Morgunblaðið - 15.05.2012, Side 33

Morgunblaðið - 15.05.2012, Side 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2012 Bíólistinn 4.-6. maí 2012 Nr. Var síðast Vikur á listaKvikmynd The Avengers Dark Shadows The Five-Year Engagement Lockout Impy’s Wonderand Lorax 21 Jump Street How I Spent My Summer Vacation Svartur á Leik The Raid 1 Ný Ný Ný Ný 5 2 3 6 4 3 Ný Ný Ný Ný 7 4 2 11 2 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Ofurhetjumyndin The Avengers er sú sem mestum miðasölutekjum skilaði um helgina en 42.830 miðar hafa nú verið seldir á hana í kvik- myndahúsum hér á landi. Á hæla henni kemur nýjasta kvikmynd Tims Burtons, Dark Shadows, sem frumsýnd var föstudaginn sl. Þá var rómantíska gamanmyndin The Five-Year Engagement einnig vel sótt, sömuleiðis frumsýnd fyrir helgi. Miðasölutekjur af íslensku myndinni Svartur á leik nema nú tæpum 82 milljónum króna. Bíóaðsókn helgarinnar Hefnendur halda kyrru fyrir Hefnd The Avengers nýtur gríðarlegra vinsælda hér á landi líkt og í Banda- ríkjunum þar sem hún sló tekjumet yfir frumsýningarhelgi. Í landi óskasteinsins er yfirskrift sýningar myndlistarkonunnar Að- alheiðar Valgeirsdóttur sem opnuð var í sal félagsins Íslensk grafík, hafnarmegin í Hafnarhúsi, síðastlið- inn laugardag. Þar sýnir Aðalheiður olíumálverk og ljósmyndir og sækir innblástur sinn í náttúruna í Bisk- upstungum þar sem hún er með vinnustofu. „Ég nýti mér hugmyndina um óskasteininn til að nálgast náttúruna þannig að úr verður e.k. samtal,“ segir Aðalheiður um verkin og ítrek- ar að sýningin snúist ekki um steina. Hún gæli hins vegar við hugmynd- ina um óskasteininn, að hann leynist í umhverfi hennar og hún skimi eftir honum á göngu sinni um landið. Til að finna óskasteininn, steininn sem á að geta uppfyllt óskir manna og þrár skv. gamalli þjóðtrú, þurfi að grand- skoða náttúruna, líta niður fyrir sig og sú náttúruskoðun skili sér í verk- unum. „Þetta eru ekki landslags- myndir heldur náttúrumyndir, jarð- myndir,“ segir Aðalheiður og sést það glögglega í litavali og -flæði mál- verkanna. Vatn, jörð og íslenskur gróður með sínum endalausu og heillandi blæbrigðum. Mega vera úr fókus Aðalheiður segist ganga mikið um í náttúru Biskupstungna og taka ljósmyndir. Á sýningunni sýnir hún einmitt slíkar ljósmyndir og segir þær bæði tengjast málverkunum og standa einar og sér. Hún eigi ekki við myndirnar í myndvinnsluforriti heldur leyfi þeim að njóta sín óbreyttum. „Þær mega vera úr fók- us ef þær vilja,“ segir Aðalheiður. Aðalheiður segir ríka efniskennd og þykkt einkenna málverk sín. „Ég læt litinn flæða, nota ekki pensla í þessum málverkum. Kannski eru þau svolítið grafísk líka, það segja sumir,“ segir Aðalheiður og þarf það ekki að koma á óvart þar sem hún hefur unnið mikið með grafíkmið- ilinn eða -tæknina á ferli sínum. – Málarðu þá á strigann láréttan? „Já, ég er með þetta á borði og læt þetta flæða. Ég þarf svolítið pláss, þetta er dálítið sull,“ svarar Að- alheiður. Liturinn ráði hins vegar ekki ferðinni, hún hafi hemil á hon- um og til þess þurfi einbeitingu. Lit- urinn fái að þorna, lag fyrir lag, þynntur út með gljákvoðu sem skilar sér í aukinni dýpt og gljáa í verk- unum sem Aðalheiður segist sækjast eftir. Sýningin stendur til 27. maí, opin fimmtudaga til sunnudaga frá kl. 14 til 18. helgisnaer@mbl.is „Þetta eru ekki landslagsmyndir“  Aðalheiður Valgeirsdóttir sýnir í sal Íslenskrar grafíkur Morgunblaðið/Golli Náttúran Aðalheiður á sýningu sinni, Í landi óskasteinsins, í sal félagsins Íslensk grafík. · Brúðkaup · Fermingar · Árshátíðir · Afmæli · Ættarmót · Útskriftir · Erfidrykkjur Sími 551 4430 · laekjarbrekka.is Erum staðsett í hjarta Reykjavíkur Bjóðum upp á veislusali fyrir allt að 100 manns Litlabrekka Kornhlaðan Er veisla í vændum? EGILSHÖLL 16 ÁLFABAKKA VIP VIP 1212 12 12 12 12 12 L L 10 1010 10 10 AKUREYRI DARK SHADOWS KL. 5:40 - 8 - 10 - 10:50 2D DARK SHADOWS VIP KL. 5:40 - 8 2D THE AVENGERS KL. 5 - 8 - 10:30 3D THE AVENGERS VIP KL. 10:30 2D THE AVENGERS KL. 7 - 10 2D UNDRALAND IBBA M/ÍSL.TALI KL. 6 2D CABIN IN THE WOODS KL. 8 2D BATTLESHIP KL. 8 - 10:40 2D AMERICAN PIE: REUNION KL. 5:50 2D L L 12 12 10 KEFLAVÍK 16 16 KRINGLUNNI 12 L L 10 DARK SHADOWS KL. 5:40 - 8 - 10:30 2D THE AVENGERS KL. 6 - 8 - 9 3D UNDRALAND IBBA M/ÍSL.TALI KL. 6 2D CABIN IN THE WOODS KL. 10:50 2D DARK SHADOWS KL. 8 2D THE AVENGERS KL. 5 - 10:20 3D UNDRALAND IBBA M/ÍSL.TALI KL. 6 2D GONE KL. 8 2D SVARTUR Á LEIK KL. 10 2D DARK SHADOWS KL. 8 2D THE AVENGERS (3D) KL. 5 - 10:20 3D UNDRALAND IBBA M/ÍSL.TALI KL. 6 2D GONE KL. 8 2D WRATH OF THE TITANS KL. 10:10 2D 16 12 L SELFOSS THE AVENGERS KL. 5 - 8 - 10:10 2D UNDRALAND IBBA M/ÍSL.TALI KL. 6 2D SVARTUR Á LEIK KL. 8 2D STÆRSTA FRUMSÝNINGARHELGI ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI ! YFIR 40 ÞÚS. BÍÓGESTIR ! Empire Total film Variety Tommi, Kvikmyndir.is Stærsta ofurhetjumynd allra tíma!Johnny Depp erstórkostlegur í þessari frábæru gamanmynd o.g. entertainment weekly p.h. boxoffice magazine Nýjasta meistaraverk Tim Burtons. DARK SHADOWS KL. 5:30 - 8 - 10:30 2D THE AVENGERS KL. 5 - 8 - 11 3D THE AVENGERS KL. 6 - 9 2D IMPY’S WONDERLAND ÍSLTAL KL. 5:30 2D TITANIC KL. 8 3D UNDRALAND IBBA SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI STÓRSKEMMTILEG TEIKNIMYND

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.