SunnudagsMogginn - 29.01.2012, Blaðsíða 23

SunnudagsMogginn - 29.01.2012, Blaðsíða 23
29. janúar 2012 23 Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, hefur enn á ný sigað her sínum á borginaHoms, sem er vígi mótmælenda í landinu. „Hryllilegt fjöldamorð átti sér stað,“sagði Rami Abdul-Rahman, forstjóri Mannréttindavaktar Sýrlands, í samtalivið fréttastofuna AP. Að minnsta kosti 30 manns létu lífið í árásum sýrlenska hersins á fimmtudag og munu smábörn vera þar á meðal. Á netinu mátti sjá upptökur af andófsmönnum sem sýndu lík barna. Einnig var ráðist á fólk í héraðinu Hama. Þar munu samkvæmt fréttastofunni DPA 40 manns hafa látið lífið. Assad er ekkert einsdæmi í sögunni. Þeir eru ófáir ráðamennirnir, sem hafa varðað feril sinn líkum og ódæðisverkum. Fæstir hafa þeir hins vegar þurft að svara fyrir gjörðir sínar. Ekki eru nema nokkur ár síðan alþjóðlegi glæpadómstóllinn í Haag var stofnaður og ein- hver reynsla er komin á störf hans, þótt ekki sé hún mikil. Spænski rannsóknardómarinn Baltasar Garzón hefur verið ötull við að reyna að kalla ráðamenn til ábyrgðar. Hann reyndi á sínum tíma að fá Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Síle, framseldan frá London til að hægt yrði að sækja hann til saka fyrir af- brot, sem framin voru í valdatíð hans. Einnig reyndi hann að sækja herforingjastjórnina í Argentínu til saka fyrir mannréttindabrot. Hann hefur beint spjótum sínum að George Bush og Osama bin Laden, ETA og al-Qaeda og rússnesku mafíunni. Garzón hefur einnig látið að sér kveða heima fyrir. Hann stefndi ráðherrum sósíal- demókrata á sínum tíma fyrir að hafa lagt á ráðin um að myrða liðsmenn hryðjuverka- samtaka Baska og hefur sú málsókn, telja ýmsir, átt þátt í því að nú hafa liðsmenn þeirra tilkynnt að þeir ætli að leggja niður vopn. Ákvörðun Garzóns um að taka upp eitt viðkvæmasta mál spænskrar nútímasögu og fara ofan í hvarf 114 þúsund manna í spænsku borgarastyrjöldinni og stjórnartíð einræðisherr- ans Franciscos Francos olli hins vegar talsverðri ólgu eins og rakið er í vikuspegli í Sunnu- dagsmogganum í dag. Gagnrýnendur Garzóns segja að hann hafi þar með gert að engu sakaruppgjöf, sem samþykkt var eftir lát Francos. Garzón segir að glæpir gegn mannkyni vegi þyngra en sakaruppgjöfin. 2010 var Garzón stefnt út af málinu og hann leystur frá störfum. Á bak við málsóknina eru hægri samtök, sem kalla sig Hreinar hendur eða Manos Limpias, sem gæta hagsmuna þeirra, sem frömdu morð í borgarastríðinu og einræðisríkinu og fylltu fjöldagrafir af líkum. Einn af starfs- bræðrum Garzóns lagði fram ákæruna. Þetta mál er svo öfugsnúið að saksóknararnir fóru fram á það að hæstiréttur vísaði því frá í málflutningi í vikunni. Kváðust þeir ekki geta annað en tekið undir með verjendum Garzóns að málið væri tilhæfulaust. Verið getur að Garzón hafi stundum seilst of langt, en hann er heill í baráttu sinni gegn refsileysi einræðisherra, glæpaforingja og hryðjuverkamanna. Garzón er ekki glæpamað- urinn heldur þeir, sem bera ábyrgð á hvarfi 114 þúsund manna á Spáni á fyrri hluta 20. aldar. Garzón skirrist ekki við að bjóða valdinu byrginn og hefur á ferli sínum aflað sér óf- árra óvina. Málaferlin á hendur manni, sem hefur gert að ævistarfi sínu að berjast gegn mönnum á borð við Bashir al-Assad, vekja furðu og það yrði skrumskæling á réttlætinu yrði hann sekur fundinn. Atlaga að rannsóknardómara „En það er nefnilega staðreynd að tvílembingar Framsóknarflokksins ganga til kosningabaráttunnar með slitna brynju, sundrað sverð og syndagjöld.“ Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra í orða- skiptum við Gunnar Braga Sveinsson, þingmann Framsóknarflokksins á Alþingi. „Nei, nei!“ Robin van Persie, fyrirliði Arsenal, þegar hann sá að taka átti ungstirnið Alex Oxlade- Chamberlain af velli í leiknum gegn Man- chester United. „Þetta eru ákveðin kafla- skipti og staðfesting á því að maður sé ekki bara að gaspra út í loftið.“ Hallfríður J. Ragnheiðardóttir sem hljaut Ljóðstaf Jóns úr Vör þetta árið. „Romney ríkisstjóri getur ekki sagt satt.“ New Gingrich sem sakar keppinaut sinn í forvali repúblikana fyrir for- setakosningarnar í Bandaríkjunum um lágkúrulegar brellur. „Einlægt hrós [er] afar gott stjórn- tæki.“ Örn Árnason leikari í fyrirlestri um hrós. „Ást mín á sannleikanum og að sannreyna hluti og þjóna almenningi er algjörlega óbreytt, hvort sem ég er í þessari vinnu eða blaðamaður. Mér finnst ég ennþá vera þjónn almennings og kjósenda. Ég vil efla orð- ræðu í þjóðfélaginu á því sem byggist á staðreyndum.“ Jóhann Hauksson, ný- ráðinn upplýsinga- fulltrúi ríkisstjórn- arinnar. „Hann ákvað að hann ætlaði að lifa.“ Olve Arnes, flugstjóri norsku þyrlunnar, sem bjargaði íslenska skip- brotsmanninum við Noreg. Ummæli vikunnar Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Stofnað 1913 Útgefandi: Óskar Magnússon Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal lætingin einnig farin. Sennilega væri athugunar- efni að tryggja að almannavarnayfirvöld fái á neyðarstundu vald til stundaratbeina af öllum fjölmiðlum landsins þegar mikla vá ber að hönd- um. Ekki er nokkur leið að treysta RÚV á slíkum stundum eins og sagan sannar. Steingrímur leggur ESB undir fót Steingrímur J. Sigfússon var ekki fyrr kominn út úr landsdómsraunum þeim sem aðeins voru nefndar hér að framan, en hann lét útbúa fyrir sig nesti og nýja skó (dagpeninga, farmiða og fín hótel) í þeim fjórum ráðuneytum sem hann er sestur yfir. Honum lá á. Stækkunarstjórinn sjálfur og næstum því jafnmerkileg stórmenni önnur urðu að fá að heyra það úr munni Steingríms sjálfs að þau Jóhanna væru búinn að losa sig við þann vonda Jón Bjarnason, sem gengið hefði með þá ólæknandi meinloku að hann ætti að gæta hagsmuna Íslands í viðræðum við ESB. Ekkert svoleiðis sveitamannahjal mun þvælast fyrir samningum lengur mátti lesa úr líkamstjáningu Steingríms J. ráðherra, ráðherra, ráðherra og ráðherra, sem nú bíður eftir því að verða líka iðnaðarráðherra. Það komu eins og óvart gamlar teiknimyndir upp í hugann þegar birtust myndir af Steingrími J. með stækkunarstjóranum og þeim hinum. Þær myndir voru bornar saman við myndir af sama Steingrími J. með hnefann á lofti, hrópandi vígorð gegn ESB fyrir síðustu kosn- ingar. Myndirnar sem í hugann komu voru af Birni gamla Jónssyni ráðherra (hann var þá eini ráðherra landsins), hinum mikla konungsskelfi hér heima annars vegar og svo þegar hann hitti kóngsa sjálfan í höllinni hans. Samhengið er slá- andi. En það sem vekur óhug og ógleði, í báðum merkingum orðsins, á þessar síðari göngu í kóngsgarð, er að Steingrímur þandi sig í Brussel um að koma hans sýndi að „nú væru samningar byrjaðir í alvöru“. Þetta verður ekki skilið öðru vísi en svo að hann stefni á að koma heim svo fljótt sem má með jafnvel enn þá „frábærari samning“ um ESB en umboðsmaður hans, félagi Svavar, kom með heim í Icesave. Þjóðin veit hvað í slíkum hótunum felst. neytinu? Morgunblaðið/Árni Sæberg Morgunblaðið/Ómar

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.