SunnudagsMogginn - 18.03.2012, Blaðsíða 36
Páskarnir eru framundan ogmargir bíða eftir páskabjór, ekkisíður en páskaeggjum. Sú hefðað brugga árstíðabjór, jólabjór,
páskabjór og þorrabjór, hefur sótt veru-
lega í sig veðrið hér á landi í takt við það að
bjórvinir verða sólgnir í flóknari og bragð-
meiri bjór, bjór sem er ekki drukkinn
áhrifanna vegna heldur vegna bragðsins.
Að þessu sinni koma sex tegundir
páskabjórs á markað; Ölgerðin kynnir
Páskagull og Benedikt, sem bruggaður er í
belgískum stíl, Vífilfell er með PáskaBock
og Víking Páskabjór, Bruggsmiðjan Ár-
skógsströnd Páska Kalda og skagfirska
brugghúsið Gæðingur Öl Gæðing páska-
bjór.
Páskabjór í rúman áratug
Lengsta páskaölshefðin er á bak við Víking
Páskabjór, sem hefur verið bruggaður frá
1990 að sögn Hreiðars Þórs Jónssonar,
markaðsstjóra áfengra og heitra drykkja
hjá Vífilfelli. Vífilfell bruggar einnig
PáskaBock.
Hreiðar segir að innblástur að Víking
Páskabjórnum sé sóttur í dunkel-bjór í
Suður-Þýskalandi, „en hann er töluvert
frábrugðinn öðrum dökkum bjór þar sem
maltið fær að njóta sín en ekki humallinn
eins og oft vill verða. Í Víking Páskabjór-
inn eru notaðar þrjár gerðir af dökku malti
til að fá aukna fyllingu og keim af súkku-
laði, kaffi og karamellu. Ef lýsa ætti bjórn-
um í einni setningu má segja að hann sé
bragðgóður dökkur bjór með miðlungs-
beiskju og votti af ristuðum bragðtónum“.
Vífilfell bruggar líka svonefnda Bock-
bjóra sem eru ættaðir frá Einbeck í Þýska-
landi, þar sem bjórgerð blómstraði á dög-
um Hansakaupmanna frá fjórtándu öld og
fram á þá sautjándu, en sterki bjórinn frá
Einbeck var frægur fyrir það að þola vel
geymslu og var því fluttur víða um lönd.
Hreiðar lýsir PáskaBocknum svo að hann
sé rafbrúnn og bragðið mjúk fylling, sætu-
vottur, ferskleiki og miðlungsbeiskja.
PáskaBock er bruggaður úr malti frá
München og pilsner-, karamellu- og
súkkulaðimalti. Humlarnir eru frá Bæj-
aralandi. Þetta er í annað sinn sem Vífilfell
bruggar PáskaBock.
Aðspurður hvernig hinn fullkomni
páskabjór bragðast segir Hreiðar að hann
þurfi að hafa góðan karakter og fyllingu.
„Karamella, súkkulaði og smákaffi í
bragðinu gera mikið til að fullkomna bjór-
inn. Hann þarf að vera góður einn og sér
en einnig á páskadag með góðu súkku-
laðieggi eða páskalambinu.“
Nýtt Páskagull
Þótt Ölgerðin hafi verið með páskabjór á
boðstólum í áraraðir, eða allt frá 2003, en
var reyndar ekki á markaði 2009 og 2011,
er Páskagullið nýr bjór frá grunni að sögn
Óla Rúnars Jónssonar, vörumerkjastjóra
Ölgerðarinnar. Hann segir og að Ölgerðin
hafi boðið upp á páskabjór í árdaga bjórs-
ins, sennilega 1991-1993, „en menn gáfust
upp því að markaðurinn var engan veginn
tilbúinn í árstíðarbjór. Páskagullið er nýtt
frá grunni en til grundvallar eru hug-
myndir úr ýmsum áttum, meðal annars
hugmyndir sem hafa komið vel út í öðrum
árstíðabjór upp á síðkastið. Bjórinn er
5,2% lagerbjór, koparbrúnn, með þykkri
og eilítið brúnleitri froðu. Bragðið ein-
kennist af karamellukenndri maltsætu
sem tónar vel við nokkuð snarpa beiskju,
eftirbragð er langt og mjúkt og beiskjan
situr lengi eftir án þess að vera of ágeng“.
