Morgunblaðið - 20.02.2012, Page 24

Morgunblaðið - 20.02.2012, Page 24
24 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 2012 Sudoku Frumstig 4 5 7 9 5 7 2 4 3 9 6 1 6 7 2 3 1 6 4 5 3 9 6 4 2 2 9 3 7 5 1 4 2 8 5 7 9 7 4 3 2 7 8 5 4 8 5 4 9 2 8 9 8 4 7 5 6 3 7 2 5 1 8 9 9 5 7 2 1 3 6 5 4 7 4 9 6 5 3 7 2 1 8 5 7 3 1 2 8 9 6 4 8 1 2 9 6 4 7 3 5 6 3 5 8 1 2 4 7 9 7 4 1 6 5 9 8 2 3 2 8 9 4 7 3 6 5 1 1 5 4 2 8 6 3 9 7 9 6 7 3 4 5 1 8 2 3 2 8 7 9 1 5 4 6 9 2 8 3 7 1 5 6 4 4 3 6 5 2 9 8 7 1 7 1 5 8 4 6 3 2 9 2 4 3 9 6 8 1 5 7 8 6 9 7 1 5 2 4 3 1 5 7 2 3 4 9 8 6 6 9 2 1 8 7 4 3 5 5 8 4 6 9 3 7 1 2 3 7 1 4 5 2 6 9 8 3 1 7 8 9 2 6 5 4 4 8 2 6 3 5 9 1 7 6 9 5 7 4 1 2 3 8 8 4 3 2 7 9 1 6 5 2 6 1 5 8 4 7 9 3 5 7 9 1 6 3 8 4 2 1 5 4 9 2 7 3 8 6 9 2 6 3 5 8 4 7 1 7 3 8 4 1 6 5 2 9 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er mánudagur 20. febrúar, 51. dagur ársins 2012 Orð dagsins: Þú hefur elskað réttlæti og hatað ranglæti. Því hefur Guð, þinn Guð, smurt þig gleðinnar olíu fram yfir þína jafningja. (Hebr. 1, 9.) Víkverja var öllum lokið nú á dög-unum þegar hann sá að enn og aftur ætti frostið að fara að hellast yfir okkur af fítonskrafti. Bláar tveggja stafa tölur í Reykjavík og það í miðjum febrúar. Hver ber eiginlega ábyrgð á þessu? er ekki viðtekin venja að fimmtánda febrúar séu nagladekkin tekin undan, slökkt á hitanum í bílastæðinu og á ofnunum, grillið rifið út og að lokum er borið á pallinn? x x x Víkverji er líka alltaf jafn hissa áviðbrögðum kaupmanna við nokkrum þeim breytingum sem gera á á heilögu kúnni Laugavegi. Hingað til hef ég ekki merkt að göngugötu- væðing, framkvæmdalokanir né önn- ur uppbrot á hinu þrásætna „normi“ hafi orðið til að ganga frá Laugaveg- inum, heldur má merkja að þessir hlutir hafi jafnvel orðið til að auka meðvitund fólks um hvaða verslanir eru þar. Nokkuð víst er að hækkun stöðumælagjalda mun ekki verða þess valdandi að verslunareigendur sjái sig nauðbeygða að loka versl- ununum og flytja sig í Kringluna. Þeir ættu kannski að prófa að búa við stöðumælalausa götu í 101 og fá aldr- ei stæði heima hjá sér af því að kaup- menn og starfsfólk þeirra hreinlega verður að koma á bílnum í bæinn. x x x Annað sem vekja mætti athygli áþegar kemur að bílastæðavand- anum er að þeir íbúar miðbæjarins sem búa við þann „lúxus“ að vera með gjaldfrjáls stæði fyrir utan fá ekki frí- an aðgang að þeim gjaldskyldu stæð- um sem eru í nágrenninu, þannig að þegar gestir miðbæjarins þurfa endi- lega að koma keyrandi á svæði þar sem vitað er að ríkir gjaldskylda en tíma ekki að borga fyrir stæðið eru íbúarnir settir í talsverðan vanda. Hvernig ætli íbúum Frostafoldar eða Reyrengis þætti að þurfa iðulega að labba 300 metra til og frá bílnum, því einhver lagði fyrir utan dyrnar hjá þeim til að spara sér einhverja hundr- aðkalla á meðan hann er í vinnunni sem er í fjögurra gatna fjarlægð? víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 kaupstaður, 8 rán- dýrs, 9 skreyta, 10 keyra, 11 skyldur, 13 horaðan, 15 stjakaði við, 18 sjá eftir, 21 rödd, 22 hristist, 23 tré, 24 reipið. Lóðrétt | 2 óhæfa, 3 sleifin, 4 naddar, 5 þolir, 6 kjáni, 7 hljóp, 12 veiðarfæri, 14 vinnuvél, 15 klár, 16 dýrin, 17 spjald, 18 syllu, 19 yf- irhöfnin, 20 forar. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 skart, 4 knött, 7 yndis, 8 lævís, 9 afl, 11 töng, 13 gróa, 14 ennin, 15 bugt, 17 ýsan, 20 far, 22 rolla, 23 ormur, 24 Seifs, 25 kenni. Lóðrétt: 1 skylt, 2 aldan, 3 tása, 4 koll, 5 örvar, 6 tíska, 10 funda, 12 get, 13 gný, 15 barms, 16 galti, 18 Símon, 19 nærri, 20 fans, 21 rokk. