Morgunblaðið - 06.03.2012, Side 28

Morgunblaðið - 06.03.2012, Side 28
28 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2012 Sudoku Frumstig 8 2 9 6 7 2 4 1 3 9 8 4 1 6 9 3 7 8 8 3 1 4 1 6 9 4 2 8 5 9 7 3 2 1 2 8 7 9 2 5 8 7 1 2 5 4 4 7 3 9 5 7 1 9 3 7 8 5 7 9 8 4 7 3 8 6 4 3 6 9 4 3 1 8 6 4 1 6 2 7 4 9 5 3 8 7 9 3 5 6 8 2 4 1 5 8 4 3 2 1 7 9 6 2 1 9 6 7 3 4 8 5 8 4 7 9 1 5 6 2 3 3 5 6 2 8 4 9 1 7 9 2 8 1 5 6 3 7 4 6 7 1 4 3 2 8 5 9 4 3 5 8 9 7 1 6 2 9 6 2 4 7 5 3 8 1 5 1 4 3 2 8 6 7 9 8 7 3 1 6 9 2 4 5 7 2 5 8 4 6 9 1 3 6 3 1 9 5 7 4 2 8 4 9 8 2 3 1 5 6 7 2 8 6 7 9 3 1 5 4 3 5 7 6 1 4 8 9 2 1 4 9 5 8 2 7 3 6 3 9 8 6 7 4 5 2 1 2 1 5 8 3 9 4 6 7 4 7 6 5 1 2 9 3 8 8 2 3 1 5 7 6 4 9 1 6 4 3 9 8 2 7 5 9 5 7 4 2 6 8 1 3 5 4 1 2 8 3 7 9 6 6 3 9 7 4 5 1 8 2 7 8 2 9 6 1 3 5 4 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig töl- urnar 1-9 og aldrei má tví- taka neina tölu í röðinni. Í dag er þriðjudagur 6. mars, 66. dagur ársins 2012 Orð dagsins: Og eins og vér höfum borið mynd hins jarðneska, munum vér einnig bera mynd hins himneska. (I. Kor. 4, 16.) Fyrir rúmu ári, 18. desember2010, varð öflug sprenging í reglunarspenni í einni af fimm af- riðlaeiningum álvers Alcoa í Reyð- arfirði. Útleiðsla í kapalinntaki eins reglunarspennis olli sprengingunni og við það kviknaði í olíu sem notuð er til að kæla spenninn en hver afrið- ill er byggður upp af reglunarspenni, afriðlaspenni og tveimur „afriðlum“ eða díóðurýmum, sem síðan tengjast straumleiðurum kerskálans.“ x x x Eftir að hafa lesið þessa „frétt“ íauglýsingu HRV Engineering í Morgunblaðinu í gær hugsaði Vík- verji með sér að hann þyrfti ekkert að skrá sig í verkfræði í Háskóla Ís- lands, það væri bara nóg að lesa Moggann stafna á milli. Nú veit Vík- verji allt um reglunarspenni, afriðla- einingu, afriðlaspenni og díóðurými. Það hljóta líka að vera þarna ein- hverjir milliriðlar. Burtséð frá öllu gamni þá er það gleðiefni hve vel hefur tekist að end- urnýja afriðlaeiningu álversins og hversu mögnuð íslensk verkfræði- fyrirtæki eru á heimsvísu. x x x Víkverji brá sér á dögunum á veit-ingastaðinn American Style og lét þar undan þrýstingi um að nýta sér tilboð um ókeypis málsverð fyrir yngsta fjölskyldumeðliminn, yngri en 12 ára. Hafði Víkverji þá ekki komið inn á þennan stað í næstum ár. Þétt var setið af fjölskyldufólki og greinilegt að tilboðið virkaði á fleiri en Víkverja. En verðbólgu- draugurinn birtist þarna ljóslifandi þegar matseðillinn var skoðaður. Réttirnir höfðu hækkað verulega í verði frá því fyrir ári og þannig er það eflaust hjá öðrum veitinga- stöðum og fyrirtækjum sem veita einhverja þjónustu. Allt hefur hækk- að. En það sem olli Víkverja mestum vonbrigðum var að matarskammt- urinn hafði minnkað, ekki það að Víkverji fitnar ekki á meðan, en að borga meira fyrir minna er óvið- unandi. Forréttur með þremur munnbitum af kjúklingi á 800-kall er lítið annað en okur! víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 mang, 4 þegj- andaleg, 7 ganga, 8 tákn, 9 tek, 11 stillt, 13 dauði, 14 hyggur, 15 haf, 17 tunnan, 20 samtenging, 22 dreggjar, 23 dulin gremja,24 valska, 25 kaka. Lóðrétt | 1 skaut, 2 lagfær- ing, 3 spilið, 4 tölustafur, 5 braka, 6 hæð, 10 upp- lagið,12 hreinn, 13 yf- irbragð, 15 sýgur, 16 óhræsi, 18 sonur, 19 híma, 20 erta, 21 tómt. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 fagurkeri, 8 grund, 9 lúður, 10 und, 11 rætur, 13 af- ræð, 15 þjórs, 18 argur, 21 ull, 22 gjall, 23 vappa, 24 fagurgali. Lóðrétt: 2 alurt, 3 undur, 4 kulda, 5 ræður, 6 agar, 7 fríð, 12 urr, 14 fær, 15 þæga,16 óraga, 17 sultu, 18 alveg, 19 gepil, 20 róar. