SunnudagsMogginn - 29.01.2012, Síða 8
8 29. janúar 2012
Það er ekki bara sigurinn á Opna ástralska mótinu
sem er í húfi þegar Maria Sharapova og Victoria Az-
arenka ganga til leiks í Melbourne í dag, heldur jafn-
framt efsta sætið á heimslistanum sem danska stúlk-
an Caroline Wozniacki vermir núna.
Það sæti er Sharapovu ekki framandi en hún hefur
setið þar í fjórgang, fyrst árið 2005, þegar hún var að-
eins átján ára, og síðast sumarið 2007. Síðan hefur
Sharapova átt erfitt uppdráttar, einkum vegna
meiðsla, en virðist nú vera komin í sitt besta form á ný.
Hún hefur unnið þrjú stórmót (grand slam) á ferlinum,
Wimbledon 2004, Opna bandaríska meistaramótið
2006 og það ástralska 2008. Í fyrra komst Sharapova
á lista Time yfir þrjátíu bestu tennisynjur sögunnar.
Azarenka er ekki eins sjóuð, leikur nú í fyrsta skipti
til úrslita í einliðaleik á stórmóti. Engin hvítrússnesk
kona hefur komist hærra á heimslistanum en Natasha
Zvereva náði fimmta sætinu á sínum tíma. Azarenka á
að baki tvo sigra í tvenndarleik á stórmótum, árið
2007 vann hún Opna bandaríska mótið ásamt Max
Mirnyi og ári síðar unnu þau Bob Bryan Opna franska
meistaramótið.
Efsta sæti heims-
listans í húfi
Hvítrússinn Victoria Azarenka einbeitt á svip. Hún er ekkert lamb að leika sér við, hvorki á velli né í viðtölum.
Reuters
Gera varð hlé á undanúrslitaviðureignRogers Federers og Rafaels Nadals áOpna ástralska meistaramótinu í tennisá fimmtudagskvöldið meðan flugeldum
var skotið upp í tilefni af þjóðhátíðardegi Ástrala
og fyrr um daginn höfðu keppendur og gestir ama
af þotum ástralska flughersins sem flugu fram og
aftur yfir keppnissvæðið í Melbourne í sýning-
arskyni. Þetta er þó hjóm hjá hávaðanum sem bú-
ist er við í dag, laugardag, þegar Maria Sharapova
og Victoria Azarenka mætast í úrslitaleiknum í
kvennaflokki. Þær eru nefnilega ókrýndar drottn-
ingar kveinsins í tennisheimum. Stynja og veina á
víxl þegar þær slá boltann yfir netið.
Um fátt hefur verið meira rætt á mótinu að
þessu sinni en veinin á vellinum en hin rússneska
Sharapova og Azarenka, sem er frá Hvíta-
Rússlandi, hafa gengið fram af ýmsum. Þetta er
gömul saga og ný en dómendur á Wimbledon-
mótinu í fyrra sáu ástæðu til að senda frá sér yf-
irlýsingu eftir eina viðureign Azarenku þess efnis
að keppendur á mótinu væru auðmjúklega beðnir
um að stynja minna í leikjum. Þar til bær tæki á
Wimbledon sýndu mest 95 desíbel þegar Azarenka
rak upp kvein. Þá varaði meðalkvein hennar í
hálfa aðra sekúndu. Það er í samræmi við óvís-
indalega rannsókn sem gamla kempan Pam Shriv-
er gerði meðan á leik Azarenku og Serenu Willi-
ams stóð á Opna ástralska mótinu fyrir tveimur
árum en hún leiddi í ljós að sú hvítrússneska var
enn veinandi þegar Williams hafði slegið boltann
sín megin. Stuna Azarenku er hvell og skerandi –
ekki ósvipað helsærðu dýri.
Hoppið upp í …
Víst er að Sharapova kemur ekki til með að láta
Azarenku vaða yfir sig en fyrir liggur að átrún-
aðargyðja hennar er engin önnur en Lína lang-
sokkur. Vein Sharapovu minnir líka meira á reitt
dýr en sært og hefur hún oft orðið að athlægi í
keppni. Einhverju sinni gekk það svo langt að
áhorfendur gáfu henni fyrirmæli um að halda sér
saman. Sharapova, sem ekki er þekkt fyrir að láta
fólk eiga inni hjá sér, svaraði þá fullum hálsi:
„Hoppið upp í rassgatið á ykkur!“
Azarenka er einnig þekkt fyrir skapstærð sína
og hefur nokkrum sinnum misst stjórn á sér í
keppni. Hún getur líka verið þurr á manninn eins
og blaðamaður sem ræddi við hana fyrir heima-
síðu Opna ástralska mótsins fékk að reyna.
„Hvernig ganga æfingar og undirbúningur?“
spurði blaðamaðurinn bláeygur.
„Þú varst á æfingunni,“ svaraði Azarenka stutt í
spuna.
„Já.“
„Hvers vegna spyrðu mig þá þessarar spurn-
ingar?“
Enda þótt hljóðmengunin hafi verið í hámarki í
Melbourne féll hún í skuggann af tennisnum sjálf-
um í undanúrslitunum. Gæði leikjanna þegar
Sharapova lagði Petru Kvitovu í þremur settum og
Azarenka Kim Clijsters í jafnmörgum settum voru
ótvíræð. Hver kona lék annarri betur og áhorf-
endur önnuðust öskrin – í hrifningu sinni.
Úrslitaleikurinn verður örugglega ekki síðri.
Áhorfendum er þó bent á að hafa hvorki spegla né
annað glerkyns meðferðis og íbúar í næsta ná-
grenni ættu sennilega að tvöfalda gler í rúðum.
Hvert í kveinandi!
Kveinkvendin Sharapova og
Azarenka mætast í úrslitum
Opna ástralska tennismótsins
Maria Sharapova reiðir til höggs í Melbourne. Endurheimtir hún titilinn?
Reuters
Victoria Azarenka í undanúrslitunum í vikunni.
Reuters
Vikuspegill
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Maria Sharapova er 24 ára,
fædd 19. apríl 1987 í Nyag-
an, en Victoria Azarenka 22
ára, fædd 31. júlí 1989 í
Minsk. Báðar fluttu þær ung-
ar að árum til Bandaríkjanna
til æfinga og keppni í tennis,
Sharapova sjö ára en Az-
arenka þegar hún var fjórtán.
Annað heimili Sharapovu er í
Ísrael.
Búa báðar í
Bandaríkjunum