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Fúlasta alvara. Norður ♠83 ♥963 ♦ÁKDG9 ♣D63 Vestur Austur ♠KG9652 ♠ÁD104 ♥-- ♥Á74 ♦87542 ♦1063 ♣108 ♣KG7 Suður ♠7 ♥KDG10852 ♦-- ♣Á9542 Suður spilar 5♥. Ungverjinn Géza Ottlik (1912-90) var ævintýralegur spilasmiður. Vestur kemur út með ♠2 gegn 5♥, sagnhafi setur þristinn úr borði og austur lætur fjarkann! Er þetta grín? Nei. Eina vörnin sem bítur er að gefa suðri fyrsta slaginn á ♠7. Austur á nógu gott tromp til að halda blindum úti í kuldanum og á endanum fær vörn- in þrjá slagi – einn á ♥Á og tvo á lauf. En af hverju má ekki taka slag á spaða í byrjun? Skoðum það. Segjum að aust- ur taki á ♠Á í fyrsta slag og spili meiri spaða. Suður trompar með tíu, spilar ♥8 og yfirtekur með níu. Austur drep- ur tilneyddur, en kemst nú ekki hjá því að hleypa sagnhafa inn í borð. Tilgangurinn með því að gefa fyrsta slaginn er að geyma útgönguleiðina á spaða til betri tíma. 20. febrúar 1882 Kaupfélag Þingeyinga, fyrsta íslenska kaupfélagið, var stofnað að Þverá í Laxárdal að frumkvæði Jakobs Hálfdan- arsonar. 20. febrúar 1902 Sambandskaupfélag Þing- eyinga var stofnað. Nafni þess var breytt í Samband ís- lenskra samvinnufélaga, SÍS, árið 1910. Starfseminni lauk að mestu leyti árið 1992. 20. febrúar 1911 Fiskifélag Íslands var stofnað til að „styðja og efla allt það er verða má til framfara og um- bóta í fiskveiðum Íslendinga“. 20. febrúar 1941 Óperettan Nitouche var frum- sýnd hjá Leikfélagi Reykjavík- ur, í samvinnu við Tónlistar- félagið. Lárus Pálsson og Sigrún Magnúsdóttir fóru með aðalhlutverkin. „Þótti sýn- ingin ein hin glæsilegasta sem hér hefur sést,“ sagði Morg- unblaðið. Þetta varð vinsæl- asta óperettusýning Leik- félagsins. 20. febrúar 1943 Skömmtun hófst á bensíni. Eigendur smábifreiða fengu 1,5 lítra á dag. Jafnframt var hámarkshraði lækkaður í 45 km á klst. til að spara slit á hjólbörðum. 20. febrúar 1991 Þyrla frá Landhelgisgæslunni bjargaði átta manna áhöfn Steindórs sem strandaði við Krýsuvíkurberg. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… „Ætli ég fari ekki í vinnuna, eins og ég er vanur,“ segir Eyvindur Magnús Jónasson, bóndi á Kjóa- stöðun I í Biskupstungum, um áform fyrir afmæl- isdaginn en hann verður sextugur í dag. Hann tekur fram að haldið hafi verið veglega upp á fimmtugs- afmælið og það verði að duga enn um sinn. Magnús vinnur hjá smíðafyrirtæki í Reykholti enda hætti hann að mestu búskap fyrir allmörgum árum, fyrst með kýrnar og síðan þurfti að skera féð vegna riðu. Aftur eru þó komnar kindur í Kjóastaði og heldur Magnús því starfstitlinum og skráir sig sem bónda í síma- skránni en hvorki smið né leikara þótt hann hafi tekið þátt í eft- irminnilegum leiksýningum í sveitinni. Magnús á Kjóastöðum hefur farið á fjall fyrir Tungnamenn frá tólf ára aldri, öll árin nema þrjú, eða alls í 45 skipti í fyrsta safn. „Þetta er bakt- ería sem erfitt er að losna við. Það er svolítið strembið að vera á hestbaki í viku, í öllum veðrum, en ekki eru vandræði að fá mannskap því þetta er eftirsótt starf.