SunnudagsMogginn - 18.03.2012, Blaðsíða 2

SunnudagsMogginn - 18.03.2012, Blaðsíða 2
2 18. mars 2012 Við mælum með … Laugardagur 17. mars Nú fer hver að verða síðastur að upplifa Nösu í allri sinni dýrð og gleyma sér á stærsta dansgólfi Reykjavíkur. Páll Óskar verður gordjöss á uppáhaldstónleikastaðnum sín- um, þeytir skífum alla nóttina, spilar öll bestu partílög ver- aldar og syngur svo öll sín bestu lög. Sérstakur gestur er strákabandið Blár ópal. Morgunblaðið/Ómar Páli Óskari á Nösu 4 Hafði aldrei verið til vandræða Bandaríska hermanninum sem gekk berserksgang í Afganistan lýst sem rólyndismanni. 18 Þeirra eigin orð Landsdómur í máli og myndum. 28 Hef lært að lifa með áföllunum „Það er sagt að tíminn lækni öll sár. Ég hef svosem enga sérstaka trú á því en maður lærir að lifa með áföllunum,“ segir Helgi Pétursson. 32 Hönnunarvor í lofti Hönnunarmars fer fram í fjórða skiptið dagana 22.-25. mars næst- komandi. Þessi fjögurra daga hönnunarhátíð er full af fjölbreyttum við- burðum sem sýna það besta sem er í gangi í íslenskri hönnun. 34 Mun met Zarra gossa? Messi og Ronaldo eiga ennþá nokkuð í land með að velta mesta markaskorara Spán- arsögunnar úr sessi, Telmo nokkrum Zarra. 40 Blessuð sólin elskar allt Loksins loksins virðist vorið í raun vera handan við hornið. Farið er að birta og sólin lætur sjá sig. Lesbók 42 Mitt hugglundur „Þetta átti að vera hlægilegt,“ segir Magnús Pálsson um sýningu sína í Kling & Bang gallerí og segist ekki gera krísulist. 47 Myndverk sem tala ... Viðamikil sýning á verkum katalónska málarans Antoni Tàpies hefst á Kjarvalsstöðum í dag. Listamaðurinn, sem lést í síðasta mánuði, 88 ára að aldri, var einn kunnasti myndlistarmaður Evrópu. 24 Efnisyfirlit Forsíðumyndina tók Kjartan Þorbjörnsson, Golli, af Láru Stefánsdóttur. Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans: Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson,Börkur Gunnarsson, Helgi Snær Sigurðsson, Inga Rún Sigurðardóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristín Heiða Kristinsdóttir, María Ólafsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Silja Björk Huldudóttir, Skapti Hallgrímsson. Morgunblaðið/Árni Sæberg 8 Augnablikið Föstudagskvöld eru kjörin til þess aðslappa af fyrir framan sjónvarpið yfireinhverri góðri mynd eftir að hafa lagthart að sér alla vikuna í vinnu. Eða það finnst mér allavega. Síðastliðinn föstudag rask- aðist planið hins vegar allhressilega. Þegar ég kom heim klyfjuð pokum eftir að hafa heimsótt vel valdar verslanir í nágrenni vinnustaðarins í Ár- bænum með hráefni í heimabakaða pítsu og einn kaldan á kantinum skynjaði ég að það var ekki allt eins og það átti að vera. Það var einhver pirringur yfir manninum og börnin í greinilegu uppnámi. Sjónvarpið var bilað! Það bara slökkti á sér í miðri Cars-mynd. Skjárinn var jafnsvartur og svartasta svarthol og til viðbótar var blikkandi rautt ljós á því sem sendi frá sér einhvers konar kóða, sann- kallað neyðarkall. Þar sem þetta átti sér allt stað eftir klukkan sex á föstudegi var engin von til þess að koma sjónvarpinu strax í viðgerð. Og svo er aldrei neinn sem ræður neinu að vinna á laug- ardögum svo þarna var það strax orðið ljóst að helgin yrði sjónvarpslaus. Hvað gerir maður þegar það er ekki í boði að horfa á sjónvarp? Strákarnir fóru áreiðanlega fyrr að sofa en venjulega á þessum degi og foreldrarnir, þeir drógu fram rykugt borðspil og spiluðu, sem var fyrirtaks skemmtun. Og fóru líka heldur fyrr að sofa. Morguninn eftir var auðvitað ekki hægt að horfa á neitt morgunsjónvarp barnanna enda ekki mikill tími til stefnu áður en við héldum í íþrótta- skólann. Sunnudagsmorgunninn varð ennþá drýgri þegar barnasjónvarpið var tekið úr jöfn- unni, dagskráin á RÚV er svosem ekkert löng en það getur verið erfitt að draga litla sjónvarps- sjúklinga, sem eru glaðir yfir að horfa loksins á barnaefni með íslensku tali, frá skjánum. Fyrir hádegi var bæði spilað lúdó og snákar og stigar og farið út í fótbolta og að róla. Mjög hressandi. En mikið saknaði ég Borgen um kvöldið, sem varð hið huggulegasta þrátt fyrir skort á danskri dramatík. Ég fór upp í rúm að lesa klukkan tíu því það var ekkert annað að gera og mikið sem það er huggulegt að leggjast með Reacher sér við hlið. (Hafa ekki örugglega allir lesið þessar frábæru spennubækur eftir Lee Child?) Á mánudaginn fór sjónvarpið loks í viðgerð. Tómarúmið varð enn áþreifanlegra og skjanna- hvíti veggurinn blasti við þar sem sjónvarpið stóð. Eldri sonurinn (4 ára) stakk upp á því að sjón- varpið hefði bara þurft að hvíla sig. Það er ekki svo fjarri lagi, nema hvað það vorum við, sem þurftum að hvíla okkur á því. Helgin var svo afslappandi að þetta var eins og að fara í sumarbústað. Ps. Áður en þið farið að hafa of miklar áhyggjur þá var hægt að laga sjónvarpið og það er komið á sinn stað. Pps. Sjónvarp er frábært en á eyðieyju tæki ég bækur framyfir það. Ég les bækur á hverjum ein- asta degi bæði fyrir mig sjálfa og synina. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Reuters Svarthol sjónvarpsins Bandaríski leikarinn George Clooney var handtekinn á föstudag þar sem hann tók þátt í mótmælum fyrir utan sendiráð Súdans í Wash- ington. Var hann leiddur á brott í handjárnum, að sögn sjónarvotta. Segir á vef Washington Post að auk Clooney hafi nokkrir aðrir mót- mælendur verið handteknir en Clooney hafi verið varaður við af lögreglu í þrígang áður en hann var tekinn höndum. Veröld AFP Clooney handtekinn Kjarvals- stöðum Sýning á verk- um Antonis Tàpies, eins fremsta málara og myndhöggv- ara samtímans, verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur – Kjar- valsstöðum í dag, laugardag. Tà- pies lést fyrir réttum mánuði, 88 ára að aldri og er sýningin á Kjarvalsstöðum sú fyrsta sem opnuð er eftir andlát hans. Rómeó og Júlíu Ballettinn Rómeó og Júlía eftir Kenneth MacMillan við tónlist Sergeis Prokoffiefs í Royal Opera House í Lundúnum verður sýndur í beinni útsendingu í Háskólabíói fimmtudaginn 22. mars kl. 19:15.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.