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Teoría og praxis. Norður ♠Á63 ♥752 ♦K ♣ÁKD742 Vestur Austur ♠1087 ♠K942 ♥KDG ♥Á1098 ♦97543 ♦D86 ♣109 ♣G6 Suður ♠DG5 ♥643 ♦ÁG102 ♣853 Suður spilar 3G. Fyrir mörgum árum var „Broad- way“ Billy Eisenberg gestur íslensku bridshátíðarinnar og spilaði þá við Al- an Sontag. Eitt sinn vakti Eisenberg á spaða og Sontag lyfti í tvo. Allir pass og 10 slagir á borðinu. „Right in theory, wrong in practice,“ sagði kapp- inn djúpri röddu og tók næsta spil úr bakkanum. Lífsreyndur maður, sem lætur ekki duttlunga tilverunnar slá sig út af laginu. Sagnhafi dagsins gæti notað fras- ann, óbreyttan. Út kemur hjarta og vörnin tekur fjóra fyrstu slagina, en síðan skiptir austur yfir í tígul. Nú kemur tvennt til greina: (1) Yfirdrepa ♦K með ás og svína fyrir ♠K. (2) Treysta á samgang í laufinu til að inn- byrða ♦Á. Svíningin er 50%, en 2-2 lega 40%. Fyrri leiðin er því „fræðilega rétt, en röng í reynd“. 6. mars 1873 Ofsaveður gerði við suðaust- urströndina og er talið að fimmtán franskar fiskiskútur hafi farist. Fjörutíu lík rak á land og voru þau jarðsett á Stafafelli í Lóni í Austur- Skaftafellssýslu. 6. mars 1905 Botnvörpugufuskipið Coot (blesönd), fyrsti togari í eigu Íslendinga, kom til Hafnar- fjarðar. Skipið gekk „10 mílur á vöku, með 48 hesta afli,“ sagði í Ísafold. Aflann átti að leggja upp „til sölu í soðið eða til verkunar“. Coot strandaði í desember 1908. 6. mars 1964 Kvikmyndaleikarinn Gregory Peck hafði viðdvöl á Keflavík- urflugvelli á leið frá Bretlandi til Bandaríkjanna. Fyrst í stað virtist enginn veita honum eft- irtekt en „ýmsir leituðu til leikarans og báðu um eigin- handarskrift er í ljós kom hver hann var,“ sagði Morgun- blaðið. 6. mars 1998 Frost mældist -34,7° C í Mý- vatnssveit, það mesta á land- inu í áttatíu ár. „Fimbulkuldi,“ sagði Morgunblaðið. 6. mars 2010 Þjóðaratkvæðagreiðsla var um Icesave-lögin sem forseti Íslands hafði synjað staðfest- ingar 5. janúar. Rúm 98% þeirra sem afstöðu tóku höfn- uðu lögunum. Kjörsókn var 62,7%. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Ólöf Birna Garðarsdóttir, grafískur hönnuður, er 45 ára í dag. Fjölskylda Ólafar bannaði henni að mæta til vinnu dag af því að það á að koma henni á óvart í tilefni dagsins. „Ég hef ekki hugmynd um hvað þetta óvænta er, en ég er búin að læra að höndla svona óvissu þótt ég vilji helst fá að stjórna öllu og skipuleggja allt í þaula,“ segir Ólöf. Þrátt fyrir þessa óvæntu uppákomu sem hún á von á þá hefur hún skipulagt skvísukvöld í tilefni dagsins. Hún mun bjóða nokkrum vel völdum skvísum til veislu þar sem allir þurfa að bera hárkollu. „Ég gerði þetta líka þegar ég var 35 ára og þetta var það gaman að ég ákvað að gera þetta aftur,“ segir Ólöf. Ólöf rekur ásamt samstarfsfélaga sínum fyrirtækið Reykjavik Letterpress. „Það er alveg yndislegt að vinna við eitthvað sem manni þykir skemmtilegt að gera. Það er alltaf ótrúlega gaman og mikið fjör í vinnunni hjá okkur. Núna erum við á fullu að gera fermingarkort og einnig eru pantanir fyrir brúðkaup byrjuð að streyma inn,“ segir Ólöf. „Ég skammast mín ekkert fyrir að vera að eldast. Ég er enn að þroskast og að læra að njóta lífsins,“ segir Ólöf um tilfinninguna sem fylgir því að eldast. Ólöf Birna, grafískur hönnuður, er 45 ára í dag Var bannað að vinna í dag Flóðogfjara 6. mars Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 