SunnudagsMogginn - 29.01.2012, Qupperneq 9
29. janúar 2012 9
Þriðja myndin í röðstuttmynda sem Mbl.Sjónvarp sýnir ásunnudögum í sam-
vinnu við Kvikmyndaskóla Ís-
lands heitir Knowledgy. Stutt-
myndin Knowledgy er
lokaverkefni Hrefnu Hagalín og
Kristínar Báru Haraldsdóttur frá
skólanum en þær útskrifuðust
vorið 2010. Hrefna og Kristín
Bára bæði framleiddu og leik-
stýrðu myndinni. Þær fengu
Hugleik Dagsson til liðs við sig í
handritagerðinni og því kemur
ekki á óvart að svartur húmor að
hætti Hugleiks sé allsráðandi í
myndinni.
Aðalleikari úr Kids
Knowledgy fjallar um skipti-
nemann Michael (Leo Fitzpat-
rick) frá Nýfundnalandi, sem
stundar nám í kvikmyndaskóla
og leigir herbergi af kærustupari
í Reykjavík (Ingvar E. Sigurðs-
son og Nína Dögg Filipp-
usdóttir). Parið hyggst ganga í
bandarískan sértrúarsöfnuð og
kallar til hjón frá Los Angeles
(Jody Flader og Noua M. Phoe-
nix) í því skyni. Michael fær
leyfi til að gera heimildarmynd
um innvígsluferlið sem skóla-
verkefni. Þorsteinn Bachmann
leikur ennfremur í myndinni.
Fitzpatrick þessi varð þekktur
fyrir hlutverk sitt í hinni um-
deildu og áhrifaríku kvikmynd
Kids í leikstjórn Larrys Clarks,
sem gerði líka Chloë Sevigny
fræga.
Leiðbeinandi myndarinnar er
Dagur Kári Pétursson, kvik-
myndatökumaður er Árni Fil-
ippus og klippari er Eva Lind
Höskuldsdóttir, sem klippti
meðal annars Draumalandið.
Óhætt er að segja að þessi
stuttmynd sé óvenjulega metn-
aðarfullt lokaverkefni enda
fengu þær stöllur verðlaun frá
skólanum. Verðlaunin voru að
fara út til Kaupamannahafnar og
sitja þar námskeið með upp-
rennandi kvikmyndagerðarfólki
víða að af Norðurlöndum.
Knowledgy var seinna sýnd á
Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni
í Reykjavík og var tilnefnd til
Edduverðlauna.
Gott tveggja manna teymi
„Við lærðum mikið af þessu. Við
höfðum ekki leikstýrt áður og
þetta voru leikarar sem hafa
verið að leika lengi,“ segir
Hrefna.
Hún og Kristín Bára vinna
ennþá saman og hafa verið bú-
settar í Berlín síðastliðið ár. „Við
erum búnar að vera að gera tón-
listarmyndbönd fyrir þýskar og
ítalskar hljómsveitir. Það hefur
verið ágætisskóli. Næsta skref er
að flytja til New York í vor og
reyna fyrir sér þar,“ segir
Hrefna.
Hún segir gott að vinna sem
hluti af tvíeyki. „Það er gott að
vera saman og fá stuðning frá
hvorri annarri. Það gefur manni
aukinn kraft.“
ingarun@mbl.is
Kvikmyndir
Svartur húmor að
hætti Hugleiks
Ingvar E. Sigurðsson og Nína Dögg Filippusdóttir leika par, sem hyggst ganga í bandarískan sértrúarsöfnuð.
Leo Fitzpatrick varð þekktur fyrir hlutverk sitt í myndinni Kids frá 1995.
Það er nóg að gera hjá Kristínu
Báru Haraldsdóttur og Hrefnu
Hagalín. Þær eru að fara að gera
nýja Munda-mynd en þær hafa
áður unnið með fatahönn-
uðinum kraftmikla. Myndin er
hvorki meira né minna en súr-
realísk handboltamynd, sem
hljómar mjög áhugavert. Tökur
standa yfir alla helgina og næstu
viku. Þetta verkefni tengist líka
Kvikmyndaskóla Íslands líkt og
Knowledgy. Þetta er útskrift-
arverkefni Vigfúsar Þormars
Gunnarssonar úr leiklist. Leik-
stjóri er Mundi vondi en Hrefna
og Kristín Bára framleiða. Fyrir
utan Vigfús Þormar sjálfan fara
með helstu hlutverk Þorsteinn
Bachmann, Walter Grímsson,
Atli Óskar Fjalarsson og Frosti
Gnarr.
Hrefna Hagalín og Kristín Bára Haraldsdóttir.
Súrrealísk
handboltamynd