SunnudagsMogginn - 29.01.2012, Page 43

SunnudagsMogginn - 29.01.2012, Page 43
29. janúar 2012 43 ingar með stökum verkum eða litlum seríum úr þessari röð, Equiviocal. Hver er munurinn á því að sýna stök myndverk eða setja þau fram í bók? „Þegar ég byrjaði á þessari röð, 2007, var ég að vinna að sýningu og var ekkert með bók í huga. Ég sýndi sum verkanna 2008 og fljótlega eftir það fæddist hug- myndin að vinna heila bók. Ég hefði ekki unnið þetta lengi að þessari seríu hefðu verkin bara verið hugsuð fyrir sýningu. Bókin varð til þess að ég tók lengri tíma og hélt áfram að bæta nýjum þáttum í heild- arverkið. Í raun finnst mér þetta nú virka betur sem bók en sem sýningarverkefni,“ við- urkennir hún. „Þar sem ég hef sýnt þessar myndir hafa fá verk komist upp hverju sinni en þá hef ég líka getað farið ýmsar leiðir í framsetningunni. Farið til dæmis út í drungalega stemningu eða lagt áherslu á liti og form. Í bókinni get ég rað- að þessu saman á ákveðnari hátt, búið til frásagnarlínu og stjórnað betur hvernig fólk skynjar þetta.“ Tíminn þegar hún var að alast upp Þessar myndir Katrínar eru iðulega teknar á einhverskonar skilum. Stórisar í glugg- um vekja upp minningar úr bernsku, þetta er óræður tími. „Ég vel ekki að mynda á stöðum þar sem nýjasti Mac-skjárinn lendir á mynd- inni,“ segir hún og brosir. „Inni í hús- unum er sá tími þegar ég er að alast upp, og enn eldri. Af hverju? Gæti verið ein- hver nostalgía eða hrifning sem býr í mér. Þegar ég sé staði sem ég hrífst af bið ég oft um að fá að mynda þar. Í Póllandi sá ég gamalt hús sem ég hreifst af og sagði við eigandann að ég væri að safna myndum úr gömlum húsum, hvort ég mætti mynda. „Þetta er ekkert gamalt hús, það var byggt árið 1940,“ sagði maðurinn móðg- aður.“ Katrín hlær. Hún notar orðið nostalgíu en það má líka tala um ljóðræna stemningu í bók- inni. Katrín segir langan tíma hafa farið í að búa til myndflæðið, velja myndir, raða þeim saman, og hreinsa hugsunina eins og hún birtist í verkinu. Bíómyndir voru ástæðan Um tíma eftir að Katrín lauk námi starf- aði hún við tísku- og auglýsinga- ljósmyndun. Eftir að hafa búið í New York um aldamótin síðustu hefur hún starfað að sinni eigin skapandi ljós- myndun. Hún hefur unnið með ýmsar myndraðir, eins og nú og áður í Mórum, en þótt útlit verkanna sé ólíkt frá einni seríu til annarrar er andrúmsloftið iðu- lega dularfullt í þessum verkum. „Mórar var meira um Ísland, allar myndirnar voru teknar hér heima og fólk þekkti kannski staðina þótt myndirnar væru óskýrar, en þessi verk eru frekar landamæra- og tímalaus. En ég hef iðulega hugsað verkin mín í seríum, það heldur manni við efnið. Það tekur langan tíma að vinna að hverri. Stundum er ég komin með nokkrar myndir sem ég ætla að gera að einhverju en hætti svo við, það er allur gangur á því. En ég er alltaf með nokkrar hug- myndir í gangi, og stundum fara þær í allt aðra átt en ég ætla í byrjun.“ En sækir Katrín sér stuðning í and- rúmsloft verka annarra listamanna, ljós- myndara, rithöfunda …? „Örugglega í verk ljósmyndara og myndlistarmanna, en ég sæki mest í bók- menntir og bíómyndir,“ segir hún. „Þar sem ég hrærist mikið í þessum myndlist- arheimi tek ég líklega ekki eins eftir því, en bækur og kvikmyndir, þangað hef ég sótt. Ég var mikið að lesa Haruki Mura- kami þegar ég vann að þessum verkum og í þeim er oft einskonar súrrealismi; persóna er á tveimur stöðum á sama tíma, og það hefur allt áhrif – þótt maður geti aldrei sagt hvað síast inn. Líklega voru bíómyndir ástæða þess að ég fór út í ljósmyndun á sínum tíma. Ég fór sautján ára á Franska kvikmyndahá- tíð og uppgötvaði þann miðil. Ég man til dæmis hvernig allskonar ljósmynda- rammar birtust í Moon in the Gutter (La Lune dans le caniveau) eftir Beineix. Það varð til þess að ég fékk meiri áhuga á ljósmyndum. Ég hef sótt kvikmyndahá- tíðir og lagt mig eftir ákveðnum kvik- myndum, en hef samt ekki haft áhuga á að fara út í þann miðil sjálf.“ Sínar sögur segir Katrín nefnilega í ljósmyndaröðum. ’ Ég vil helst ekkert tala um staðsetn- inguna, það þvælist bara fyrir fólki sem sér verkin. Ef ég segi Stykk- ishólmur þá gæti það spurt hvort þetta væri rauða hús- ið þar.“ „Þetta á ekki að vera augljóst, frekar óræðar vísanir. Það er gott ef fólk áttar sig smám saman á tenginum milli mynda,“ segir Katrín Elvarsdóttir um myndröðina. Morgunblaðið/Kristinn Stúlka og eldur, frá 2009, er upphafsmynd bókar Katrínar Elvarsdóttur, Equivocal. „Þessi verk eru frekar landamæra- og tímalaus,“ segir hún.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.