5.04 3,6 11.25 0,6 17.29 3,5 23.36 0,5 8.16 19.03 Ísafjörður 1.02 0,2 7.03 1,9 13.32 0,1 19.32 1,8 8.25 19.04 Siglufjörður 3.04 0,3 9.17 1,2 15.43 0,1 21.58 1,1 8.08 18.47 Djúpivogur 2.23 1,8 8.33 0,4 14.36 1,7 20.42 0,2 7.47 18.31 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú getur réttlætt allt sem þú hefur tekið þér fyrir hendur síðastliðnar tvær vikur og hugsanlega verður ætlast til þess af þér. Við njótum öll góðs af styrk annarra. (20. apríl - 20. maí)  Naut Sköpunargáfa þín og leikni þín með börn verða vel metin í umhverfi sem er vana- lega ófrjótt og leiðilegt. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Vanalega heldurðu öllum persónu- legum fréttum og smáatriðum fyrir sjálfan þig. Samvera styrkir sambönd svo nú er rétti tíminn til að skipuleggja uppákomu. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Það er óþarfi að taka alla skapaða hluti bókstaflega því það kallar bara á álag og örvæntingu. Tilfinningarnar virðast ekki tengjast neinum nýliðnum atburðum. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Reyndu að halda þig sem mest við dag- skrána, því nú er ekki rétti tíminn til þess að breyta út af. Njóttu ávaxta erfiðis þíns. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Samræður við nána vini og maka valda þér bara gremju í dag og ekkert miðar. Ekki reyna að berja hlutina í gegn. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Er eirðarleysið eitthvað að angra þig? Slakaðu á. Vertu einbeittur í huga og tali, það hjálpar við samningagerð. Vertu því þol- inmóður því allt gengur upp um síðir. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Varastu ofríki því það skemmir fyrir hvort heldur um er að ræða samband við samstarfsmenn eða vini. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Það sem þú segir við fjölskyldu þína eða gerir á heimilinu í dag getur haft mikil áhrif á framvindu mála. Gefðu þér tíma til að vera með fjölskyldunni. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Dagurinn hentar illa til mikilla framkvæmda. Punktaðu stöðuna hjá þér, inn- an tíðar verður þú langt frá núverandi að- stæðum og snýrð ekki aftur. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Hafðu góðar gætur á peningunum þínum næstu tvær vikurnar og fylgstu með því sem þú eyðir í gjafir og þess háttar. Gefðu þér tíma til að tala við fólkið í kringum þig. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Ef eitthvað hvílir þungt á þér þá er gott að leita uppi aðra sem hafa lent í ein- hverju svipuðu. Góð samskipti og umræða verða til að skapa ánægju allra aðila. Stjörnuspá 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. Bf4 Bg7 5. e3 c5 6. dxc5 Da5 7. Hc1 dxc4 8. Bxc4 O-O 9. Rf3 Dxc5 10. Bb3 Rc6 11. O-O Da5 12. h3 Bf5 13. De2 Re4 14. Rd5 e5 15. Bg5 Rxg5 16. Rxg5 Dd8 17. h4 h6 18. g4 Bd7 19. Re4 Dxh4 20. f3 Kh8 21. Hf2 f5 22. Hh2 Dd8 Staðan kom upp í B-flokki Corus- skákhátíðarinnar sem lauk fyrir skömmu í Wijk aan Zee í Hollandi. Stórmeistarinn Viktorija Cmilyte (2503) frá Litháen hafði hvítt gegn stöllu sinni og kollega frá Úkraínu, Katerynu Lahno (2557). 23. Hxh6+! Bxh6 24. Dh2 Kg7 25. Hxc6! Bf4 26. Rxf4 bxc6 27. g5! Hh8 28. Re6+! Bxe6 29. Dxe5+ Kh7 30. Rf6+ Dxf6 31. Dxf6 Bxb3 32. De7+ Hvítur hefur nú tækni- lega unnið tafl en vegna fjölda mistaka í úrvinnslunni náði svartur jafntefli í 58. leik. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Hvítur á leik. Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.