SunnudagsMogginn - 29.01.2012, Síða 10

SunnudagsMogginn - 29.01.2012, Síða 10
10 29. janúar 2012 Skar og skarkali | 21 Þorgrímur Kári Snævarr 07.00 Farið á fætur. Stór dagur fram- undan, fyrsti Skákdagur Íslands sem hald- inn var í tilefni afmælis Friðriks Ólafs- sonar. Frí tekið frá hinni hefðbundnu vinnu í Landsbankanum. Nokkrir tölvu- póstar sendir og Skák.is uppfærð áður en haldið er út í atið. Dagurinn snýst um skák. 08.30 Náð í jakkafötin í hreinsun. 09.00 Bílinn í viðgerð. 09.30 Stefán Bergsson, fram- kvæmdastjóri Skákakademíu Reykjavík- ur, ásamt einkabílstjóranum, Frey Arn- órssyni, nær í mig og rúntur dagsins hefst hjá okkur tveimur. 10.00 Komið við í Kringlunni þar sem maraþoneinvígi stórmeistarans Stefáns Kristjánssonar og alþjóðlega meistarans Braga Þorfinnssonar hófst. Stefán hafði betur en þeir kapparnir tefldu þar til klukkan var orðin 18 og voru orðnir slæptir mjög. 11.00 Haldið á Bessastaði þar sem Hr. Ólafur Ragnar Grímsson forseti bauð okk- ur í tilefni dagsins. Friðrik og Nansý Dav- íðsdóttir tefldu og gerðu jafntefli. Myndir teknar af unglingalandsliðinu sem er að fara á NM í Finnlandi í febrúar. Ég hélt mína fyrstu ræðu á Bessastöðum og mögu- lega þá síðustu! 13:00 Af Bessastöðum var haldið á Al- þingi. Þar tefldi Jóhann Hjartarson hrað- fjöltefli við fimm þingmenn, þau Guðfríði Lilju Grétarsdóttur, Vigdísi Hauksdóttur, Gunnar Braga Sveinsson, Sigmund Erni Rúnarsson og Guðlaug Þór Þórðarson. Einvígið fór fram undir vökulum augum þingforsetans, Ástu R. Jóhannesdóttur, sem vildi tryggja að allt væri búið fyrir at- kvæðagreiðslu á þinginu sem hæfist kl. 13:30. Mikið hlegið að bröndurum um ref- skák og mannsfórnir sem eiga sér víðar stað en á skákborðinu! 13:30 Farið í Vin, athvarf fyrir fólk með geðraskanir, þar sem minningarmót um Björn Sölva Sigurjónsson fór fram. Alltaf gott að koma í Vin, um mann fer vellíðunartilfinning, andrúmsloft einstakt þar. Róbert Lagerman sigraði en móðir Björns, Herdís, lék fyrsta leik mótsins. 14.15 Fórum í RÚV í Efstaleitinu þar sem Friðrik Ólafsson tefldi fjöltefli við starfsmenn. Friðrik gerði þrjú jafntefli við þá Þorstein Þorsteinsson, Hilmi Frey Heimisson og Pál Magnússon útvarps- stjóra. RÚV færði Friðriki að gjöf átta DVD-spólur þar sem finna mátti efni með honum bæði úr sjónvarpi og út- varpi. 16.30 Að sjálfsögðu var teflt í Lands- bankanum á skákdeginum, vinnustað forsetans, en þar fór fram keppnin Skák- meistari Landsbankans. Bergsteinn Ein- arsson hafði sigur sem var vel viðeigandi enda á hann líka afmæli þennan dag eins og Friðrik. 18.30 Haldið í höfuðstöðvar Skák- sambands Íslands í Faxafeni 12 þar sem Skákfélag fjölskyldunnar var stofnað. Því skákfélagi er ætlað að styðja krakka sem tefla. Frábært framtak hjá þeim sem að því standa. 19:30 Safnað saman gífurlegum fjölda frétta um Skákdaginn og hluti þeirra settur á Skák.is. 20.00 Þriðja umferð Gestamóts Goð- ans fór fram í gær hófst í höfuðstöðvum SÍ. Eitt sterkasta mót landsins. Startaði umferðinni sem skákstjóri mótsins. 20.30 Að þessu loknu fórum við nokkur sem höfðum unnið við að halda utanum skipulag dagsins á Billiard- barinn, við hliðina á höfuðstöðvum Skáksambands Íslands og slökuðum á eftir góðan dag og er það nokkuð ljóst að margar góðar minningar munu tengjast þessum degi. Á meðan var enn unnið við uppfærslu á Skák.is og fjöldi frétta settur inn. Magnið var þó það mikið að stór hluti þeirra var settur á verkefnalista degi síðar. Teflt var á ótrúlega mörgum stöðum þennan dag. Má þar nefna Grímsey, Siglufjörð, Sauðárkrók, Blönduós, Laugarvatn og Austurlandi að ógleymdu sendiráðinu í London! Það er ljóst að skákhreyfingin á margar góðar hendur og það er óhætt að hlakka til Reykjavíkurmótsins í Hörpu í mars og Skákdagsins 2013! 23:30 Haldið á heim leið. Þreyttur og sáttur forseti SÍ eftir frábæran dag. Morgunblaðið/Golli Dagur í lífi Gunnars Björnssonar, forseta Skáksambandsins Hélt ræðu á Bessastöðum

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.