SunnudagsMogginn - 29.01.2012, Page 35
29. janúar 2012 35
fyrirgefa henni fyrir að hafa tekið frá þeim
réttborinn konung.
Játvarður lést árið 1972 eftir hálfs árs
erfiða og þjáningarfulla baráttu við
krabbamein í hálsi. Þar sem hann lá
dauðvona tók Wallis í hönd hans, kyssti
enni hans og hvíslaði: „Davíð minn.“
Davíð var eitt af mörgum fornöfnum
hans. Hann var 75 ára þegar hann lést.
Tíu dögum fyrr hafði Elísabet II frænka
hans, sem var í opinberri heimsókn í Par-
ís, heimsótt hann. Wallis og Elísabet hitt-
ust síðan aftur við jarðarför Játvarðs sem
fór fram á Englandi en Elísabet hafði gefið
leyfi til að jarðneskar leifar hans, og
seinna Wallis, yrðu jarðsettar í kon-
unglegum grafreit við Windsor-kastala.
Í ferðinni til Englands gisti Wallis í
þrjár nætur í Buckingham-kastala en
sagði að framkoma konungsfjöl-
skyldunnar við sig hefði einkennst af
kulda.
Wallis óttaðist einsemdina og sagð-
ist hefðu viljað deyja á undan manni
sínum. Þegar ár var liðið frá dauða hans
var hún orðin elliær sjúklingur, talaði eins
og Játvarður væri lifandi og heyrðist jafn-
vel biðja hann um að afsala sér ekki kon-
ungdómi.
Henni hrakaði jafnt og þétt á næstu ár-
um. Hárið varð hvítt, hún missti sjón og
varð lömuð. Hún lést níræð árið 1986.
Elísabet II var meðal þeirra sem
fylgdu henni til grafar á
Englandi.
Eftir afsal konungsdóms var brúðkaupið haldið í Frakklandi.
Wallis var alla tíð
umdeild og jafn-
vel hötuð.
Játvarður horfir á sínu heittleskuðu með blik í augum.
Wallis var í marga áratugi á lista yfir best klæddu konur heims.
’
Ein frægasta
ástarsaga
tuttugustu
aldarinnar komin
á hvíta tjaldið.