Morgunblaðið - 20.02.2012, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 20.02.2012, Blaðsíða 25
DAGBÓK 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 2012 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand KONUR... HVAR ER MÍN... KLÁRLEGA Í FELUM NEI, Í RAUN EKKI... ...PABBI GAF MÉR BARA HJÁLM MEÐ HORNUM KÆRA „MIKLA GRASKER”, NÚ FER HREKKJAVAKAN AÐ NÁLGAST... ÉG ER BÚINN AÐ SEGJA ÖLLUM KRÖKKUNUM Í SKÓLANUM FRÁ ÞÉR MÉR ÞYKIR LEITT AÐ VERA SVONA BEINSKEYTTUR EN... ...EF ÞÚ LÆTUR EKKI SJÁ ÞIG Í ÁR ÞÁ ER ÚT UM ÞIG!! ÉG VONA AÐ FYRSTI DAGURINN HANS GRÍMS, SEM FLUGÞJÓNN, HAFI GENGIÐ VEL FLUGFÉLAGIÐ HRINGDI OG SAGÐI AÐ HANN VÆRI Á LEIÐINNI HEIM ÞIÐ GETIÐ TEKIÐ ÞETTA STARF OG TRO... VIÐ BÍÐUM EFTIR ÞVÍ AÐ KÓNGULÓAR- MAÐURINN MÆTI MEÐ... Í DAG KLÁRA ÉG AÐ HEFNA MÍN Á TONY STARK Á MEÐAN... ÉG VERÐ AÐ DRÍFA MIG Í CENTRAL PARK ERTU TILBÚINN? ÉG ER TIL! ÞAÐ VÆRI EKKI SNIÐUGT MAMMA, MEIGA KRAKKARNIR KOMA TIL ÞÍN OG SYNDA Í LAUGINNI? FORMAÐUR HÚSFÉLAGSINS ER ALVEG BRJÁLUÐ YFIR ÞVÍ AÐ KRAKKARNIR HAFI SKVETT Á HANA. HÚN ÆTLAR AÐ REYNA AÐ LÁTA BANNA BÖRN VIÐ LAUGINA, Á FUNDINUM Í KVÖLD ÞETTA VIRÐIST VERA FREKAR ALVARLEGT ÁSTAND ÉG ER SKO EKKI HRÆDDUR! EINHVER SETTI DAUÐAN GULLFISK INN UM BRÉFALÚGUNA HJÁ OKKUR Í HÁDEGINU ÞAÐ ER ÞAÐ HRÓLFUR, TÓK ÞAÐ MÖRG ÁR AF SKÓLAGÖNGU, BARDÖGUM, BLÓÐI, SVITA OG TÁRUM AÐ VERÐA VÍKINGALEIÐTOGI? Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, vatns- leikfimi kl. 10.50. Útskurður/myndlist kl. 13. Fyrirlestur um Njálu kl. 13.30. Árskógar 4 | Smíði/útskurður kl. 9. Handavinna kl. 13. Félagsvist kl. 13.30. Myndlist kl. 16. Boðinn | Tiffanys glerkennsla kl. 9. Tálg- að kl. 13.30. Bólstaðarhlíð 43 | Bútasaumur og handavinna allan daginn, leikfimi kl. 12:45, sögustund kl. 13:45. Dalbraut 18-20 | Leikfimi kl. 10. Dalbraut 18-20 | Myndlist og postulín kl. 9, brids kl. 13. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13. Kaffi/spjall kl. 13.30. Danskennsla kl. 17. Félagsheimilið Gjábakki | Leiðbeinandi í handav. við til hádegis, botsía kl. 9.15, gler og postulín kl. 9.30, lomber kl. 13, ka- nasta kl. 13.15, kóræfing kl. 16.30 og skapandi skrif kl. 20. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Postulín kl. 9 Tréskurður kl. 9.30, ganga kl. 10. Handav/brids kl. 13. Félagsvist kl. 20. Félags- og íþróttastarf eldri borgara Garðabæ | Vatnsleikfimi kl. 8 og 12.15, kvennaleikfimi kl. 9.15, 10 og 11, námskeið um Eglu kl. 10.15, málun kl. 14. Spilakvöld á Garðaholti í boði Kvenfélags Garða- bæjar 23. feb. kl. 19, þátttökuskrán. í Jónshúsi. Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn- arnesi | Gler og leir kl. 9, biljard í hús- næði kirkju kl. 10, kaffispjall í krók kl. 10.30. Íþróttahús/ganga kl. 11.20. Handa- vinna kl. 13. Vatnsleikfimi kl. 18.30. Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur kl. 9. Vatnsleikfimi kl. 9.50 . Frá hád. spilasal- ur opinn. Kóræfing kl. 12.30. Miðv. 22. febr. (öskudag) kl. 14 íþrótta- og leikja- dagur FÁÍA í íþróttahúsinu v/Austurberg, fjölbreytt dagskrá, fræðsla og kynningar í Garðheimum. Grensáskirkja | Samverustund 22. febr- úar (öskudagur), hádegismatur kl. 12.10- 14. Verð 1500 kr. Vinsamlega skráið ykkur í síma 528-4410 fyrir þri. 21. febr. Hraunsel | Ganga frá Haukah. Ásv. kl. 10, kór kl. 11, glerbræðsla kl. 13, botsía og fé- lagsvist kl. 13.30. Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30 og 9.30. Vinnustofa kl. 9 hjá Sigrúnu. Brids/ tölvukennsla kl. 13, Tryggingastofnun með kynningu. Kaffisala. Hæðargarður 31 | Við hringborðið kl. 8.50, prjónahornið kl. 13, félagsvist kl. 13.30, skapandi skrif kl. 16, Thai chi kl. 17.30. Minnum á bókmenntahóp á morg- un, þri. kl. 20. Íþróttafélagið Glóð | Ringó kl. 13.30 í Smáranum. Korpúlfar, Grafarvogi | Sundleikfimi alla þriðjudaga og föstudaga kl. 9.30. Norðurbrún 1 | Morgunleikfimi kl. 9.45. Botsía kl. 10. Bókm.hópur kl. 11. Út- skurður kl. 13. Samverustund m/djákna kl. 14. Vesturgata 7 | Setustofa, kaffi, Botsía og handavinna kl. 9, leikfimi kl. 10.30, kóræf- ing kl. 13. Getum bætt við nem. í gler- skurð Tiffany’s, kennsla fer fram fim. frá kl. 9.15/13. Skráning og nánari upplýs. í s. 535-2740. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, bók- band og postulín kl. 9, morgunstund kl. 9.30, botsía kl. 10, uppl. kl. 12.30, handa- vinnustofa, spil/stóladans kl. 13. Allt er nú kallað messa Ákaflega margt er það sem nútímanum verður að gagni við að sýna vanþekkingu sína. Fyr- ir nú utan smekkleysi sitt, því ekki má það vera útundan og gleymast, hágrátandi. Raunalegt hlýtur að vera venjulegum Ís- lendingum að opna fyr- ir útvarp og hvað þá sjónvarp og fá yfir sig ranga fallbeygingu, misskilning hugtaka og almenna vanþekkingu hvað eftir annað, fyrir nú utan hlut- drægnina sem aldrei bregst. Afarlítið dæmi skal ég nefna. Messa, lengi vel vissu allir Íslendingar hvað hún er. Messa er guðsþjónusta með alt- arissakramenti. Og ekki annað. Nú- tíminn heldur hins vegar að messa sé næstum hvaða mannfagnaður sem er. Glaðbeittur heldur nútíminn bók- menntamessu, ferðamálamessu og sennilega bráðum kynjafræðimessu, og fréttastofurnar senda þangað spek- ingana sína sem sjá ekkert athugavert við messuhaldið. Óþarft að taka fram að enginn messuguttanna er spurður hvers vegna hann geti ekki notað um samkomuna eitt- hvert orð sem við á, svo sem skrumsýning, kauðakynning, froðuf- leyting eða flóna- fundur. Leyfist mér að láta í ljós þá skoðun, að menn eigi að gera svo vel að neita sér fram- vegis um það skilnings- leysi að kalla sjálfs- auglýsingastefnur sínar messur? Annars hef ég enga ánægju af að vera að vasast í þessu sjálfur. Reyndar finnst mér það standa kirkjunnar mönnum nær, en þeir eru auðvitað uppteknir við að velja sér biskup sem lofar að hætta al- veg að tala um kristindóm en ætlar í staðinn að setja kraft í jafnréttismálin. Víðsýnn nútímamaður. Velvakandi Ást er… … dagurinn sem þið gangið inn kirkjugólfið. Árni Björnsson sendi Vísnahorn-inu kveðju er hann rakst á Vísnahorn frá 8. desember í fyrra, en þá sá hann tvennt sem hann langar að reka hornin í. „Annað er þriðja línan í slitrunni um öðlinginn í Kákasus sem ég lærði svona og held að hljóti að vera rétt: fjöllum Káka- fram í sus. Hitt er eitt orð í slitru Elíasar um Jósep Thorlacius, sem ég held að verið hafi „snjall“ en ekki „frækn“. Þú þekkir sjálfsagt svar Jóseps, en ef ekki, er það svona (heimild: Jónas Kristjánsson handritafræð- ingur): Danskt brennivín drekkur sem svín dyggðin er gengin. Svo far! Elías Mar á kvennafar ætlar ef Guð lofar. Kannski þekkirðu líka vísna- skipti Elíasar og Gunnars Dal. Elí- as og Erlingur Gíslason sátu við innsta borð á Laugavegi 11. Inn gengur Gunnar, vingsar höndum og spjallar við menn á leiðinni uns hann sest hjá þeim félögum. Elías kveður: Gengur í salinn Gunnar Dal gáfnahjali meður. Hann er gal og helt total hans er kalinn reður. Gunnar fær sér kaffi, hrærir í bolla og svarar síðan: Þótt ýmsir hjari einsog skar uns þeir snarast héðan enginn var sem Elías Mar illa farinn neðan. (heimild: Erlingur)“ Fyrri slitran er þá svohljóðandi: Arkipela- yfir -gus öðling sigla náði; -fjöllum Káka- fram við -sus- fólkorrustu háði. Og slitra Elíasar: Anta- jafnan etur -bus einnig Pega- ríður -sus, spíri- því ei teygar -tus Thorla- kappinn snjall -cius. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af slitrum og Elíasi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.