SunnudagsMogginn - 18.03.2012, Blaðsíða 41
18. mars 2012 41
LÁRÉTT
1. Runna og klukku ungur heldur á. (10)
7. Geymið menntun í grjótinu. (8)
9. Símon fær hvell frá sögupersónu. (9)
10. Róandi hjá guði gefur okkur grænmeti. (7)
12. Hellið að gullnum sið. (5)
13. Ánægðar vegna suðuráttar. (6)
14. Mín er vandræðagyðja. (7)
15. Syrgi lögg er reynist vera sérstök hlíf. (11)
17. Spil tannlæknis í Afríku. (8)
18. Ekki ennþá ein heldur sérstæð. (7)
20. Ást og erlendur sonur og barn í lausaleik rétt fyrir
miðja síðustu öld. (11)
21. Fiska eftir klæði. (5)
25. Íraki bað einhvern veginn um búðina. (8)
27. Agn flöktir fyrir líkamshluta. (7)
28. Dóttir Loka skammi vondan stað. (7)
30. Af hverju hnjóð þegar hægt er að aflýjast? (7)
33. Allsófær um að verða einhvern veginn annað en
óheppinn. (8)
34. Golfklúbbur Reykjavíkur er fyrir okkur næstum
150. (5)
35. Fugl í Norður-Ameríku nær að harðna. (7)
36. Mjölni gefur bana og ávöxt. (10)
37. Einar fær virðingartitil þótt hann þrífi. (7)
LÓÐRÉTT
1. Drukkin með tilfinningu. (5)
2. Tannstæði Orra finn í borg. (7)
3. Flúnar í gróðurinn. (6)
4. Slægjur vaxa fyrir dýr. (11)
5. Hross lagt og sett í hóp. (7)
6. Fis, kamer og kið birtast í stjörnumerkinu. (11)
7. Laufgaður sproti í fjölmiðli. (10)
8. Húð sem helst ekki í eigu neins? (8)
9. Óætur matur á krá vegna tækis. (9)
11. Sárar fá vant sem skortir. (9)
16. Svæðið sem Helgi á? (6,5)
19. Lafi hjá málara. (5)
22. Ari fær fyrstu frétt með drykk. (9)
23. 5A kalli og uppfylli ekki. (7)
24. Mikelína fer úr nútímaleikhúsi fyrir í aðra bygg-
ingu. (6)
26. Laumaðir í kíló þeim eru í fötum. (8)
29. Finnur Sæmundur þokkalega siðsemi? (7)
31. Kona í ÍR sér myndir. (6)
32. Fjall viðskiptaskjala. (5)
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn
krossgátunnar. Senda skal þátt-
tökuseðilinn í umslagi merktu:
Krossgáta Morgunblaðsins,
Hádegismóum 2, 110 Reykjavík.
Frestur til að skila úrlausn kross-
gátu 18. mars rennur út á hádegi
23. mars. Nafn vinningshafans birt-
ist í Sunnudagsmogganum 25. mars. Heppinn þátt-
takandi hlýtur bók í vinning. Vinningshafi krossgát-
unnar 11. mars er Sigurvin Ólafsson, Kaplaskjólsvegi
91, Reykjavík. Hann hlýtur að launum bókina Frönsk
svíta eftir Irène Némirovsky. Forlagið gefur út.
Krossgátuverðlaun
Reykjavíkurskákmótið 9. um-
ferð:
Hou Yifan – Caruana
Hér réðust úrslit 27. Reykja-
víkurskákmótsins. Kínverski
heimsmeistarinn, sem hafði
teflt flókna miðtaflsstöðu af
hreinni snilld gegn stigahæsta
skákmanni mótsins, gat nú
leikið 41. Rac4! sem á að vinna,
t.d. 41. … Hd8 42. Ra5! Bxe4 43.
He2 og vinnur mann eða 41. …
f6 42. Rd7! Ba6 43. Rdb6 os.frv.
Með sigri hefði Hou Yifan unnið
mótið en Caruana hékk á jafn-
tefli og varð því einn efstur.
Skákin í heild gekk þannig fyrir
sig:
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.
Ba4 Rf6 5. 0-0 b5 6. Bb3 Bc5 7.
c3 d6 8. d4 Bb6 9. h3 0-0 10. Be3
h6 11. Rbd2 He8 12. He1 Bd7 13.
