóðs-
ins á árunum 2008–2010, er 29,7 millj-
arðar króna. Í ársreikningum sjóðs-
ins eru gjaldmiðlavarnarsamningar
við bankana hins vegar gerðir upp
sem þýðir m.ö.o. að ársreikningur
sjóðsins sýnir verstu mögulegu stöðu
á samningunum gagnvart bönkunum.
Samkvæmt því yrði tap sjóðsins 33,2
milljarðar króna. Sjóðurinn er nú
fimmti stærsti lífeyrissjóður landsins.
Í skýrslunni er mikið fjallað um
tengsl sjóðsins við Glitni en Almenni
lífeyrissjóðurinn og sjóðir þeir sem
sameinuðust í honum, höfðu um tutt-
ugu ára skeið rekstrarsamning við Ís-
landsbanka/Glitni sem fól í sér að
bankinn sá alfarið um framkvæmda-
stjórn og daglegan rekstur sjóðsins.
„Ástæða er til að hyggja aðeins að
svona nánu sambandi banka og lífeyr-
issjóðs,“ segir í skýrslunni.
Á árunum fyrir hrun var stór hluti
af eignum Almenna lífeyrissjóðsins
ávaxtaður í verðbréfasjóðum Glitnis.
Þannig voru 29.134 milljónir króna af
eignum sjóðsins vistaðar í Glitnissjóð-
um í lok árs 2006 en það svaraði til
35% af hreinni eign sjóðsins til
greiðslu lífeyris.
Þá var hlutabréfaeign sjóðsins
áberandi mest í Glitni eða allt að 77%
af hlutabréfasafninu í árslok 2006.
Almenni lífeyrissjóðurinn tók þátt í
skuldabréfaútboði bankans í mars ár-
ið 2008. Um var að ræða útboð á svo-
kölluðum „víkjandi og breytanlegum
skuldabréfum“. Skuldabréfin voru án
gjalddaga. Almenni lífeyrissjóðurinn
keypti skuldabréf fyrir 1.620 milljónir
króna sem töpuðust að fullu strax við
fall bankanna.
Banki og lífeyrissjóð-
ur í nánu sambandi
Almenni lífeyrissjóðurinn setti mikla fjármuni í Glitni
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2012
H
a
u
ku
r
0
9
b
.1
1
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Haukur Halldórsson hdl.
haukur@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
lögg. verðbr.- og fasteignasali,
brynhildur@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Jens Ingólfsson
rekstrarhagfræðingur,
jens@kontakt.is
Sigurður A.
Þóroddsson hrl.
sigurdur@kontakt.is
Forgangslisti er nýjung fyrir kaupendur og fjárfesta.
Skráning á www.kontakt.is
• Skráðu þig á forgangslista og við sendum þér reglulega upplýsingar í
tölvupósti um tækifæri sem við getum ekki sett í auglýsingar.
Upplýsingar og skráning á www.kontakt.is.
• Heildverslun með vinsælar sérvörur. Ársvelta 70 mkr. EBITDA 15 mkr.
• Rótgróin tölvuverslun óskar eftir góðum sölumanni sem meðeiganda.
Viðkomandi gæti eignast fyrirtækið allt eftir nokkur ár þegar núverandi
eigandi hættir vegna aldurs. Fyrirtækið er með góðar vörur bæði fyrir
einstaklinga og fyrirtæki. Fjárhagsstaða er góð og félagið skuldlaust.
Sameining við annað fyrirtæki kemur einnig til greina.
• Sérhæfð verslun með vaxandi veltu og góða framlegð. Ársvelta 70 mkr.
EBITDA 20 mkr. Engar skuldir.
• Spennandi fylgihlutaverslun á besta stað í Kringlunni.
• Heildsala með þekktan tískufatnað. Selur vörur í 20 verslunum um land allt,
auk 5 eigin verslanna, m.a. í Kringlunni og Smáralind. Ársvelta um 260 mkr.
• Allt að 100% hlutur í litlu framleiðslufyriræki í málmiðnaði sem er mjög vel
tækjum búið. Sameining kemur til greina.
• Spennandi sérverslun í miðbæ Reykjavíkur. Verslunin er vel þekkt og hefur
langa og stöðuga rekstrarsögu. Ársvelta um 65 mkr. og EBITDA um 10% af
veltu. Orðspor, saga og staðsetning bjóða upp á spennandi möguleika á að
þróa reksturinn frekar.
– fyrst og
fremst
ódýr!
TILBOÐ
99kr.kg
Kartöflur í lausu
998kr.kg
Ýsuflök með roði
– aðeins í
dag!
Takmarka
ð magn
Fylgstu með í MBL sjónvarpi
alla mánudaga
Marta María ræðir við
einstaklinga sem glímt hafa við
offitu og haft betur í baráttunni.
