SunnudagsMogginn - 18.03.2012, Blaðsíða 23
18. mars 2012 23
Eljusemi bændanna á Þrasastöðum íFljótum, sem rætt var við í Sunnudags-mogganum fyrir viku, vakti athyglimargra lesenda sem höfðu samband við
blaðið og þökkuðu fyrir greinina. „Það er einmitt
svona fólk sem gaman er að lesa um. En hvar eru
Þrasastaðir nákvæmlega?“ spurði einn. Í því fólst
þörf ábending. Og spurningunni er svarað á kort-
inu hér til hliðar.
Fróði fórst ekki
Í síðasta Sunnudagsmogga var árásin á línuveið-
arann Fróða rifjuð upp en þýskur kafbátur skaut á
skipið um 200 mílur suðvestur af Vestmanna-
eyjum árið 1941 með þeim afleiðingum að fimm úr
tíu manna áhöfn týndu lífi. Eftir að greinin birtist hafði lesandi samband við ritstjórn blaðsins og
vakti athygli á ranghermi á svokölluðum „Minningaöldum“ sem Sjómannadagsráð Reykjavíkur og
Hafnarfjarðar lét reisa við Fossvogskirkju árið 1996 en þar segir að Fróði hafi farist þennan ör-
lagaríka dag fyrir 71 ári. Það er ekki rétt en eins og fram kom í umfjöllun blaðsins komst skipið í
höfn í Vestmannaeyjum um sólarhring eftir árásina enda þótt það væri talsvert laskað. Lesandinn
kvaðst hafa bent aðstandendum „Minningaraldanna“ á þetta en ekkert hefði gerst í málinu. Sjó-
mannadagsráð Reykjavíkur og Hafnarfjarðar er hér með hvatt til að leiðrétta þetta.
Frægasta setning sem aldrei var sögð
„Leiktu það aftur, SAM!“ var fyrirsögnin á viðtali við Árna Samúelsson kvikmyndafrömuð hjá Sam-
bíóunum í síðasta Sunnudagsmogga. Margir hafa ugglaust áttað sig á tengingunni en setningin er
samofin einni frægustu kvikmynd sem gerð hefur verið, Casablanca eftir Michael Curtiz frá árinu
1942 með Humphrey Bogart og Ingrid Bergman í aðalhlutverkum.
Það er merkileg staðreynd að umrædd setning er aldrei sögð í myndinni, tilvitnunin er einfald-
lega röng. Þegar Ilsa Lund, karakter Bergman, kemur fyrst inn á Café Americain kemur hún auga á
píanóleikarann Sam og segir: „Leiktu það einu sinni, Sam, upp á gamlan kunningsskap.“ Þegar
hann þykist koma af fjöllum bætir hún við: „Leiktu það, Sam. Leiktu As Time Goes By.“
Seinna sama kvöld þegar Rick Blaine, karakter Bogarts, er einn með Sam segir hann: „Fyrst þú
lékst það fyrir hana geturðu líka leikið það fyrir mig.“ Og ennfremur: „Þoli hún það ekki geri ég
það. Leiktu það!“
Einmitt það. Ætli „leiktu það aftur, Sam“ sé frægasta setning sem aldrei var sögð?
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is | Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Einmitt svona fólk …
Rabb
Þrasastaðir
Þrasastaðir
Hofsós
(50 km frá
Þrasastöðum)
Skeiðsfossvirkjun
Stífluvatn
Sólgarðar
(19,4 km frá
Þrasastöðum)
Ketilás
Siglufjörður
(38,2 km frá
Þrasastöðum)
Lágheiði
Ólafsfjörður
Loftmyndir ehf.
Héðinsfjarðargöng
„Ég mótmæli því ofbeldi sem ég hef verið
beitt hér á þingi.“
Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknar, en forseti Al-
þingis sagði hana hafa brotið þingsköp með því skrifa um
efni nefndarfundar á facebooksíðu sína.
„Köld eru kvennaráð.“
Arnar Björnsson, sparklýsir Stöðvar 2 Sport 2, eftir að að-
stoðardómarinn, Sian Massey, flaggaði jöfn-
unarmark Manchester City gegn Swansea af í
ensku knattspyrnunni.
„Við erum aðallega að þessu
til að stríða þessum stóru fyrir
sunnan.“
Hallgrímur Sveinsson, stofnandi
Vestfirska forlagsins sem vinnur að
því að hefja Basil fursta, konung
leynilögreglumanna, til vegs og
virðingar á ný.
„Elvis Presley, nema
bara helst ekki dauð-
ur.“
Ragnar Helgi Ólafsson spurð-
ur hvaða tónlistarmaður hann
væri mest til í að vera.
„ “
Vitnisburður Halldórs J. Kristjánssonar fyrir Landsdómi.
Lítið heyrðist á köflum í bankastjóranum fyrrverandi sem
gaf skýrslu gegnum síma frá Kanada.