Á vegum Ölgerðarinnar er einnig
brugghúsið Borg og frá því kemur bjór
sem fengið hefur heitið Benedikt Nr. 9,
sem er 7% belgískur klausturbjór. Hann er
fyrsti páskabjór Borgar en níundi bjórinn
frá Borg eins og nafnið ber með sér.
Óli segir að Benedikt sé framleiddur í
takmörkuðu upplagi, líkt og flestar aðrar
bjórtegundir frá Borg. „Hann er kopar-
rauður að lit með angan af ávöxtum og
grófsíaður til að hámarka
bragðupplifunina og getur
því bæði verið skýjaður og
innhaldið smávægilegt botnfall.“
Hinn fullkonmni páskabjór að mati Óla
ber með sér frískleika vorsins og er þannig
oftast nær léttari en jólabjór til að mynda.
„Hann þarf samt að hafa ákveðinn karakt-
er og ekki skemmir ef hann ber með sér
„dökkt bragð“, til dæmis karamellu,
súkkulaði, kaffi eða rúsínur í bland við
blómlegan humlailm, enda þarf bjórinn að
hæfa jafnt með páskalambinu og páska-
egginu.“
Rafbrúnn Páska Kaldi
Bruggsmiðjan Árskógsströnd hefur
bruggað páskabjór í fimm ár, en upp-
skrftin að Páska Kalda hefur verið óbreytt
að mestu síðastliðin fjögur ár. Agnes Sig-
urðardóttir hjá Bruggsmiðjunni lýsir
bjórnum svo að hann sé rafbrúnn milli-
dökkur lagerbjór, mildur og ósætur með
léttri fyllingu, lítilli beiskju, karamellu og
þurrkuðum ávöxtum. „Við höfum notað
sömu uppskrift undanfarin ár enda hefur
bjórinn alltaf fengið rosalega góðar við-
tökur og alltaf verið í efstu sætum í
smökkunum.“ Hún segir að
hinn fullkomni páskabjór sé
ekki til að sínu mati, „en
okkur finnst að páskabjór
eigi að vera bragðmikill, að-
eins léttari fylling en í öðr-
um árstíðabjór þar sem
stutt er í vorið og sólina.
Hann þarf að vera góður
með mat og þá sérstaklega
reyktu svínakjöti“.
Gæðingur um páska
Gæðingur-Öl heitir brugghús í
Skagafirði sem starfað hefur í rétt
rúmt ár. Gæðingur bruggar lagerbjór, sto-
ut og Pale Ale, en hefur einnig sent frá sér
árstíðabjór. Það kemur ekki á óvart í ljósi
ungs aldurs smiðjunnar að Gæðingur
páskabjór er fyrsti páskabjór fyrirtæk-
isins.
Birgitte Bærendtsen hjá Gæðingi segir
að páskabjór fyrirtækisins, sem er yfir-
gerjað síað öl, sé karamellugylltur á lit og
það örli líka á karamellukeimi, en hann sé
þó ekki sætur, enda beiskjustigið nokkuð
hátt, 38 stig. „Þótt hann sé auðveldur til
drykkjar er hann frekar flókinn í bruggun,
enda eru í honum þrjár gerðir af humlum
og fimm tegundir af malti. Hinn fullkomni
páskabjór er eins og þú vilt hafa hann. Orð
„sérfræðinga“ á þessu sviði vega ekki
þyngra en annarra. Sumir vilja að hann
passi vel með ákveðnum mat, aðrir með
páskaegginu, meðan enn aðrir vilja geta
komist í guðdómlega andakt með neyslu
páskabjórsins. Flestir tengja þó kara-
mellulit og karamellubragð við páska-
bjór.“
Páskaungar,
páskaegg og
páskabjór
Árstíðabundinn bjór nýtur æ meiri
hylli í takt við aukinn áhuga á
flóknari og bragðmeiri bjór. Að
þessu sinni kynna íslensk brugghús
sex tegundir af slíkum bjór.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
’
Sú hefð að brugga árstíðabjór,
jólabjór, páskabjór og þorrabjór,
hefur sótt verulega í sig veðrið hér
á landi í takt við það að bjórvinir verða
sólgnir í flóknari og bragðmeiri bjór,
bjór sem er ekki drukkinn áhrifanna
vegna heldur vegna bragðsins.
Morgunblaðið/Ómar
36 18. mars 2012