Morgunblaðið - 06.02.2012, Síða 23
DAGBÓK 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2012
Orð dagsins: Guð hefur uppvakið oss í
Kristi Jesú og búið oss stað í him-
inhæðum með honum. (Ef. 2, 6. )
Enn eru Víkverja netmál hug-leikin. Hann hefur tekið eftir
því á síðustu vikum að svo virðist
sem fólk verði alltaf kræfara og
kræfara á samskiptavefjunum. Sem
dæmi má nefna nýlegan eld sem fór
um sinu Snjáldurskinnu þegar frétt-
ir bárust af andstöðuhópi við bygg-
ingu mosku sem hafði verið settur
saman á téðum vef. Þetta tilfelli er
samt nokkuð sögulegt. Það er mjög
sjaldan sem fólk virðist standa sam-
an og rísa upp gegn mismunun,
sama hvers eðlis hún kann að vera
og mætti ætla að tilvikið áðurnefnda
kallaði á frekari skoðun.
x x x
Snjáldra er nokkuð víðtækur vef-ur, svo ekki sé dýpra í árinni
tekið og þar hafa blómstrað ýmsir
hópar fólks sem standa saman til að
fá einhverju ágengt. Oftar en ekki
eru þessir hópar settir saman í góð-
gerðarskyni og aðstandendur þeir
sem vilja styðja við bakið á ein-
hverju eða einhverjum og þá er oft-
ast fátt út á að setja. Einstöku sinn-
um virðist Víkverji þó rekast á hópa
fólks sem hefur sett sig í andstöðu
við málefni, oftast er það skiljanleg
andstaða við ósanngirni hvers konar
eða óréttlæti, en þó ekki alltaf.
x x x
Andstæðingar byggingar mosku áÍslandi eru, þegar þetta er rit-
að, 1.570 talsins sem gerir þá vissu-
lega að minnihlutahópi og þess
vegna finnst fólki kannski auðveld-
ara að úthrópa fáránleikann sem
settur er fram innan vébanda þessa
hóps. Það ber svo að athuga að hóp-
urinn er opinn og öllum aðgengileg-
ur þannig að það sem fer þar fram er
ekki einkamál þeirra sem að honum
standa heldur opinber skrif. Það er
aðdáunarvert hversu margir hafa
tekið fyrir fordómana og lokað á þá
sem setja nafn sitt við hræðsluáróð-
urinn sem þarna fer fram undir yf-
irskini öryggismála. Það er spurning
hvort fólk fari svo að hópa sig saman
og setja sig upp á móti yfirgrips-
meiri málefnum eins og kynbundnu
ofbeldi eða launamun kynjanna eða
eru það kannski of viðkvæm mál?
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 refur, 8 skán-
in, 9 kjaga, 10 greinir,
11 ávöxtur, 13 eldstæði,
15 æki, 18 gort, 21 kven-
dýr, 22 birgðir, 23
slétta, 24 spjalla.
Lóðrétt | 2 böggla, 3 grjót-
skriðan, 4 höfuðklútur, 5 ljós-
færi, 6 spil, 7 fornafn, 12 blóm,
14 stormur, 15 rótgróinn siður,
16 frægðarverk, 17 al, 18 skjá-
gluggi, 19 slitið, 20 mólendi.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hefja, 4 flóra, 7 ruður, 8 rýjan, 9 akk, 11 Anna, 13 þrár,
14 kolla, 15 hopa, 17 kukl, 20 ask, 22 rytju, 23 umbun, 24 innra,
25 bytta.
Lóðrétt: 1 harða, 2 fæðin, 3 arra, 4 fork, 5 ósjór, 6 asnar, 10
kólfs, 12 aka, 13 þak, 15 horfi, 16 pútan, 18 umbót, 19 lynda, 20
ausa, 21 kubb.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
6. febrúar 1826
Timburstofan á Möðruvöllum í
Hörgárdal og tvö önnur hús
brunnu til kaldra kola ásamt
miklu af amtsskjölum og fjár-
munum.
6. febrúar 1958
Naustið bauð þorramat, fyrst
íslenskra veitingahúsa, reidd-
an fram í trogum. Í frétt
Morgunblaðsins var tekið
fram að með þorramat væri
átt við „íslenskan mat, verk-
aðan að fornum hætti, reykt-
an, súrsaðan og morkinn“.
6. febrúar 1971
Frönskukennsla hófst í Sjón-
varpinu. Vigdís Finnboga-
dóttir annaðist kennsluna en
henni til aðstoðar var Gérard
Vautey.