„Samfylkingin er sértrúarsöfnuður en
ekki stjórnmálaflokkur.“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsókn-
arflokksins, í umræðu um fundarstjórn forseta á Alþingi.
„Ég elska líkama minn og mér fannst
ekkert eðlilegra en að fara úr öllum föt-
unum.“
Bandaríska söngkonan Jessica Simpson.
„Þegar ég átta mig á því hvað er að
gerast er það fyrsta sem ég hugsa að
ég sé að fara að drukkna. Að þetta
sé bara búið.“
Sigurður Smári Fossdal, sem lenti á hvolfi
úti í Laxá á Ásum en bjargaðist.
„Við bræður óskum þess
stundum að við værum al-
múgamenn.“
Harry Bretaprins.
Ummæli vikunnar
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Stofnað 1913
Útgefandi: Óskar Magnússon
Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal
efnum, svo sem lög bjóða. Þetta bætist við að
rannsóknarnefndarmenn höfðu fengið að hand-
sauma víggirðingu í kringum sjálfa sig, svo enginn
fengi að skjóta glannafengnum ályktunum þeirra
og hæpnum fullyrðingum, eitt eða neitt. En þrátt
fyrir allt þetta og fleira sem ósagt er, væri ofsagt að
segja að skýrsla RA sé ónýtt plagg, en stórgallað er
það vissulega.
Rétt að hafa það sem sannara reynist
Nú eru því sem næst fjögur ár liðin frá falli bank-
anna eða misserunum fyrir þann atburð. Ljóst er
að fyrnst hefur yfir margt. Áhrifamiklir miðlar
hafa lengi lagt sig fram um að setja atburði á svið
með tilteknum hætti og túlkað RA þannig að aug-
ljóst er að þeir hafa ekki lesið hana að neinu gagni
eða aðeins séð þar það sem þeir ætluðu að sjá. Allir
muna hvernig Ríkisútvarpið gekk fram við birt-
ingu RA. Kynning útvarpsins var ekki í neinu
samræmi við meginályktanir skýrslunnar, en í
fullkomnu samræmi við þá fordóma sem þessi rík-
isstofnun hafði löngu áður komið sér upp. En auð-
vitað muna allir sem að málinu komu atburðina
verr nú en fyrir fjórum árum og var þó atburða-
rásin hröð og háskaleg og örþreyttir og stundum
svefndrukknir menn að taka mikilvægar ákvarð-
anir. Þessa sá stað í vitaleiðslum fyrir Landsdómi.
Þannig fjallaði núverandi utanríkisráðherra um
„glitnisnóttina“ og vitnaði fyrst í ónafngreindan
aðila. Nánar aðspurður hélt hann helst að það
hefði verið tiltekinn aðili og loks var hann orðinn
alveg viss! Málið snerist um að utanríkisráðherr-
ann taldi sig hafa spurt á hinum örlagaríka fundi
hvort yfirtaka ríkisins á meirihluta í Glitni gæti
leitt til keðjuverkunar hruns banka. Formaður
bankastjórnar hefði þá fullvissað sig um að svo
gæti ekki farið. Á fundinum þá um nóttina var
vissulega rætt, að frumkvæði annarra en núver-
andi utanríkisráðherra, hvort fyrirhuguð yfirtaka
gæti leitt til keðjuverkunar. Svarið sem gefið var,
m.a. af hálfu SÍ, var að um það gæti enginn fullyrt
af öryggi. En á hinn bóginn væru yfirgnæfandi lík-
ur á því að ef engin niðurstaða eða viðbrögð kæmu
frá ríkisvaldinu á mánudagsmorgni við neyð-
arbeiðni Glitnis félli sá banki auðvitað og að öllum
líkindum aðrir bankar í kjölfarið. Þetta voru engin
geimvísindi sem einn fundarmaður hafði fremur á
valdi sínu en annar. Þetta lá í augum uppi. Hitt er
annað mál að strax eftir helgina komu veikleikar
Glitnis í ljós. Krossskuldirnar. Himinháar skuldir
helsta eiganda og að öryggislánalína erlendis frá til
bankans var vegna vaxtaákvæða fremur blekking
en raunveruleiki. Veðköll höfðu ekki gengið fram
og endurskoðaðir reikningar gáfu gallaða mynd af
stöðu bankans og þannig mætti áfram telja. Þegar
allt þetta kom á daginn mátti mönnum verða ljóst
að sá banki væri búinn að vera og hinir færu í kjöl-
farið. Þetta var ríkisstjórninni sagt strax. Og menn
muna hvernig núverandi utanríkisráðherra brást
við. Hann fór að gaspra um aukaatriði úti um borg
og bý og gera úr þeim mál, en brást ekki að öðru
leyti við hinum alvarlegu tíðindum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gæsluflug með TF-Sif.