Afskriftir hjá Lífeyrissjóði verk-
fræðinga á skuldabréfum banka
og sparisjóða árin 2008-2010 voru
næstum því helmingi hærri en öll
lífeyrisiðgjöld til sjóðsins á árinu
2009.
Þetta er á meðal þess sem fram
kemur í umfjöllun um sjóðinn í
nýútkominni skýrslu úttekt-
arnefndar Landssamtaka lífeyr-
issjóða.
Afskriftirnar námu samtals
rúmlega 5,1 milljarði króna.
Langmestu afskriftirnar voru hjá
Kaupþingi banka, 2.122 mkr., og
Glitni banka, 2.068. mkr.
Á meðal annarra stórra af-
skrifta hjá sjóðnum má nefna 276
mkr. afskriftir hjá VBS fjárfest-
ingarbanka og 182 mkr. afskriftir
hjá Landsbanka Íslands. Aðrar af-
skriftir námu samtals um 506
mkr. skulih@mbl.is
Afskriftir voru
næstum helmingi
hærri en iðgjöld
finnst miður að
lífeyrissjóðir hafi
tapað fjármunum
á Baugi Group hf.
Ég minni þó á að
skiptum á þrota-
búinu er ekki lok-
ið og Baugur Gro-
up hf. hafði greitt
þeim háar fjár-
hæðir í vexti á ár-
unum á undan.“
Jón Ásgeir hafnar því alfarið að
bera ábyrgð á tapi lífeyrissjóðanna á
Glitni banka hf. „Lífeyrissjóðirnir í
landinu höfðu fjárfest í Glitni banka
hf. frá stofnun hans, bæði í hlutabréf-
um og skuldbréfum. Lífeyrissjóð-
irnir voru stórir hluthafar bankans,
þegar FL Group hf. eignaðist 29% í
Glitni á vormánuðum 2007. Á þeim
tíma átti Baugur 20% í FL Group hf.
og átti því beint og óbeint 9% hlut í
Glitni banka hf þegar mest var. Ég
fellst ekki á að hægt sé að kenna mér
Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrum að-
aleigandi Baugs Group hf., hafnar
því alfarið að bera ábyrgð á tapi líf-
eyrissjóðanna á Glitni banka. Þetta
er meðal þess sem kemur fram í yf-
irlýsingu Jóns Ásgeirs um lífeyr-
issjóðaskýrsluna. Þar kemur m.a.
fram að Baugur Group hf. hafi borið
ábyrgð á 77 milljarða tapi lífeyr-
issjóðann aí gegnum beina og óbeina
eignarhluti.
Jón Ásgeir segir í yfirlýsingunni
að tvö fyrirtæki, sem voru undir hans
yfirráðum, Hagar hf. og Baugur Gro-
up hf, hafi fengið lánsfé frá lífeyr-
issjóðum.
„Hagar hf. greiddu upp allar
skuldir alls 8. 7 milljarða með vöxtum
við lífeyrissjóðina í október 2009 – á
þeim tíma eitt íslenskra fyrirtækja.
Lán lífeyrissjóðanna til Baugs
Group hf. voru að fjárhæð 4,8 millj-
arðar. Þessar lánveitingar námu
1,5% af efnahag Baugs Group hf. og
1% af tapi lífeyrissjóðanna. Mér
eða Baugi Group hf. um 47 milljarða
tap lífeyrissjóðanna á Glitni banka
hf., sem er m.a. vegna fjárfestinga
fyrir árið 2007, þegar ég eða aðilar
mér tengdir höfðu engan snertiflöt
við bankann né stjórnuðum fjárfest-
ingum lífeyrissjóða hvorki þá né
seinna.“
Þá segir Jón Ásgeir að Landic hf.,
FL Group hf. og Teymi hf. hafi ekki
verið undir meirihluta yfirráðum
hans eða Baugs Group hf.. Þessi fyr-
irtæki hafi gengið í gegnum nauða-
samninga og lífeyrissjóðir eignast
hlutafé í þeim. „Hvers virði þau
verða á endanum hefur ekki enn ver-
ið leitt í ljós – en umræða um að allt
sé tapað er ábyrgðarlaus.
Það eru forsvarsmenn lífeyrissjóð-
anna, sem báru ábyrgð á fjárfest-
ingum þeirra og engir aðrir.“
Jón Ásgeir segir að hrunið verði
ekki gert upp í „einsleitum
skýrslum“ og telur sannleiksnefnd
fyrir opnum tjöldum betri kost.
Jón Ásgeir Jóhannesson
hafnar alfarið ábyrgð
Forsvarsmenn lífeyrissjóða báru ábyrgð á fjárfestingum
Jón Ásgeir
Jóhannesson