“ Magnús er fæddur og alinn upp á Kjóastöðum, í sextán systkina hópi. Sjálfur er hann kvæntur Kristínu Ólafsdóttur og á fimm uppkomin börn. helgi@mbl.is Eyvindur Magnús Jónasson sextugur í dag Úr sextán systkina hópi Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is Flóðogfjara 20. febrúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 5.34 3,9 11.50 0,5 17.53 3,6 9.08 18.16 Ísafjörður 1.22 0,3 7.31 2,1 13.57 0,2 19.50 1,8 9.22 18.12 Siglufjörður 3.29 0,3 9.43 1,3 16.03 0,1 22.27 1,1 9.05 17.55 Djúpivogur 2.48 1,9 8.55 0,4 14.54 1,7 21.04 0,2 8.40 17.43 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Eitthvað sem þú vildir gera fyrir fimm árum en gast ekki er aftur upp á teningnum. Láttu það ekkert á þig fá. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þér kann að finnast þú varnarlaus í hin- um stóra heimi og þarft þá að leita skjóls hjá einhverjum. Líf þitt mun örugglega breytast til batnaðar á einhvern hátt. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Hvaðeina sem þú tekur þér fyrir hendur í dag mun færa þér ómælda hamingju og ánægju. Leiddu öðrum það fyrir sjónir að það er óhollt að taka sjálfan sig of alvarlega. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú átt mjög auðvelt með að leysa af hendi þau verkefni sem þér eru falin. Aðrir ættu að fara að fordæmi þínu því þú ert bæði hagsýnn og útsjónarsamur. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Áhyggjur af frama eru eins og félagi sem er alltaf að tuða um það sama. Vertu bara við öllu búinn, en láttu vera að hengja haus þótt ekkert gerist. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Það er ekki við þig að sakast þótt hlut- irnir séu þannig vaxnir að þú þurfir hjálp. Þú sýnir hugsanlega á þér hlið sem kemur öðr- um á óvart. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Ef þú hefur þín takmörk á hreinu mæt- irðu skilningi annarra á leið þinni. Vertu þó viss um að hafa réttu hlustendurna áður en þú gerir það. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Einhver reynir að fá þig ofan af því að verja peningunum eins og þér finnst best að gera. Láttu það ekkert á þig fá þótt aðrir kvarti. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Verkefni dagsins ganga eins og vel æft dansatriði á sviði. Það gæti líka verið að þú kæmir með góða hugmynd. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Taktu frá tíma fyrir vini þína sem þú hefur ekki haft aðstæður til að sinna um hríð. Njóttu þess sem er. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Nú er tækifærið til að ná til þeirra sem hafa ekki viljað hlusta á skoðanir þínar. Einhverjar breytingar gætu orðið til góðs. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Komi til árekstra milli þín og vinar eða samstarfsmanns skaltu varast að láta reiðina ná tökum á þér. Mundu að erfiðleikarnir eru til þess að sigrast á þeim. Stjörnuspá 1. e4 c6 2. Re2 d5 3. e5 Bf5 4. Rg3 Bg6 5. h4 h5 6. Be2 Dc7 7. d4 e6 8. Bxh5 Bxh5 9. Rxh5 c5 10. O-O cxd4 11. He1 Rc6 12. c3 g6 13. Rf4 O-O-O 14. cxd4 Hxh4 15. Rc3 a6 16. b4 Bxb4 17. Db3 Rge7 18. g3 Hh7 19. Be3 Hdh8 20. Kg2 Rf5 21. Hed1 Rxe3+ 22. fxe3 Bxc3 23. Dxc3 Hh2+ 24. Kf1 Ra5 25. Hac1 Rc4 26. Rg2 De7 27. e4 Kb8 28. Df3 dxe4 29. Db3 Staðan kom upp á Skákþingi Reykjavíkur, Kornax-mótinu, sem lauk fyrir skömmu í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur. Emil Sigurðarson (1736) hafði svart gegn Stefáni Bergssyni (2175). 29… Rd2+! 30. Hxd2 Hh1+ 31. Kf2 Hxc1 32. Db6 Da3 og hvítur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Svartur á leik.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.