SunnudagsMogginn - 29.01.2012, Síða 4
4 29. janúar 2012
Elstu menn í þorpinu Gerena muna enn ópin og skothvell-
ina í kirkjugarðinum í Gerena kvöld eitt árið 1937 þegar
borgarastríðið á Spáni stóð sem hæst. Það kvöld skutu
liðsmenn Franciscos Francos 17 konur, sem voru skyld-
ar stuðningsmönnum lýðveldissinna, og settu líkin beint
í fjöldagröf.
Á mánudag í liðinni viku var hafist handa við að grafa
jarðneskar leifar þeirra upp til þess að afkomendur þeirra
gætu veitt þeim sómasamlega útför. Fyrir kaldhæðni ör-
laganna hófust daginn eftir málaferlin á hendur Baltasar
Garzon fyrir að hefja rannsókn á glæpum á borð við þann
sem framinn var í Gerena fyrir 74 árum.
„Þetta er mótsagnakennt, svo ekki sé meira sagt,“
sagði Lucia Socam, 25 ára gömul, við AFP. Frænka henn-
ar, Granada Hidalgo, var á meðal þeirra, sem grafnar eru í
fjöldagröfinni. „Þetta er líka óskiljanlegt. Þeir ætla að
rétta yfir Garzón dómara fyrir nákvæmlega þetta, að vilja
varpa ljósi á þessa glæpi, sem voru glæpir gegn mann-
kyni, þannig að fórnarlömbin fengju að njóta réttlætis.“
Fyrir áratug hófu afkomendurnir leit að líkunum. Lög
sem sósíalistastjórnin setti 2007 um „sögulegt minni“
hjálpuðu til og sömuleiðis kort sem kom út í fyrra og
sýnir 2.000 staði þar sem talið er að fórnarlömb úr borg-
arastyrjöldinni og einræðistíð Francos séu grafin.
Fjöldagröf frá 1937 opnuð í þorpi á Spáni
Fornleifafræðingur sópar sandi burt frá höfuðkúpu
í fjöldagröf í þorpinu Gerena í suðurhluta Spánar.
Reuters
Þegar málflutningur hófst gegn spænskarannsóknardómaranum Baltasar Garzónfyrir hæstarétti Spánar í Madríd á þriðju-dag í liðinni viku vegna ásakana um að
hann hefði misnotað valdheimildir sínar með því að
kafa ofan í glæpi frá tímum borgarastyrjaldarinnar á
Spáni og valdatíð Franciscos Francos gerðust þau
óvenjulegu tíðindi að saksóknararnir lögðu til að
dómstóllinn léti málið niður falla.
Saksóknararnir og verjendur Garzóns kváðust
sammála um að hann hefði ekkert gert af sér. Tvenn
hægri samtök höfðuðu málið gegn Garzón fyrir að
hefja rannsókn á hvarfi 114 þúsund manna í borg-
arastyrjöldinni 1936 til 1939 og í tíð einræðisherr-
ans. Í ákærunni á hendur Garzón segir að hann hafi
gengið of langt því að tveimur árum eftir að Franco
féll frá hafi verið gert samkomulag um sakaruppgjöf
vegna þessara mála. Það var gert til að auðvelda
breytinguna frá einræði til lýðræðis. Garzón heldur
því hins vegar fram að umrædd afbrot heyri undir
glæpi gegn mannkyni og sakaruppgjöfin nái því
ekki til þeirra.
Borgarastyrjöldin er enn viðkvæmt mál á Spáni
og menn skiptast í fylkingar eftir því hvort þeir eða
forfeður þeirra voru lýðræðissinnar eða Francoist-
ar. Gagnrýnendur Garzóns segja að hann sé að ýfa
upp gömul sár og reyna að koma sér í sviðsljós fjöl-
miðla. Stuðningsmenn hans halda fram að þetta
mál og annað, þar sem honum er borið á brýn að
hafa gripið til ólöglegra hlerana – með leyfi rík-
issaksóknara – í rannsókn á spillingu, auk þess
þriðja, sem gæti verið í vændum, séu hefnd fyrir að
hann skyldi voga sér að taka á glæpum stjórnar
Francos.
Garzón komst fyrst í heimsfréttirnar þegar hann
krafðist þess árið 1998 að Augusto Pinochet, fyrr-
verandi einræðisherra í Síle, yrði framseldur frá
London. Hann reyndi einnig að ná í ráðamenn úr
herforingjastjórninni í Argentínu fyrir að hafa
varpað stjórnarandstæðingum í sjóinn úr flug-
vélum. Hann hefur barist gegn eiturlyfjahringum
og hryðjuverkamönnum. Hann stefndi Osama bin
Laden og rannsakaði meðferð grunaðra hryðju-
verkamanna í haldi Bandaríkjamanna í Guant-
anamo-fangelsinu á Kúbu. Þá stefndi hann George
Bush, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, vegna
þess að hann taldi að Bandaríkjamenn hefðu brotið
gegn þjóðarétti þegar þeir réðust inn í Írak. Í upp-
hafi níunda áratugar liðinnar aldar kom hann
stjórnarliðum sósíaldemókrata á Spáni í fangelsi
fyrir að hafa látið ráða meinta meðhlaupara ETA,
skæruliðasamtaka Baska, af dögum.
Hæstiréttur Spánar mun koma saman að nýju 31.
janúar til að fjalla um mál Garzóns og mun þá vænt-
anlega koma í ljós hvort því verður vísað frá eða
haldið áfram.
Garzón var vikið frá störfum við æðsta glæpa-
dómstól Spánar í maí árið 2010 vegna málsins og
starfar nú sem ráðgjafi við alþjóðlega glæpadóm-
stólinn í Haag. „Mér er hulin ráðgáta hvernig dóm-
arar geta vikið starfsbróður úr embætti vegna þess
að þeir túlka lög með öðrum hætti en ég,“ sagði
Garzón. „Þetta mál snýst ekki um réttlæti heldur
um markvissa eyðileggingu á persónu minni.“
Garzón á ekki yfir höfði sér fangelsi vegna máls-
ins, en svo gæti farið að hann yrði útilokaður frá því
að stunda lög í allt að 20 ár. „Ég er dómari og mun
deyja dómari,“ sagði Garzón í viðtölum eftir að
réttarhöldin hófust í vikunni. „Hvort þeir leyfa mér
nokkurn tímann framar að starfa sem dómari er
annað mál.“
Baltasar Garzón í dómaraskikkju sinni í dómsal hæstaréttar í Madríd.
Reuters
Dómari settur á
sakamannabekk
Draugar fortíðarinnar enn á
kreiki í spænsku samfélagi
Vikuspegill
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Nokkur hundruð manns mótmæltu þegar réttahöldin
hófust og heldur einn á brúðu af Francisco Franco.
Reuters
„Á Spáni eru hinir dauðu
meira lifandi en hinir dauðu
nokkurs staðar annars staðar
– ásjóna þeirra særir eins og
egg á rakhníf rakara,“ skrifaði
Federico Garcia Lorca, sem
var myrtur nokkrum dögum
eftir að borgarastríðið braust
út á Spáni 1936. Francisco
Franco lét banna verk skálds-
ins og stóð bannið til 1953. Á
myndinni heldur maður á lofti
mynd af fórnarlambi úr borg-
arastyrjöldinni á mótmæla-
fundi til stuðnings Baltasar
Garzón í vikunni. Reuters
Eins og egg
á rakhníf
– fyrst og fre
mst
ódýr!
33%afslátturDÚ
NDUR-
VERÐ
998kr.kg
Verð áður 1498 kr. kg
Grísakótilettur