Morgunblaðið - 15.05.2012, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2012
Bíólistinn 4.-6. maí 2012
Nr.
Var
síðast
Vikur
á listaKvikmynd
The Avengers
Dark Shadows
The Five-Year Engagement
Lockout
Impy’s Wonderand
Lorax
21 Jump Street
How I Spent My Summer Vacation
Svartur á Leik
The Raid
1
Ný
Ný
Ný
Ný
5
2
3
6
4
3
Ný
Ný
Ný
Ný
7
4
2
11
2
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Ofurhetjumyndin The Avengers er
sú sem mestum miðasölutekjum
skilaði um helgina en 42.830 miðar
hafa nú verið seldir á hana í kvik-
myndahúsum hér á landi. Á hæla
henni kemur nýjasta kvikmynd
Tims Burtons, Dark Shadows, sem
frumsýnd var föstudaginn sl. Þá
var rómantíska gamanmyndin The
Five-Year Engagement einnig vel
sótt, sömuleiðis frumsýnd fyrir
helgi. Miðasölutekjur af íslensku
myndinni Svartur á leik nema nú
tæpum 82 milljónum króna.
Bíóaðsókn helgarinnar
Hefnendur
halda kyrru fyrir
Hefnd The Avengers nýtur gríðarlegra vinsælda hér á landi líkt og í Banda-
ríkjunum þar sem hún sló tekjumet yfir frumsýningarhelgi.
Í landi óskasteinsins er yfirskrift
sýningar myndlistarkonunnar Að-
alheiðar Valgeirsdóttur sem opnuð
var í sal félagsins Íslensk grafík,
hafnarmegin í Hafnarhúsi, síðastlið-
inn laugardag. Þar sýnir Aðalheiður
olíumálverk og ljósmyndir og sækir
innblástur sinn í náttúruna í Bisk-
upstungum þar sem hún er með
vinnustofu.
„Ég nýti mér hugmyndina um
óskasteininn til að nálgast náttúruna
þannig að úr verður e.k. samtal,“
segir Aðalheiður um verkin og ítrek-
ar að sýningin snúist ekki um steina.
Hún gæli hins vegar við hugmynd-
ina um óskasteininn, að hann leynist
í umhverfi hennar og hún skimi eftir
honum á göngu sinni um landið. Til
að finna óskasteininn, steininn sem á
að geta uppfyllt óskir manna og þrár
skv. gamalli þjóðtrú, þurfi að grand-
skoða náttúruna, líta niður fyrir sig
og sú náttúruskoðun skili sér í verk-
unum. „Þetta eru ekki landslags-
myndir heldur náttúrumyndir, jarð-
myndir,“ segir Aðalheiður og sést
það glögglega í litavali og -flæði mál-
verkanna. Vatn, jörð og íslenskur
gróður með sínum endalausu og
heillandi blæbrigðum.
Mega vera úr fókus
Aðalheiður segist ganga mikið um
í náttúru Biskupstungna og taka
ljósmyndir. Á sýningunni sýnir hún
einmitt slíkar ljósmyndir og segir
þær bæði tengjast málverkunum og
standa einar og sér. Hún eigi ekki
við myndirnar í myndvinnsluforriti
heldur leyfi þeim að njóta sín
óbreyttum. „Þær mega vera úr fók-
us ef þær vilja,“ segir Aðalheiður.
Aðalheiður segir ríka efniskennd
og þykkt einkenna málverk sín. „Ég
læt litinn flæða, nota ekki pensla í
þessum málverkum. Kannski eru
þau svolítið grafísk líka, það segja
sumir,“ segir Aðalheiður og þarf það
ekki að koma á óvart þar sem hún
hefur unnið mikið með grafíkmið-
ilinn eða -tæknina á ferli sínum.
– Málarðu þá á strigann láréttan?
