SunnudagsMogginn - 18.03.2012, Blaðsíða 26
26 18. mars 2012
Þrettán þúsund manns sáu Töfraflautuna,fyrstu uppsetningu Íslensku óperunnar íHörpu, en nú er komið að La Bohème,meistaraverki Puccini um bóhemana í París.
Sviðsetningin er mikilfengleg og færir áhorfendur í
heiminn eins og hann blasti við hópi listamanna í
París í byrjun síðustu aldar. Glaumur og gleði ræður
ríkjum en líka sorg og sár fátækt. Sjónum er beint að
ástarsambandi saumakonunnar Mimì og skáldsins
Rodolfo, sem fella hugi saman, en við fylgjumst einn-
ig með vinum þeirra, heimspekingnum Colline, tón-
listarmanninum Schaunard og kvikmyndargerð-
armanninum Marcello, að ógleymdri hinni
skrautlegu kærustu Marcellos, söngkonunni Musettu.
Þetta er sannarlega viðamikil sýning en yfir 200
manns koma að sviðssetningunni og eru yfir 160
manns á sviði og í gryfju þegar mest lætur.
Að uppfærslunni standa Daníel Bjarnason sem
hljómsveitarstjóri, Jamie Hayes sem leikstjóri og Will
Bowen sem leikmyndahönnuður. Búninga hannar
Filippía I. Elísdóttir og lýsingu hannar Björn Berg-
steinn Guðmundsson, auk Henriks Linnet, sem sér
um myndvinnslu, og Stellu Sigurgeirsdóttur, sem á
heiðurinn að þeim fjölmörgu leikmunum sem prýða
sýninguna.
Auk allra stórsöngvaranna og reynda tónlist-
arfólksins sem gera sýninguna að þessu mikla æv-
intýri, er vert að minnast á Kór Íslensku óperunnar,
32 manna barnakór, lúðrasveit skipaða meðlimum úr
Skólahljómsveit Kópavogs að ógleymdum félögum úr
Sirkus Íslands og hundinum Drakúla. Aðeins verða
sex sýningar á La Bohème í mars og apríl.
Bláfátækir bóhemar
Bak við tjöldin
Íslenska óperan frumsýndi
La Bohème í Eldborg í Hörpu
á föstudagskvöldið með mikil-
fenglegri sviðsetningu á þess-
ari frægu óperu Puccini.
Texti: Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is,
Myndir: Árni Sæberg saeberg@mbl.is
Katla Þórarinsdóttir, dansari og meðlimur
í Sirkus Íslands, hitar upp baksviðs
með aðstoð húllahringjanna sinna.
Á Café Momus er gleðin við völd: Frá vinstri: Bryndís Jónsdóttir, Hrólfur Sæmundsson sem Schaunard, Gissur Páll Giss-
urarson sem Rodolfo, Hulda Björk Garðarsdóttir sem Mimì, Jóhann Smári Sævarsson sem Colline og Ágúst Ólafsson sem
Marcello. Sigurður Haukur Gíslason sem þjónn, Björg Jóhannesdóttir og Kristinn Kristinsson sem par á Momus.
Þrír þverflautuleikarar úr Skólahljómsveit Kópavogs, sem leika í lúðrasveitinni ásamt þrautreyndum hljóðfæraleikurum, hita upp í Grænalóni.
Musetta og Alcindoro kjá framan í hund hinnar fyrrnefndu. Herdís Anna
Jónasdóttir, Bergþór Pálsson og hundurinn Drakúla í hlutverkum sínum.