SunnudagsMogginn - 18.03.2012, Blaðsíða 10

SunnudagsMogginn - 18.03.2012, Blaðsíða 10
10 18. mars 2012 Söguleg vika er að baki. Áhugamenn um fótbolta fengu það m.a. end-anlega staðfest að á Spáni eru ekki bara tvö góð lið, svo og það, að enskuliðin eru líklega ekki eins sterk um þessar mundir og margir vilja veraláta. Við hér uppi á Litla-Englandi eigum e.t.v. erfitt með að sætta okkur við það, en það segir meira en mörg orð að liðið í sjöunda sæti deildarinnar á Spáni skuli hafa niðurlægt Manchester United, toppliðið á Englandi, í tveimur leikjum í Evrópudeildinni, og Sporting Lissabon frá Portúgal slegið Manchester City út. Eflaust heyrast nú raddir um að forkólfar Manchester-liðanna séu líklega ekki sérlega ósáttir við að falla úr „litlu“ Evrópukeppninni og geti nú einbeitt sér að baráttunni um Englands- meistaratitilinn. Trúi því hver sem vill. Dregið var í Evrópukeppn- inni í gær og þá varð ljóst að spænsku risarnir, Barcelona og Real Madrid, geta ekki mæst fyrr en í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Það gleður Spánverja og ýmsa aðra áhugamenn um íþrótt- ina. Barca mætir AC Milan í átta liða úrslitum og verður fróðlegt að sjá hverjar lyktir þeirrar rimmu verða. Félögin lentu saman í riðli fyrr í vet- ur, jafntefli varð á Spáni en Barca sigraði í seinni leiknum á Ítalíu. Nær augljóst er að Real Ma- drid og Barcelona eru tvö bestu lið Evrópu en ekki er sjálfgefið að þau komist alla leið. Bayern München er með feikisterkt lið og enginn skyldi afskrifa Chelsea. Blá- klæddu drengirnir frá Lund- únaborg sýndu í vikunni að lengi getur lifað í gömlum glæðum; kempurnar Didier Drogba, Frank Lampard og John Terry eru allir komnir af léttasta skeiði en skoruðu í frækilegum sigri á frábæru liði Napolí. Tveir þeir fyrrnefndu áttu ekki víst sæti í liðinu eftir að Portúgalinn André Villas-Boas tók við í sumar en svöruðu kalli nýs þjálfara í vikunni. Reynslan fleytir mönnum oft langt. Lið Napolí er aðdáunarvert um þessar mundir og var aðeins hársbreidd frá því að slá Chelsea út. Drogba og félagar eru grimmir þegar þeir vilja svo vera láta, en eitt eft- irminnilegasta andartak leiksins – þrátt fyrir glæsileg mörk og önnur falleg tilþrif – er þegar þessi stóri, stæðilegi leikmaður gerði sér upp meiðsli; féll með tilþrifum og hélt um höfuðið eftir að andstæð- ingur slæmdi hendinni lauflétt í bringu hans, en gjóaði svo öðru auganu að dóm- aranum til þess að sjá hvort maðurinn með flautuna hefði gengið í gildruna. Aga- legur löstur á stórbrotnum leikmanni. Skiljanlegt að menn vilji vinna, en er þetta ekki eins og að svindla í Ólsen, ólsen? Þrátt fyrir allt er lið vikunnar að mínu mati Athletic Bilbao frá Baskahéruðum Spánar. Baskarnir eru að vísu „bara“ í Evrópudeildinni, ekki þeirri stóru, en frammistaðan gegn Englandsmeisturunum var stórbrotin. Leikur Athletic snýst ekki að jafn miklu leyti um það að þræða boltann í gegnum nálarauga og hjá koll- egum þeirra í Barcelona en léttleikinn, stutta spilið, hreyfingin og hraðabreyt- ingarnar eru mikilvægir þættir. Baskar eru þekktir fyrir að vera harðir í horn að taka og ekki vantar kraftinn í þetta lið. Þjálfarinn, Argentínumaðurinn skrautlegi Bielsa, á heiður skilið fyrir að hafa púslað saman frábærum hópi. Ég sá haft eftir Alex Ferguson stjóra Manchester United að Atletic væri erf- iðasta liðið sem komið hefði í heimsókn á Old Trafford síðasta áratuginn og undrast ekki þau ummæli. Rétt er þó að hafa í huga að Atletic er með 37 stig í 7. sæti spænsku deildarinnar. Barcelona er í 2. sæti með 60 og Real Madrid efst með 70 stig ... Gamlar glæður og ferskir fætur Meira en bara leikur Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Marcelo Bielsa, t.v., þjálfari Athletic Bilbao, heilsar José Mourinho, starfsbróður sínum hjá Real Madrid. Reuters ’ Atletic Bilbao er í sjöunda sæti á Spáni en niðurlægði Manchester United í tvígang Didier Drogba kíkir og athugar hvort hann hafi náð að plata dómarann til að draga upp spjald ... 07:09 Mér tekst á einhvern undra- verðan hátt að drattast fram úr þar sem frúin hefur komið svona 40 sinnum inn í herbergi og sagt HALLI. Hún er á leið til vinnu og ég þarf því á þessum tímum jafnréttis að sjá um litla manninn okkar sem hefur á einhvern óskiljanlegan hátt vanið sig á að vakna helst á milli sex og sjö alla morgna. Sem á samkvæmt mín- um bókum ekki að vera hægt líf- fræðilega … 08:45 Kem litla guttanum loksins í úlpu og skó og ferðinni er heitið á leik- skólann. 09:03 Mættur í hljóðver til þess að lesa inn útvarpsauglýsingar. Oft er best að lesa inn auglýsingar snemma á morgnana, þá er röddin svona djúp og „feit“ en þessar auglýsingar voru þess eðlis að röddin þurfti að vera björt og blíð svo þetta fór nú ekki vel af stað en bless- aðist fljótlega og útkoman bara fín. 10:00 Rétt náði á réttum tíma í vinn- una uppi í Borgarleikhúsi þar sem hald- inn var fundur um rennslið á Hótel Volkswagen sem átti sér stað kvöldið áð- ur og rætt um það sem vel var gert og annað sem mætti betur fara. 12:00 Matartími með skemmtilegu fólki í Borgarleikhúsinu, alveg með ein- dæmum hvað það er góður matur hjá stelpunum í eldhúsinu. 12:30 Mættur niður á svið að æfa það sem rætt var um morguninn. 16:00 Nú má ég engan tíma missa þar sem ég þarf að sækja frúna í vinnuna og svo guttann á leikskólann, merkilegt hvað það er alltaf mikil umferð þegar maður er að flýta sér. 16:30 Kominn heim að nýju og nú byrja slagsmálin við að fá drenginn úr úlpunni. Við tekur létt spjall við konuna um ævintýri dagsins og áður en ég veit af þarf ég að leggja af stað aftur upp í vinnu. 18:00 Kominn í leikhúsið á ný og framundan er leiksýningin Fanny og Al- exander. 23:30 Geng inn um dyrnar heima, allir sofnaðir og ég á skilið harðfisk og einn bjór áður en ég leggst á koddann og vona að drengurinn láti sér detta í hug að breyta út af venjunni og vakna klukkan níu sem verður aldrei. Dagur í lífi Hallgríms Ólafssonar leikara Hallgrímur Ólafsson í hlutverki sínu í leikritinu Hótel Volkswagen í Borgarleikhúsinu. Líffræðilega ómögulegt

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.