SunnudagsMogginn - 29.01.2012, Blaðsíða 16

SunnudagsMogginn - 29.01.2012, Blaðsíða 16
16 29. janúar 2012 að staðsetja. „Við vissum því að hún yrði ekki alveg laus við þetta en þó að mestu. Við vissum til dæmis að þeir gætu ekki náð þeim punkti sem hefur áhrif á ökkl- ann, en jafnvægið fór meira úr skorðum en við áttum von á. Það kom okkur mest á óvart því læknarnir gerðu ekki ráð fyrir því.“ Mjög fljótlega að aðgerð lokinni hófst endurhæfing af töluverðum krafti. Bati var hægur í fyrstu en gleðin þeim mun meiri í hvert skipti. „Sjúkraþjálfarinn hljóp langa leið til að ná í mig þegar hann varð var við fyrstu hreyfingu. Þá gat Anna hreyft einn fingurinn aðeins,“ seg- ir Sigmundur þegar hann hugsar til baka. Stór og erfið aðgerð Anna Lilja fór í aðgerðina 15. febrúar. Sigmundur skrifar svo í dagbók sína þann dag: „Fékk Halla með mér að hitta dr. Mayer sem sagði aðgerðina hafa verið erfiða og eina þá stærstu sem hann hefði gert. Allt hefði þó gengið vel en all- nokkur blæðing hefði orðið sem og að bandvefur sem myndaðist við fyrri að- gerð hefði verið gróinn við beinið svo það hefði þurft að „hrista“ heilann af kúpunni. Anna væri því með heilahrist- ing.“ Síðan segir hann: „Það var aðdáunar- vert að sjá hve sterk Anna var, hún var bara björt til augnanna og virtist sem allt væri í góðu lagi, hún sagðist þó vera með hausverk. Hún brosti mikið er hún sá Kötu.“ Anna Lilja útskrifaðist af Mayo Clinic 1. apríl. Eftir heimkomuna fór hún strax á Kristnes og var þar fram í október og var síðan á Reykjalundi um tíma. Nú fer hún fjórum sinnum í viku til sjúkraþjálf- ara á Bjargi og fer einnig vikulega í tal- þjálfun. „Ég talaði ekkert fyrstu fjóra dagana eftir aðgerðina,“ segir hún skýr- mælt en talar rólega. „Ég sagði ekki eitt einasta orð. Gat ekki talað,“ segir Anna Lilja. „Vinstri hluti líkamans var ákaflega máttlítill en hægri hlutinn alveg dauður, en þeir fóru strax að pína mig í sjúkraþjálfun.“ Svo kom fyrsta orðið: „Stefán.“ Nafn sonarins sem beið foreldra sinna hjá nánustu ættingjum heima á Íslandi. Anna Lilja braggðist og steig alfarið upp úr hjólastólnum í maí en hún gat ekki notað hægri höndina. „Það var skrautlegt þegar ég burstaði fyrst í mér tennurnar með vinstri hendi!“ segir hún og hlær. Hún þurfti að læra að skrifa upp á nýtt og segir það hafa verið dálítið erf- itt. „Ég er ekki búin að fá fulla hreyfigetu í hægri höndina en það kemur; fyrst fór ég ekki í flóknari hluti en prentstafi, en nú er gamla, góða skriftin mín komin aftur.“ Þarf mikla hvíld Anna er töluvert háð þeim feðgum, „Læknarnir sögðu mér að ég myndi eflaust missa máttinn vinstra megin í líkamanum en það yrði ekki varanlegt, nema helst í ökklanum. Það hefur stað- ist.“ Hún er ánægð í dag. „Mér líður af- skaplega vel og það að vera laus við flog- in er ólýsanlega gott. Það er töluverð hefting að ég skuli notast við göngu- grind, en það er ekkert miðað við það sem ég var búin að líða áður. Það sem veldur manni einna mestri einangrun er að geta ekki keyrt.“ Hún hefur þó ekki stórar áhyggjur af því. Segist hugsa um það síðar. Hún er ekki til stórræðanna frekar en reikna mætti með en er bjartsýn. „Eftir svona inngrip þarf maður mikla hvíld en ég lagast smám saman. Fyrir ári þurfti ég að leggja mig tvisvar á dag; þá fannst mér eins og ég gerði ekki annað en að sofa. Ég spurði lækna um þetta og þeir sögðu að það væri fullkomlega eðlilegt og þetta lagast hægt og rólega. Nú þarf ég ekki að leggja mig nema einu sinni á dag.“ Sjálf segist hún ekki skynja jafn vel og aðrir hver batinn er. „Það er heilmikill styrkur í því þegar fólk sem býr í Reykjavík kemur norður og segir að allt annað sé að sjá mig en síðast! Þetta geng- ur svo hægt að ég skynja það ekki sjálf; það gengur hægt, en bítandi. Þetta breytist smám saman. Fólk nefnir ekki síst um hve talið hafi breyst mikið hjá mér.“ Hún segist þó enn eiga erfitt með að halda uppi samræðum í margmenni. „Það er gott þegar við erum saman fjöl- skyldan, en ég á ekki heima í samræðum í nokkurra manna hópi. Ég vil ekki segja að ég sé illa máli farin en ég þarf að tína orðin fram eitt af öðru; þau eru öll í höfðinu á mér en það tekur lengri tíma en áður að ná í þau.“ Fjölskyldan heima á Akureyri. Stefán Einar Sigmundsson með hundinn Plútó, Anna Lilja Stefánsdóttir og Sigmundur Einar Ófeigsson. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Anna galvösk á meðan hún er búin undir uppskurðinn. Hún segist engu hafa kviðið. Katrín Frímannsdóttir í heimsókn hjá Önnu Lilju á meðan beðið var eftir flogum. Anna Lilja með Lilly frænku sína í fanginu í Minneapolis. Til hægri er Guðbjörg Ragna Colton en þær Anna eru systkinabörn.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.