Morgunblaðið - 15.05.2012, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 15.05.2012, Blaðsíða 4
BAKSVIÐ Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Í hæsta tind Úlfarsfells var í síðustu viku grafinn um 30 metra langur skurður af tindinum. Í skurðinn á að leggja ljósleiðara og rafmagnstaug, frá byggð og upp á tind, því á tind- inum ætlar Vodafone að reisa tvö 10 metra fjarskiptamöstur fyrir út- varpssendingar í tilraunaskyni og lít- ið skýli undir tækjabúnað. Reynist staðsetningin vel er ráðgert að reisa þarna 40 metra hátt mastur. Framkvæmt var á grundvelli fram- kvæmdaleyfis frá Reykjavíkurborg en framkvæmdir, sem hófust í síðustu viku, voru stöðvaðar af borginni eftir að íbúi í nágrenninu gerði at- hugasemdir. Neðri hlíðar Úlfarfells eru hluti af útivistar- og skógræktarsvæðinu Græna treflinum en efri hlíðar eru skilgreindar sem opið svæði. Í bréfi Skipulagsstofnunar til borgarinnar 18. ágúst í fyrra kemur fram að stofn- unin telji að vinna þurfi deiliskipulag- stillögu vegna framkvæmdanna og einnig að Reykjavíkurborg þurfi að taka afstöðu til þess hvort bygging mastranna feli í sér breytingu á að- alskipulagi. Ólöf Örvarsdóttir, skipulagsstjóri Reykjavíkurborgar, segir að útgefið framkvæmdaleyfi vegna lagna í jörðu byggi aðallega á stefnumörkun í Að- alskipulagi Reykjavíkur og þurfi því ekki að afla meðmæla vegna þeirra framkvæmda. Það hafi þó verið gert þegar fyrir lá umsókn um víðtækari framkvæmdir þ.m.t. byggingu 30,5 metra fjarskiptamasturs. Eftir að ný umsókn barst, sem eingöngu fjallaði um lagnir í jörðu, hafi ekki verið ósk- að eftir meðmælum. Verið sé að fara yfir málið hjá skipulags- og bygging- arsviði, í ljósi athugasemda, og á með- an hafi framkvæmdir verið stöðvaðar til bráðabirgða. Ekki lagt í veginn Lengi hefur legið vegur upp á tind- inn og þegar gengið er þangað upp vekur athygli að þeir sem standa að framkvæmdunum - og borgin sem leyfði þær - skuli ekki láta leggja strenginn í veginn, í stað þess að grafa skurð í tindinn. Að sögn Hrann- ars Péturssonar, framkvæmdastjóra samskiptasviðs Vodafone eru tvær ástæður fyrir því. Annars vegar yrði dýrara að leggja strenginn í veginn heldur en að plægja hann niður í svörðinn og hins vegar hafi álitamál um eignarhald á landinu undir veg- inum átt sinn þátt í að sú leið var ekki talin hentug. Sá sem gerði athugasemdina sem varð til þess að framkvæmdir voru stöðvaðar var Ingimundur Stef- ánsson, íbúi í Úlfarsárdal og fyrrver- andi formaður íbúasamtaka hverf- isins. Hann segir að vinnubrögð borgarinnar, að veita fram- kvæmdaleyfi án meðmæla Skipulags- stofnunar, gangi að sjálfsögðu ekki. Hinn rétti farvegur væri að leggja fram tillögu að deili- eða að- alskipulagi og þá gæti almenningur og hagsmunaaðilar komið sínum sjónarmiðum að. Ingimund grunar raunar að ástæðan fyrir því að ekki var lögð fram skipulagstillaga að þessari framkvæmd sé sú að hætt sé við að hún yrði umdeild og að margir myndu gera athugasemdir. „Mín per- sónulega skoðun er sú að þetta rýri útivistargildi svæðisins,“ segir hann. Morgunblaðið/Styrmir Kári Skarðstindur Skurðurinn er meira en hálfs metra djúpur. Að honum liggja um 40 metra löng för eftir gröfuna eftir mosavaxinni hlíð. Stefna að 40 metra mastri á Úlfarsfelli  Borgin veitti leyfi en stöðvar nú framkvæmdir Vegagerð Vegurinn upp á tindinn sést til vinstri á myndinni. Gröfunni var ekið um 40 metra út með hlíðinni. Skurðurinn upp á tindinn sést til hægri. