SunnudagsMogginn - 29.01.2012, Síða 36

SunnudagsMogginn - 29.01.2012, Síða 36
36 29. janúar 2012 Hugmyndin að Silver of theSea kviknaði vorkvöld eitt áÍslandi fyrir tæpum þremurárum, að sögn matreiðslu- mannsins Völundar Snæs Völundarsonar. Hugmyndin hélt áfram að þróast og það varð úr að sumarið 2009 voru allar mat- armyndirnar teknar. Síðan vék hún fyrir öðrum verkefnum en í sjálfu sér lá ekkert á að klára hana enda hreinræktað gælu- verkefni höfundarins. „Ég hafði lengi gengið með þessa hug- mynd og byrjaði svo formlega fyrir þremur árum. Hluti myndanna er tekinn á Bahamaeyjum en við lögðum það á okkur að flytja íslenskan fisk þangað til að þetta yrði allt saman eftir bókinni,“ segir Völundur og hrósar samstarfs- mönnum sínum, þeim Gunnari Kon- ráðssyni ljósmyndara, Hauki Ágústs- syni, sem skrifaði allan texta, og Jóni Baldri Hlíðberg, sem teiknaði myndir. „Þetta er falleg bók þótt ég segi sjálfur frá enda er ég gríðarlega stoltur af henni og þakklátur öllum þeim sem komu að gerð hennar en það voru býsna margir þegar upp var staðið,“ segir hann. Þegar loksins kom að því að klára bók- ina, sem kom út hjá Sölku fyrir jólin, var heldur betur spýtt í lófana þannig að þetta næðist. „Það var tvennt sem stóð í mér,“ segir Völundur. „Annars vegar vantaði myndir af nokkrum tegundum fiska og svo þurfti að leggjast almennilega yfir uppskriftirnar og pússa þær til,“ seg- ir Völundur sem er staddur á Bahama- eyjum. Hann fékk góðan liðsauka á lokasprettinum. „Á endanum var áhöfnin á togaranum Vestmannaey VE 444 undir stjórn Héðins Karls Magn- ússonar komin í málið og út á ball- arhafi náði Diddi Vídó síðustu mynd- unum auk þess sem stórvinur minn Hreinn Hreinsson tók nokkar myndir og veitti okkur ómetanlega hjálp eins og honum einum er lagið.“ Bókin er óvenjuleg að því leyti að hún inniheldur einnig ítarlegar upplýsingar Uppskrifta- bók með alfræðiívafi Matreiðslumaðurinn Völundur Snær Völund- arson er höfundur nýstárlegu matreiðslubók- arinnar Silver of the Sea en þar eru fiskréttir í fyrirrúmi. Hann segir forréttindi að fá að skapa eitthvað gómsætt úr svona einstöku hráefni Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is „Ég er gríðarlega hrifinn af fiski sem hrá- efni og hef gaman af því að leika mér með hann. Ég reyni yfirleitt að para hann sam- an við bragðtegundir sem draga fram eig- inleika hans án þess að yfirgnæfa,“ segir Völundur Snær. Matur Olían, sítrónu- og appelsínusafinn og einnig sítrónu- og appelsínubörkurinn eru sett í skál og blandað saman jafnframt því sem kryddað er með salti og pipar. Síðan er avókadó- og tómatbitunum bætt út í blönduna og hrært í með skeið áður en borið er fram. Loks er dálitlu af fín- skorna graslauknum sáldrað yfir. Kimchee-salatsósa 240 ml sýrður rjómi 1 msk ferskur sítrónusafi 2 msk kimcheesósa Öll efnin eru sett í skál og þeim blandað vandlega saman. Rétturinn borinn fram 2 gulir kaffifíflar (endive) (blöðin tekin af) 2 rauðir kaffifíflar (endive) (blöðin tekin af) 2 habanera-piprar (sneiddir þunnt) 5 kaffifíflalaufum er raðað á disk og litirnir látnir skiptast á. Síðan er nokkru af kimchee-salatsósunni ausið yfir blöðin og ein kletta- krabba- kaka sett á hvert þeirra. Með skeið er dálitlu af súraldins- og avókadóblöndunni ausið á hverja köku og loks lögð sneið af habanerapipar ofan á. Klettakrabbi 400 g klettakrabbakjöt 1 heilt egg 1 eggjarauða 1 msk brauðrasp gróft salt og nýmalaður, svartur pipar Klettakrabbakjötið er kryddað með salti og pipar. Síð- an eru öll efnin sett í skál og þeim blandað vandlega saman. Ríflega matskeið af blöndunni er sett á bökunar- plötu og reynt að ná 20 skömmtum úr blöndunni. Bak- araofninn á að hita fyrirfram í 200°C og baka krabbakök- urnar í fjórar mínútur eða þar til þær eru fullbakaðar. Súraldins- og avókadó-vínegretta 180 ml vínberjafræjaolía 2 msk ferskur sítrónusafi 2 msk ferskur appelsínusafi 1 tsk fínsaxaður sítrónubörkur 1 tsk fínsaxaður appelsínubörkur 240 ml avókadó (skorið í smáa bita) 4 plómutómatar (afhýddir, fræin fjar- lægð og skornir í smáa bita) 1 msk fínskorinn graslaukur gróft salt og nýmalaður, svartur pipar

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.