6. febrúar 1998
Vala Flosadóttir setti heims-
met í stangarstökki kvenna
innanhúss á móti í Bielefeld í
Þýskalandi, stökk 4,42 metra.
„Þetta var yndislegt,“ sagði
Vala í samtali við Morg-
unblaðið.
6. febrúar 1999
Steingrímur J. Sigfússon var
kosinn formaður „Vinstri
hreyfingarinnar – græns
framboðs“ á stofnfundi henn-
ar. Í Alþingiskosningum
þremur mánuðum síðar fékk
hreyfingin sex þingmenn
kjörna.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Ég held alltaf upp á afmælið. Er mikill veislu-
maður og finnst gaman að bjóða fólki heim. Það er
leiðinlegt að eiga afmæli að vetri til því ég vil hafa
gott veður og vera úti,“ segir Jón Þór Brynj-
arsson, stálvirkjasmiður á Hjalteyri við Eyjafjörð,
sem verður fimmtugur í dag.
Jón Þór er að vinna á afmælisdaginn, í þjónustu-
miðstöð Hörgársveitar. Því ætlaði hann að vera
með kaffiboð fyrir fjölskylduna í gær. Hann er
giftur Lilju Gísladóttur og á þrjú börn og fóst-
urdóttur. „Svo verður heljarinnar veisla síðustu
helgina í júní. Matseðillinn verður í anda þess sem
ég hef verið að gera. Ég vann lengi við lúðueldi og því verður boðið
upp á lúðu. Ég hef mikinn áhuga á veiðimennsku og verð með villi-
bráð,“ segir Jón Þór og bætir við: „Öllum sem þekkja mig er boðið og
þá kemur í ljós hvað margir vilja það.“ Hann bendir á að kosturinn við
að fresta afmælisveislunni sé sá að hann verði 49 ára aðeins lengur.
Hluti af starfi Jóns Þórs er að annast snjómokstur á vegum sveitar-
félagsins. Hann hefur því verið í sífelldri baráttu við snjó og sér-
staklega svell frá því í lok nóvember. Vonast hann til þess að þeim
kafla sé nú lokið. helgi@mbl.is
Jón Þór Brynjarsson undirbýr veislu
49 ára aðeins lengur
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú ert hugrakkur – jafnvel hugrakk-
ari en vanalega. Gerðu ráð fyrir því að sinna
skapandi störfum á næstunni.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Einhver kemur þér skemmtilega á
óvart svo taktu þátt í gamninu. Enda hafa
ekki allir sömu skoðanir og þú og það ber að
virða.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Fræðilega séð ertu á móti því að
verða einn af hópnum. Mundu að þótt auð-
velt sé að taka lán þá getur verið erfitt að
standa í skilum.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú finnur fyrir sigurtilfinningu í dag
og átt auðvelt með að setja hlutina í sam-
hengi. Hvaða ánægju leitar þú? Hafðu ávallt í
huga að leggja þig allan fram til að ná því.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú sérð ekki fram úr augum vegna
anna og þarft að komast frá í smátíma. Og
ótrúlegt en satt: það verður auðvelt.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú hefur lokað á sköpunarhæfileika
þína um tíma svo nú verður ekki lengur við
unað. Aðalmálið er að finna sjálfum sér tíma.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Gættu þess að bregðast ekki of hart við
minniháttar málum. Stundum er vinnan
skemmtilegri en besta skemmtun, finnst þér.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þér hættir til að vera of ráðríkur
og þú þarft að gæta þess að gera ekki meiri
kröfur til annarra en þú gerir til sjálfs þín. En
alvara lífsins tekur alltaf við aftur.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Áður en þú verðlaunar sjálfan þig
með einhverju uppátæki skaltu ganga úr
skugga um að öllum skyldustörfum sé lokið.
Andaðu djúpt og hugsaðu áður en þú talar.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú þarft að búa svo um hnútana
að ekki verði hægt að koma þér á óvart með
aðfinnslum við starf þitt. Aðrir líta til þín um
forustu svo þú mátt hvergi bregðast.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú hefur dregið að þér ögrandi
fólk upp á síðkastið. Reyndu að tína það úr
sem er þér að gagni en láttu hitt lönd og
leið.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Nú er komið að þér að láta ljós sitt
skína. Ekki verða hissa þótt þeir sem eru í
kringum þig njóti óbeinnar ánægju af við-
fangsefnum þínum.
