Morgunblaðið - 06.03.2012, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 06.03.2012, Blaðsíða 11
DAGLEGT LÍF 11 í leiðinni. þess sem maður lendir í flugi með þessari eða hinni freyjunni. Þess vegna er þessi vikulegi hittingur í gönguferðunum svo dýrmætur. Það myndast öðruvísi og dýpri vinskapur en gegnum vinnuna eingöngu,“ segir Hugborg. Ljósmyndaáhuginn nýtur sín Báðar eru þær stöllur miklar útivistarkonur og finnst ekkert betra en að vera úti og ganga í nátt- úrunni. Þegar góður félagsskapur bætist síðan við sé auðséð hvers vegna þær vilji ógjarnan missa af miðvikudagsgöngunni með hópnum. Ljósmyndun hefur líka lengi verið áhugamál hjá Hugborgu og í göngu- ferðunum gefst henni vikulegt tæki- færi til að munda vélina úti í nátt- úrunni. Framundan er hjá hópnum að fara í sumarbústaðarferð í Húsafell í apríl og ganga þar auk þess að fara í ýmsar skemmtilegar göngur út fyrir höfuðborgarsvæðið. Forkólfar Þær stöllur Hugborg og Gurrý en Gurrý (t.h.) stofnaði hópinn. Ganga Hópurinn á gangi í Heiðmörk í fallegu veðri fyrir skömmu. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2012 Útivist getur verið margskonar og áhugamál fólks eru bæði fjölbreytt og ólík. Sumum hentar að hlaupa á sem skemmstum tíma upp fjall og líta vart til hægri né vinstri á leiðinni, á meðan aðrir kunna því best að fara sér hægt og skoða til dæmis lággróð- urinn, fara í rólegheita grasaferð, leita uppi fjallagrös eða aðrar lækn- ingajurtir sér til heilsubótar, nú eða tína jurtir í te eða til að krydda mat- inn með. Þeim sem stunda fugla- skoðun fer fjölgandi hér á landi og er það vel, enda býður slíkt upp á góða útivist og aukna þekkingu á fuglum. Sumum hentar að fara í skipulagðar fuglaskoðunarferðir þar sem iðulega er með í för einhver fuglafróður. Aðrir rölta um í náttúrunni í fuglaskoðun á eigin vegum og forsendum, kannski til að leita að einum ákveðnum fugli eða til að skoða margar tegundir fugla. Þeir sem hafa áhuga á fuglum eða langar til að auka við þekkingu sína um fugla ættu ekki að láta framhjá sér fara erindi sem flutt verður í kvöld á vegum Fuglaverndar. Erindið fjallar um vorboðann ljúfa, sandlóuna, og yfirskriftin er Ástir og örlög sandlóunnar. Vigfús Eyjólfsson og Böðvar Þórisson munu segja frá rannsóknum sínum á sandlóunni. Þeir munu segja frá merkingum í Bol- ungarvík, Önundarfirði og á Stokks- eyri og hvernig endurheimtur og af- lestrar af litmerktum fuglum hérlendis og erlendis hafa varpað ljósi á ferðir, stofnstærð, útbreiðslu, varpárangur og fjölmargt annað í lifnaðarháttum þessa smávaxna og kvika vaðfugls, en hluti stofnsins fer alla leið til NV-Afríku. Fræðslufundir Fuglaverndar eru haldnir í húsakynn- um Arion banka, Borgartúni 19, geng- ið inn um aðalinngang á austurhlið. Fundurinn hefst klukkan 20:30 og er öllum opinn svo lengi sem húsrúm leyfir. Aðgangur er ókeypis fyrir fé- laga í Fuglavernd en aðgangseyrir er 500 krónur fyrir aðra. Fuglaskoðun er góð útivist Ljósmynd/Jóhann Óli Hilmarsson Ástarfuglinn Lóan dregur margan manninn út í náttúruna með fögrum söng. Ástir og örlög sandlóunnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.