Db1 Ra5 14. Bc2 c5 15. d5 c4 16.
b4 cxb3 17. axb3 Bxe3 18. Hxe3
Rb7 19. b4 Rh5 20. Bd3 Rf4 21.
Bf1 Hf8 22. c4 bxc4 23. Bxc4 a5
24. bxa5 Rxa5 25. Db4 Rxc4 26.
Hxa8 Dxa8 27. Rxc4 Da1 28. He1
Da2 29. Rfd2 Hc8 30. He3 Dc2
31. Kh2 Rd3 32. Db7 Rc5 33. Db6
Rd3 34. Rxd6 Hf8 35. R6c4 Rxf2
36. Db1 Dxb1 37. Rxb1 Bb5 38.
Rba3 Ba6 39. Rxe5 He8 40. d6
Bb7
– sjá stöðumynd –
41. Rxf7 Kxf7 42. Hf3 Ke6 43.
Rb5 Hb8 44. Hxf2 Bxe4 45. He2
Hxb5 46. Hxe4 Kxd6 47. Kg3
Kd5
– Jafntefli.
Henrik Danielsson náði best-
um árangri íslensku keppend-
anna, hlaut 7 vinninga og varð í
2.-8. sæti. Héðinn Stein-
grimsson og Hannes Hlífar Stef-
ánsson hlutu 6½ vinning og
urðu í 9.-18. sæti. Framan af
móti var það Bragi Þorfinnsson
sem stóð sig best. Hann var með
4½ vinning eftir fyrstu fimm
umferðirnar, fékk ½ vinning úr
næstu þremur skákum en átti
samt möguleika á stórmeist-
araáfanga ef hann fengi að tefla
við tiltölulega „þægilegan“
2.360 stiga mann í síðustu um-
ferð. Hins vegar „sagði tölvan
nei“ og dró úr hatti sínum alltof
stigalágan andstæðing fyrir
Braga, hinn „þrælmorkna“ Ian
Thompson. Við það gat Bragi
ekki unað og mætti ekki til að
tefla lokaskákina. Um þetta mál
hafa síðustu daga staðið harðar
deilur á umræðuhorni skák-
hreyfingarinnar, skákstjórar lífs
og liðnir fengið það óþvegið en
einkum þó sá þeirra sem ýtti á
enter-takkann og gerði pörun
lokaumferðarinnar opinbera.
Ýmsir góðir menn hafa þar farið
hressilega fram úr sér. Ávallt
hefur legið fyrir að svo stórt opið
mót með miklum styrkleika- og
stigamun á keppendum er ekki
sérlega heppilegt fyrir „titil-
veiðara“. Reykjavíkurskákmót-
ið er haldið á ári hverju og má
hiklaust bjóða upp á annað fyr-
irkomulag annað veifið a.m.k.
Uppskera okkar manna var
með besta móti í ár. Mikhael Jó-
hann Karlsson hlaut 3. verðlaun
í flokki skákmanna 16 ára og
yngri. Dagur Kjartansson, Jón
Trausti Harðarson og Leifur
Þorsteinssson röðuðu sér í þrjú
efstu sætin með bestan árangur
miðað við stig en Sigurður Daði
Sigfússon varð í 1. sæti í stiga-
flokknum 2.201-2.400 og Þor-
varður Ólafsson varð efstur í
stigaflokknum 2.001-2.200 en
þar varð Magnús Pálmi Örnólfs-
son í 3. sæti. Í keppni þeirra sem
voru undir 2.000 stigum varð
Siguringi Sigurjónsson í 2. sæti
og Halldór Pálsson í 3. sæti. Þeir
eiga báðir mikið inni. Þess má
geta að hinn 10 ára gamli Hilmir
Freyr Heimisson hækkaði lang-
mest allra keppenda á mótinu en
hann hlaut 4 vinninga af 9
mögulegum og hækkaði um
tæplega 90 elo-stig og verður
með um 1.700 stig á næsta lista
FIDE. Og allir fögnuðu með Ein-
ari Hjalta Jenssyni sem náði
áfanga að alþjóðlegum meist-
aratitli.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Viðburðarík lokaumferð Reykjavíkurskákmótsins
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang
Krossgáta