SunnudagsMogginn - 29.01.2012, Page 33

SunnudagsMogginn - 29.01.2012, Page 33
29. janúar 2012 33 ljósari. En ég held að viðhorf mitt til tónlistar sé mjög mótað af því að hafa spilað í hljómsveit í svona mörg ár. Þegar maður spilar í rokkhljómsveit spilar maður með tilfinningunum. Hvaða nótur maður er að spila skiptir ekki öllu máli, svo framarlega sem þetta hljómar vel. Þetta er fegurðin í rokktónlist; hún er öll gerð frá hjart- anu. Síðan bætist eitthvað við þegar maður fer að skrifa niður nótur. Þá verður ferlið miklu hægara og maður nálgast þetta allt öðruvísi. Það eru meiri pælingar hvað varðar form og meiri vísindi. Ég hef rætt þetta við fólk og það eru ekki allir sammála þessu en þetta er mín upplifun.“ Hluti af lifandi tónlistarlífi Hann segir margt annað úr gamla hljómsveitarheiminum nýtast sér vel. „Í popptónlist er svo mikilvægt að vera duglegur að koma sér á framfæri og það hefur nýst mér,“ segir Páll, sem finnst þetta stundum vanta á klassíska endanum. „Þetta er bara vinna. Klass- ísk tónlist er lifandi tónlist, þetta er ekki stofnanatónlist. Það skiptir máli að tónlistin sé hluti af lifandi tónlistar- lífi. Þess vegna höfum við verið að skipuleggja okkar eigin tónleika sem við gerum undir okkar eigin formerkj- um og erum ekki að bíða eftir að vera flutt í einhvers konar ríkisbatteríi. Ég vona að í Hörpu náist gott jafnvægi milli lifandi tónlistarlífs og þessa rík- isbákns sem þetta er.“ Páll byrjaði að læra á píanó þegar hann var fimm, sex ára og stundaði námið í nokkur ár. Mér fannst Mozart vera flottastur í heimi,“ segir hann og útskýrir að kvikmyndin Amadeus, um ævi tónskáldsins, hafi verið frumsýnd þegar hann var sjö ára en myndin hafði mikil áhrif á hann. „Þegar ég varð eldri fór mér að finnast rafmagnsgítarinn aðeins meira töff. Ég byrjaði að spila á gítar og var 15 að verða 16 þegar ég fór að spila í Maus og þar með voru næstu tólf árin ráðin.“ Raftónlistin brúin í klassíkina Páll tók eitt ár í raftónlist í tónlistar- skólanum í Kópavogi og notaði það ár sem undirbúning fyrir umsókn í Listaháskóla Íslands. „Raftónlistin varð síðan brúin yfir í klassískar tón- smíðar. Úr henni var góð tenging í rokkið. Þannig þróaðist þetta og núna er ég búinn að vera sjö ár í há- skólanámi!“ Hann segir doktorsnámið gefa sér kost á að einbeita sér að því að semja. „Það byggist mikið á því að vera sjálf- stæður og er brú yfir í atvinnulífið.“ Er einhver draumapöntun sem þú ert að bíða eftir? „Þetta er kannski mjög diplómatískt svar en það að vinna með góðu tón- listarfólki sem vill flytja tónlistina manns er draumapöntun. Það er mikið af góðu tónlistarfólki á Íslandi.“ Páll stóð svo lengi á sviðinu en núna er hann utan þess, fylgist bara með úr sal. Skyldi hann ekki sakna þess að koma fram? „Nei, alls ekki,“ segir hann og hlær. „Ég er ótrúlega sáttur við að sitja í salnum, ég er nógu stressaður þar. Mér finnst ég miklu meira eiga heima í því að semja tónlist sem er síðan flutt af fagmönnum.“ Kærasta Páls heitir Tui Hirv og er söngkona. „Eins og Íslendingar fara og ganga upp á Esjuna, þá fara Eistar út í skóg. Þessi mynd er ekki tekin úti í óbyggðum heldur rétt hjá þar sem við búum,“ segir Páll um þessa mynd. „Í suðurhluta Eistlands er svæði sem kallast Setumaa og er heimkynni Setu fólksins. Þarna erum við í heimsókn hjá kennaranum mínum sem á hús þar. Þetta er reyksauna. Þær virka þannig að fyrst er kveiktur eldur inni í húsinu og allt fyllist af reyk meðan hitastigið rís. Þeg- ar hitastigið hefur risið er hurðin opnuð og reyknum hleypt út. Þetta er ævaforn siður og mikil athöfn. Maður kemur út endurnærður á sál og líkama,“ segir Páll. „Rétttrúnaðarkirkja í bakgarði samyrkjubús. Þetta er á eyju sem heitir Vormsi, við vestur- strönd Eistlands. Heimsókn mín þangað hafði svo mikil áhrif á mig að ég samdi þrjú tónverk sem byggðu á því sem fyrir augu þar bar,“ segir Páll. ’ Það fylgir þessu tónlistarlífi mikið flakk og það er gaman að geta flakkað saman. Þetta hefur virkað mjög vel og verið ótrúlega gef- andi. Það myndast einhver sérstakur galdur þegar við vinnum saman. Ég held það heyrist alveg á tónlistinni. Páll Ragnar er með verk á tónleikum á Myrkum músíkdögum sem eru í Háteigs- kirkju í dag, laugardag, klukkan 14. Tónleikarnir eru með Kammerkór Suður- lands og verður þar meðal annars flutt verk hans „Kom skapari, heilagi andi“. Annað sem er á dagskrá hjá tónskáldinu eru tónleikar í Tallinn í Eistlandi og Gdansk í Póllandi í næsta mánuði, svo eitthvað sé nefnt. Frekari upplýsingar um það sem er í gangi hjá Páli má finna á facebooksíðu hans og á síðunni pallragnarpalsson.com. Á Myrkum músíkdögum

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.