Morgunblaðið - 15.05.2012, Blaðsíða 27
ferðarráðs 1992-2002, sat í stjórn
NTK, Nordisk Traffik Sikkerheds
Kommite 1995-2002, varaformaður
1997-2000 og formaður nefndarinnar
2000-2001 og sat í stjórn PRI, Al-
þjóðasamtaka umferðarráða 1997-
2002. Á vegum PRI stýrði hann
starfshópi um gerð umferðarörygg-
isáætlana en hér á landi starfaði hann
á árunum 1994-95 með nefnd sem
vann að gerð fyrstu umferðarörygg-
isáætlunarinnar. Hann var síðan for-
maður umferðaröryggisnefndarinnar
sem vann að áætlanagerð í umferð-
aröryggismálum frá 1996 til 2001.
Alvöru fjallgöngumaður
Þórhallur hefur starfað í björg-
unarsveitum frá unga aldri, starfar
nú í björgunarfélaginu Árborg á Sel-
fossi og starfar mikið með Ferða-
félagi Íslands. Hann er forfallinn
fjallagarpur, er fyrsti og líklega eini
maðurinn sem gengið hefur á öll þau
fjöll sem lýst er í bók Ara Trausta
Guðmundssonar og Péturs Þorleifs-
sonar, Íslensk fjöll – 151 tindur.
Hann fór þá á eitt fjall á viku eða 50
fjöll á ári í þrjú ár og lagði þá að baki
10.000 kílómetra. Þá hjólaði hann
Jakobsstíginn í fótspor Thors Vil-
hjálmssonar sl. haust.
Fjölskylda
Þórhallur kvæntist 9.8. 1980 Gróu
Dagmar Gunnarsdóttur, f. 10.4. 1955,
bankamanni við viðskiptastofu
Landsbankans. Hún er dóttir Gunn-
ars V. Hannessonar prentara, sem er
látinn, og Sigurjónu Símonardóttur
verslunarmanns.
Synir Þórhalls og Gróu Dagmarar
eru Jón Gunnar, f. 27.1. 1976, varð-
stjóri við lögregluna í Reykjavík,
kvæntur Valgerði Jónsdóttur og á
hann þrjú börn; Einar Karl, f.
19.4.1980, verkfræðingur hjá AGR en
kona hans er Hildur Þórarinsdóttir.
Systkini Þórhalls eru Steinþór, f.
8.7. 1950, búsettur í Reykjavík; Einar
Jón, f. 21.4. 1954, hagfræðingur, bú-
settur í Reykjavík; Þorgeir, f. 18.2.
1956, listfræðingur og deildarstjóri í
menntamálaráðuneytinu; Sigrún, f.
13.7. 1963, kennari í Reykjavík; Arn-
ar Már, f. 5.5. 1966, golfkennari í
Þýskalandi; Hólmfríður Ólöf, f. 20.4.
1968, sagnfræðingur og starfsmaður
hjá Reykjavíkurborg, búsett í
Reykjavík.
Foreldrar Þórhalls: Ólafur H.
Jónsson, f. 27.4. 1927, d. 1984, skipa-
fræðingur í Kópavogi, og k.h., Hólm-
fríður Þórhallsdóttir, f. 17.8. 1930, d.
2000, leiðsögumaður og bókasafns-
fræðingur.
Úr frændgarði Þórhalls Ólafssonar
Guðmundur Lárusson
fv. sjóm. og trésm. á Bíldud.
Guðrún Jónsdóttir
frá Skáleyjum
Guðmundur Hallsson
b. á Sveinseyri í Tálknaf.
Jóna Thoroddsen
húsfr. í Efri-Tungu
HermannWendel
kaupm. á Þingeyri
Þórhallur
Ólafsson
Ólafur H. Jónsson
skipafr. í Kópav.
Hólmfríður Þórhallsdóttir
húsfr. í Kópav.
Þórhallur Guðmundsson
b. í Bakkadal í Arnarf.
Marta Guðmundsdóttir
húsfr. í Bakkadal
Herþrúður Hermannsdóttir
húsfr. í Rvík
Jón Eiríksson
skipstj. í Rvík
Eiríkur Eiríksson
b. í Efri-Tungu í Örlygshöfn
Helgi H. Eiríksson
skólastj. Iðnskólans
Margrét Einarsdóttir
húsfr. á Sveinseyri
Björgvin Sighvatsson
skólastj. á Ísaf.
Sighvatur Björgvinsson
fyrrv. ráðh.
Kristjana Einarsdóttir
húsfr. á Patreksf.
Feðgar á jökli Þórhallur, ásamt sonum sínum Jóni Gunnari og Einari Karli.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2012
95 ára
Páll Sigurðsson
85 ára
Eyþór Jónsson
Páll M. Aðalsteinsson
Sverrir Haraldsson
80 ára
Elísabet Ohl
Guðmundur H. Sigurðsson
Hilda Fanney Nissen
Ragnheiður Kristófersdóttir
75 ára
Anna Jóhannesdóttir
Anna Magga Sigurðardóttir
Bjarni Dagbjartsson
Guðrún Árnadóttir
Ragnheiður A. Friðriksdóttir
Ragnhildur Gunnarsdóttir
Unnur Gunnarsdóttir
70 ára
Árni V. Þórsson
Bjarni Guðmundsson
Gréta S. Jónsdóttir
Guðmundur Guðnason
Guðrún I. Magnúsdóttir
Helga Karlsdóttir
Sigrún Jóhannsdóttir
Unnur Jónsdóttir
Þóra Kristjánsdóttir
60 ára
Anna Sigrún Böðvarsdóttir
Gestur Kristjánsson
Gunnlaugur F. Lúthersson
Hallfríður Jónasdóttir
50 ára
Ásdís Arthúrsdóttir
Dariusz Boguslaw Lusiak
Eyþór Þorbergsson
Guðmundur B. Ólafsson
Gunnlaugur Oddsson
Hans V. Guðmundsson
Heimir Ríkarðsson
Helga Hrönn Þorleifsdóttir
Hjördís Henriksen
Hólmfríður B. Marinósd.
