SunnudagsMogginn - 18.03.2012, Qupperneq 39
Þú þarft bara að bregðast við og þú verður að vera
mjög eðlilegur. Mér fannst þetta mjög skemmti-
legt,“ sagði hún.
Hún var líka spurð út í hvenær hún hefði fyrst
fengið innblástur við að horfa á kvikmynd.
„Mamma er mikill aðdáandi Audrey Hepburn og
ég líka. Ein af fyrstu myndunum sem lét mig
langa til að verða leikkona var Breakfast at Tiff-
any’s. Ég fylgdist með Audrey Hepburn og
hvernig hún lýsti upp skjáinn. Hún lætur mann
brosa. Þá hugsaði ég, þetta langar mig að gera.
Mig langar til að fá fólk til að brosa. Mig langar til
að fólk fái þessa tilfinningu, hrífist með og láti sig
dreyma.“
Ljóst er að það á eftir að sjást meira til þessarar
ungu leikkonu en fyrir helgi var tilkynnt að hún
hefði fengið hlutverk í myndinni The Drummer
sem segir frá ævi Dennis Wilson úr Beach Boys.
Aaron Eckhart er í hlutverki Wilson en Moretz
mun leika dóttur hans.
Moretz og leikkonan Blake Lively sem þekkt er fyrir leik sinn í Gossip Girl, með fatahönnuðinum Jason Wu.
Reuters
18. mars 2012 39
Við skulum hlaða vörðu uppi á fjallsins tindi þarsem við svona heit og rjóð í kinnum eftir upp-gönguna gátum ekki látið á móti okkur að snert-ast, með allan þennan vind í hárinu og ölvuð af
vímunni sem fylgir því að sigra stórgrýtt fjall og ferlegt yfir-
ferðar.
Tindurinn leysti okkur úr álögum og við hættum að vera
það sem við vorum áður en við lögðum af stað, lágum mar-
flöt og lafmóð á bakinu og tíminn stóð í stað.
Ég sem hélt að ég gæti ekki hætt að glápa upp í himininn
vissi ekki af fyrr en ég reisti mig upp til að athuga hvort öll
þessi ský spegluðust ekki örugglega í augunum þínum.
Og steinarnir sungu
og mosinn hló.
Og flíkurnar fuku.
Og holdinu bera var alveg sama
um klípandi kulda.
Lendanna mýkt mynntist við
stein.
Fjallið drakk í sig svita og safa.
Svalaði þúsund ára þorsta.
Með moldarlykt í nösum hlóð-
um við vörðu á staðnum okkar og
hugsuðum um hvernig fjöll
breyta fólki.
Allir varnarmúrar falla í víðátt-
unnar algleymi.
Þegar veturinn er svona nálægt því að sleppa af okkur
krumlunni þá er ekki laust við að hugurinn leiti til fjalla
sem bíða þess að við sigrum þau á komandi sumri.
Þegar birtan ein ærir fólk.
Og nývöknuð náttúran kallar með öllum sínum frum-
krafti.
Mannskepnunni er ekki eiginlegt að húka inni í kofum
sínum langtímum saman.
Gefum fjallageitinni í okkur lausan taum og látum okkur
hlakka til að stökkva upp á hálendið þar sem við getum
fleygt okkur flötum eitt eilífðar augnablik á hæsta tindi.
Og hlöðum vörður.
Hlöðum
vörður
’
Með
moldar-
lykt í nös-
um hlóðum við
vörðu á staðn-
um okkar og
hugsuðum um
hvernig fjöll
breyta fólki.
Stigið í
vænginn
Kristín Heiða
khk@mbl.is
Hjalti Jónsson sem æ síðan var nefndur Eldeyjar-Hjalti og var kunn-
ur maður á sinni tíð. Eftir þetta var farið nánast árlega í eyna til
fuglatekju, uns hún var friðuð árið 1940.
En svo kom að því að Eldey var aftur klifin; það var árið 1971 sem
garpar úr Eyjum fóru þangað undir forystu Árna Johnsen, þá blaða-
manns á Morgunblaðinu. Árni gerði raunar út annan leiðangur í eyna
árið 1982 en síðan hefur eyin, sem er 77 metrar á hæð, ekki verið klif-
in. „Ekki er stingandi strá uppi á eynni, aðeins súla og súluskítur,
sem er ærið nóg af og veitti ekki af stígvélum til að ganga í því svaði,“
sagði í grein í Morgunblaðinu 28. júlí 1971 um Eldeyjarleiðangurinn
fyrri. Voru eftirmál hans þau að náttúruverndarráð sá ástæðu til þess
að grípa til óspilltra málanna og friðaði eyna. Rúmum áratug síðar
var svo komið annað hljóð í strokkinn og þá veitti náttúruverndarráð
undanþáguleyfi til Eldeyjarfarar. Og svo var Eldeyjarlífinu lýst í
myndríku máli í Morgunblaðsgrein Árna Johnsen 29. ágúst 1982.
„Byggðin í Eldey er eins þétt og súlubyggð getur verið og má segja
að eyjan sé alsetin, enda situr fuglinn svo þétt að brúnin getur verið
kögruð af stélum fuglanna allt um kring þegar lítið flug er á drottn-
ingu Atlantshafsins í Eldey. Úr lofti séð virðist Eldey svo til slétt að
ofan, en kollur eyjarinnar skiptist í fjölmarga reiti og slakka, eins
konar gilskorninga, sem hver hefur sinn halla. Súlubyggðin skiptist
því í marga reiti þótt um eitt súlubæli og samfellt sé að ræða. Á nibb-
um og hryggjum sitja drottningarnar síðan og bugta sig og beygja,
sýna listir sínar, skylmast, dansa, blaka vængjum, reigja háls, munda
sig til ástaleikja, venja unga sína, og svo framvegis, en súlan hefur
einhvern litskrúðugasta persónuleika allra fugla.“
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is
’
Sýna listir
sínar,
skylmast,
dansa, blaka
vængjum, reigja
háls, munda sig
til ástaleikja,
venja unga sína.
Árni Jonsen
Kanínuungi sem búist var við að
yrði frægur í dýragarði einum í
Þýskalandi því hann fæddist án
eyrna hlaut önnur og grimmari
örlög. Hann drapst þegar
myndatökumaður sem heim-
sótti dýragarðinn sérstaklega til
að sjá kanínuna steig óvart ofan
á hana.
„Ég trúi þessu ekki. Kanínan var svo sæt. Þetta er
hræðilegt,“ sagði dýragarðsstjórinn Uwe Dempewolf
við dagblaðið Bild.
Kanínan, sem hafði fengið nafnið Til, hoppaði bak-
við myndatökumanninn á meðan hann var að mynda
og kramdist til dauða þegar tökumaðurinn steig eitt
skref aftur á bak.
Kanína kramin
Neðansjávarþjófum tókst
að ræna skipsbjöllunni úr
flaki Costa Concordia þrátt
fyrir mikið leysigeisla-
viðvörunarkerfi og
sólahringsgæslu ítölsku
strandgæslunnar. Á bjöll-
unni stóð bæði nafn skips-
ins og 2006, árið sem
skipið var sjósett. Búist er við því að fleiri en ein
manneskja hafi tekið þátt í þjófnaðinum.
Þetta risastóra skemmtiferðaskip fórst út af
ströndum ítölsku eyjarinnar Giglio og létust 25
manns og sjö er enn saknað. 4.200 manns voru um
borð.
Neðansjávarþjófar
Moretz á frumsýningu Hugo í London í nóvember.
Reuters