Stjörnuspá
Sudoku
Frumstig
5 2 8
9 1
4
1 5 6
8 2
4 6 5 9
9 1 2
1 6 8 7
7 2 6
5 9
6
9
3 5 2 4 6
7 9 4
7 8 3
4 8
6 8 5
7 5 3 6
5 1
8
2 1 8 4 7
7 5 8
2 5 1
1 6 7
5 7 9
6
8 4 2 6
3 6 7 4 8 2 1 9 5
9 5 4 6 3 1 2 8 7
8 1 2 5 9 7 4 6 3
6 8 3 9 2 5 7 4 1
4 2 1 3 7 8 9 5 6
5 7 9 1 6 4 8 3 2
1 9 5 7 4 6 3 2 8
2 3 6 8 1 9 5 7 4
7 4 8 2 5 3 6 1 9
5 1 6 2 3 9 4 8 7
9 4 7 8 6 1 2 5 3
8 2 3 4 5 7 9 1 6
1 6 2 5 7 4 3 9 8
4 3 9 6 1 8 5 7 2
7 8 5 3 9 2 6 4 1
3 7 4 1 2 5 8 6 9
2 5 1 9 8 6 7 3 4
6 9 8 7 4 3 1 2 5
1 2 7 8 6 9 3 4 5
8 6 4 7 5 3 2 9 1
5 3 9 2 4 1 6 7 8
3 7 2 4 9 8 1 5 6
4 5 8 1 7 6 9 2 3
6 9 1 3 2 5 4 8 7
2 4 3 5 1 7 8 6 9
9 1 5 6 8 4 7 3 2
7 8 6 9 3 2 5 1 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 6. febrúar, 37. dag-
ur ársins 2012
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Léttvægur munur.
Norður
♠ÁK92
♥DG
♦ÁD
♣Á8643
Vestur Austur
♠G108 ♠4
♥ÁK763 ♥1092
♦K83 ♦G1094
♣52 ♣KD1097
Suður
♠D7653
♥854
♦7652
♣G
Suður spilar 4♠.
Vestur tekur tvo slagi á ♥Á-K, en
skiptir síðan yfir í lauf. Sagnhafi
drepur á ♣Á og leggur niður ♠Á-K.
Hverju á austur að henda í síðara
trompið?
Skoðum kostina, einn af öðrum: (1)
Ef austur hendir laufi fríast það
fimmta á endanum. (2) Hendi austur
tígli er nóg að stinga einu sinni tígul í
borði. (3) Að lokum – ef austur kastar
hjarta verður átta suðurs góð og þá
er hægt að trompa tígul tvisvar. Í öll-
um tilfellum fær vörnin aðeins slag á
♠G í viðbót.
Spilið kom upp í sveitakeppni
Bridshátíðar, síðasta leik. Reyndar
ekki nákvæmlega í þessari mynd, því
suður var með ♥7xx, en vestur
♥ÁK8xx. Sá fyrirfram léttvægi mun-
ur skipti sköpum, því austur gat þá
hent hjarta útgjaldalaust.
Flóðogfjara
6. febrúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 5.34 3,7 11.53 0,8 17.55 3,5 9.54 17.30
Ísafjörður 1.26 0,3 7.32 2,0 14.00 0,3 19.57 1,8 10.13 17.21
Siglufjörður 3.38 0,3 9.51 1,2 16.16 0,1 22.33 1,1 9.57 17.03
Djúpivogur 2.52 1,8 9.03 0,4 15.00 1,6 21.05 0,2 9.27 16.56
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
1. c4 Rf6 2. g3 e6 3. Bg2 d5 4. d4 Be7 5.
Rf3 O-O 6. O-O dxc4 7. Dc2 b5 8. a4 b4 9.
Bg5 Rbd7 10. Re5 Rxe5 11. Bxf6 gxf6
12. dxe5 Hb8 13. Hd1 De8 14. Dxc4 Bb7
15. Bxb7 Hxb7
Staðan kom upp í C-flokki Corus-
skákhátíðarinnar sem lauk fyrir
skömmu í Wijk aan Zee í Hollandi.
Sænski stórmeistarinn Hans Tikkanen
(2549) hafði hvítt gegn heimamanninum
Etienne Goudriaan (2279). 16. Dg4+
Kh8 17. exf6 Bxf6 18. Df3! hvítur vinn-
ur nú mann. Framhaldið varð eftirfar-
andi: 18…Bxb2 19. Ha2 Hb6 20. Hxb2
f6 21. Hbd2 e5 22. a5 Ha6 23. Hd7 Hxa5
24. Hd8 og svartur gafst upp. Loka-
staða efstu manna varð eftirfarandi: 1.
Maxim Turov (2645) 10 1/2 vinning af 13
mögulegum. 2. Hans Tikkanen (2549) 10
v. 3.-4. Daan Brandenburg (2527) og
Baskaran Adhiban (2561) 8 1/2 v.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is