„Já, ég er með þetta á borði og læt
þetta flæða. Ég þarf svolítið pláss,
þetta er dálítið sull,“ svarar Að-
alheiður. Liturinn ráði hins vegar
ekki ferðinni, hún hafi hemil á hon-
um og til þess þurfi einbeitingu. Lit-
urinn fái að þorna, lag fyrir lag,
þynntur út með gljákvoðu sem skilar
sér í aukinni dýpt og gljáa í verk-
unum sem Aðalheiður segist sækjast
eftir. Sýningin stendur til 27. maí,
opin fimmtudaga til sunnudaga frá
kl. 14 til 18. helgisnaer@mbl.is
„Þetta eru ekki
landslagsmyndir“
Aðalheiður Valgeirsdóttir sýnir í sal Íslenskrar grafíkur
Morgunblaðið/Golli
Náttúran Aðalheiður á sýningu sinni, Í landi óskasteinsins, í sal félagsins Íslensk grafík.
· Brúðkaup
· Fermingar
· Árshátíðir
· Afmæli
· Ættarmót
· Útskriftir
· Erfidrykkjur
Sími 551 4430 · laekjarbrekka.is
Erum staðsett
í hjarta
Reykjavíkur
Bjóðum upp á
veislusali
fyrir allt að
100 manns
Litlabrekka
Kornhlaðan
Er veisla í vændum?
EGILSHÖLL
16
ÁLFABAKKA
VIP
VIP
1212
12
12
12
12
12
L
L
10
1010
10
10
AKUREYRI
DARK SHADOWS KL. 5:40 - 8 - 10 - 10:50 2D
DARK SHADOWS VIP KL. 5:40 - 8 2D
THE AVENGERS KL. 5 - 8 - 10:30 3D
THE AVENGERS VIP KL. 10:30 2D
THE AVENGERS KL. 7 - 10 2D
UNDRALAND IBBA M/ÍSL.TALI KL. 6 2D
CABIN IN THE WOODS KL. 8 2D
BATTLESHIP KL. 8 - 10:40 2D
AMERICAN PIE: REUNION KL. 5:50 2D
L
L
12
12
10
KEFLAVÍK
16
16
KRINGLUNNI
12
L
L
10
DARK SHADOWS KL. 5:40 - 8 - 10:30 2D
THE AVENGERS KL. 6 - 8 - 9 3D
UNDRALAND IBBA M/ÍSL.TALI KL. 6 2D
CABIN IN THE WOODS KL. 10:50 2D
DARK SHADOWS KL. 8 2D
THE AVENGERS KL. 5 - 10:20 3D
UNDRALAND IBBA M/ÍSL.TALI KL. 6 2D
GONE KL. 8 2D
SVARTUR Á LEIK KL. 10 2D
DARK SHADOWS KL. 8 2D
THE AVENGERS (3D) KL. 5 - 10:20 3D
UNDRALAND IBBA M/ÍSL.TALI KL. 6 2D
GONE KL. 8 2D
WRATH OF THE TITANS KL. 10:10 2D
16
12
L
SELFOSS
THE AVENGERS KL. 5 - 8 - 10:10 2D
UNDRALAND IBBA M/ÍSL.TALI KL. 6 2D
SVARTUR Á LEIK KL. 8 2D
STÆRSTA FRUMSÝNINGARHELGI ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI !
YFIR 40 ÞÚS. BÍÓGESTIR !
Empire Total film Variety
Tommi, Kvikmyndir.is
Stærsta ofurhetjumynd allra tíma!Johnny Depp erstórkostlegur í þessari
frábæru gamanmynd
o.g. entertainment weekly p.h. boxoffice magazine
Nýjasta meistaraverk Tim Burtons.
DARK SHADOWS KL. 5:30 - 8 - 10:30 2D
THE AVENGERS KL. 5 - 8 - 11 3D
THE AVENGERS KL. 6 - 9 2D
IMPY’S WONDERLAND ÍSLTAL KL. 5:30 2D
TITANIC KL. 8 3D
UNDRALAND IBBA
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
STÓRSKEMMTILEG TEIKNIMYND