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2012 Byrjað var að afhenda í gær iPad- tölvurnar sem fylgdu háskólastúd- entatilboði Morgunblaðsins en haldið verður áfram að afhenda tölvurnar í dag og á morgun. Þrír starfsmenn Moggans voru við- staddir í verslun epli.is í gær til að hjálpa nýjum áskrifendum að setja upp tölvurnar og ná í iPad- Moggann svo þeir gætu virkjað iPad-áskrift sína að blaðinu. Fólki mun almennt hafa líkað vel við iPad-Moggann. Að sögn Magnúsar E. Kristjáns- sonar, framkvæmdastjóra mark- aðs- og sölumála hjá Morgun- blaðinu, gekk afhending tölvanna vonum framar. „Þegar ég var þarna niður frá klukkan tvö var þetta svona rétt að byrja en þetta gekk það vel að það var aldrei ör- tröð og fólk þurfti mjög lítið að bíða,“ segir Magnús og bætir við að afhending tölvanna hafi verið vel undirbúin og skipulögð af starfs- fólki epli.is og Moggans. Að sögn hans hefur blaðið óskað eftir ann- arri sendingu af iPad-tölvum frá Apple en beðið er staðfestingar á því hvort og hvenær það gæti gerst. Afhending á Mogga-iPödum hófst í gær  Viðskiptavinum líkaði almennt vel við iPad-Moggann  Gekk vonum framar Morgunblaðið/Styrmir Kári iPad Hamingjusamir áskrifendur Moggans sóttu iPad tölvur í gær. Einungis níu skólastjórar af 68 gerðu athugasemd við það fyrir- komulag að samræmd könnunar- próf séu haldin í september og því hefur verið ákveðið að þau verði áfram haldin í september. Þetta kemur fram á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Á undanförnum árum hafa borist kvartanir frá skólastjórum um að dagsetningar samræmdra könn- unarprófa í september hafi rekist á við aðra viðburði í viðkomandi sveitarfélagi og þá fyrst og fremst réttir í dreifbýli. Af því tilefni fór fram könnun hjá skólastjórum grunnskóla á landsvísu, 68 svör bárust og þar af gerðu einungis níu skólastjórar athugasemdir við nú- verandi fyrirkomulag. Samræmdu prófin áfram í september Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Ekki er útlit fyrir að Spölur ehf., sem sér um rekstur Hvalfjarðarganga, þurfi að lúta tilskipun Evrópusam- bandsins um breytingar á veggjöldum fólksbíla. Tilskipun Evrópusam- bandsins, sem segir til um að afslátt- arkjör á veggjöldum megi að hámarki vera 13%, á einungis við um bíla sem eru yfir 3,5 tonnum. Lögfræðingar innanríkisráðuneytisins fóru yfir mál- ið og sáu ekkert sem gefur til kynna að tilskipunin nái til fólksbíla. Í frétt í Morgunblaðinu frá 5. maí kom fram í máli Gylfa Þórðarsonar, formanns Faxaflóahafna, að til stæði að hefja gjaldskrárbreytingar á næst- unni. Þær miðuðu að því að hækka verð á afsláttarkjörum fólksbíla. Svo er þó ekki samkvæmt Gísla Gíslasyni framkvæmdastjóra Faxaflóahafna. ,,Það kemur hvergi beint fram í til- skipuninni að þetta eigi við um einka- bíla. Hins vegar vitum við af þessu og höfum gert áætlanir sem miða að því að gera gjaldskrárbreytingar ef þetta á við um Ísland. En það er ofsögum sagt að við hyggjum á gjaldbreyting- ar á næstunni. Ég myndi ekki segja að þetta hafi verið á misskilningi byggt, heldur þurftum við að fá laga- lega túlkun á þessu áður en við ákvæðum næstu skref í rekstrinum,“ segir Gísli. Enn á eftir að innleiða löggjöf um hámarksafsláttarkjör á veggjaldi í EES-samninginn. Engu að síður hef- ur Spölur ehf. þegar tekið tillit til til- skipunarinnar í gjaldskrá sinni fyrir bíla sem eru lengri en 6 metrar. Óbreytt veggjöld í göngin  Ekki stefnt að gjaldskrárbreytingum í Hvalfjarðargöngum á næstunni  Lögfræðingar segja tilskipun Evrópusambandsins ekki eiga að ná til einkabíla Veggjöld óbreytt » Lögfræðingar innanríkis- ráðuneytisins segja tilskipun Evrópusambandsins ekki eiga við um fólksbíla. » Afsláttarkjör eru í höndum Spalar. » Ekki er búið að innleiða til- skipun á Íslandi. Skannaðu kóðann til að skoða fleiri myndir. SÉRHÆFING Í VIÐHALDI GÓLFA Við sérhæfum okkur í slípun og olíuburði á sólpöllum, gerum gamla pallinn flottari en nýjan. Fjalirnar verða rennisléttar og timbrið nær aftur sínum náttúrulega lit. GERUM SÓLPALLINN EINS OG NÝJAN info@golfthjonustan.is | golfthjonustan.is S: 897 2225

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.