Hrefna Hlín Karlsdóttir
Jóhann Sigurður Gestsson
Karl Bryngeir Karlsson
Mjöll Flosadóttir
Ólafur Johnson
Rakel Guðbjörnsdóttir
Sjöfn Karlsdóttir
Stefanía Hauksdóttir
Stefanía Jörgensdóttir
Sveinn Ævarsson
Unnar Garðarsson
Ævar Rafn Kjartansson
40 ára
Alexander Magnússon
Catherine D. Marie Mercy
Davíð Halldórsson
Dofri Jónsson
Elín Margrét Gunnarsdóttir
Guðrún Hrafnkelsdóttir
Halla Björg Björnsdóttir
Lien Thi Nguyen
Lipei Wang
Magnús Freyr Valsson
Pálmi Bernhardsson Linn
Sigrún Vöggsdóttir
30 ára
Agnieszka Zofia Loll
Árni Guðmundsson
Ásgeir Þór Kristinsson
Baldvin Þór Magnússon
Daði Þór Halldórsson
Iwona Zofia Lempicka
Leó Rúnar Alexandersson
Magnús Kristjánsson
Marý Karlsdóttir
Ólafur Björgvin Hilmarsson
Ragnar Már Stefánsson
Valdís María Össurardóttir
Viðar Örn Victorsson
Til hamingju með daginn
30 ára Áslaug ólst upp í
Reykjavík, lauk BSc.-prófi
í bókasafns- og upplýs-
ingafræði í Danmörku
2005 og er nú MSc-nemi
í tölvunarfræði við HR.
Eiginmaður Kristján
Oddur Sæbjörnsson, f.
1979, verkfræðingur.
Dætur Sesselja Fanney, f.
2007, og Birna, f. 2009.
Foreldrar Sesselja Árna-
dóttir, f. 1961, kennari, og
Eiríkur Ingólfsson, f.
1960, viðskiptafræðingur.
Áslaug
Eiríksdóttir
30 ára Pálína fæddist í
Reykjavík en hefur búið á
Dalvík frá 2007. Hún er
verkefnastjóri Fé-
lagsmiðstöðvar Dalvíkur.
Maður Guðmundur A.
Pálmason, f. 1983. Börn
Íris María, f. 2002, Adam
Breki, f. 2006 og Orri
Freyr, f. 2009.
Foreldrar Karitas S. Neff,
f. 1959, félags- og menn-
ingarfulltrúi Fjallabyggðar,
og Lárus A. Brown, f.
1944, leigubifreiðastjóri.
Pálína Ósk
Lárusdóttir
Ingólfur Jónsson ráðherra fædd-ist í Bjóluhjáleigu 15. maí 1909.Foreldrar hans voru Jón Jóns-
son, bóndi á Bjóluhjáleigu í Holtum,
og k.h., Anna Guðmundsdóttir hús-
freyja. Ingólfur var bróðir Ragnars
Jónssonar alþm.
Ingólfur stundaði nám við Hvít-
árbakkaskóla en var að öðru leyti
sjálfmenntaður. Hann vann m.a. við
landbúnað í Noregi, var á vertíðum í
Vestmannaeyjum og var um skeið
barnakennari.
Ingólfur óx af sjálfum sér og eigin
verðleikum. Hann var einn þeirra
sem beittu sér fyrir stofnun Kaup-
félagsins Þórs á Hellu árið 1935 og
varð framkvæmdastjóri þess. Kaup-
félagið varð í hans tíð að versl-
unarstórveldi á Suðurlandi og með
kaupfélaginu byggðist upp kaup-
túnið og varð á margan hátt miðstöð
landbúnaðarins í kring.
Ingólfur var alþm. fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn á árunum 1942-78, var
viðskipta- og iðnaðarráðherra í
fjórða ráðuneyti Ólafs Thors, sam-
steypustjórn sjálfstæðismanna og
Framsóknar 1953-56 og landbún-
aðar- og samgönguráðherra í Við-
reisnarstjórninni, samfellt, á ár-
unum 1959-71. Hann var þá löngu
orðinn helsti oddviti sjálfstæð-
ismanna á Suðurlandi.
Auk landbúnaðarmála, sem Ing-
ólfur lagði mikla áherslu á allan sinn
stjórnmálaferil, beitti hann sér með-
al annars fyrir rafvæðingu sveitanna
og varanlegri vegagerð út frá að-
alþéttbýlissvæðum landsins.
Ingólfur var jarðbundinn stjórn-
málamaður, virðulegur ásýndum og í
háttum, stilltur, orðvar og orðheld-
inn, vinafastur og prýðilegur manna-
sættir.
Það kom m.a. í ljós þegar sund-
urþykkja flokksforystu Sjálfstæð-
isflokksins, milli Gunnars Thorodd-
sen og Geirs Hallgrímssonar, var
sem mest og alvarlegust. Ingólfur
var því maklegur þess mikla trausts
sem hann ætíð naut á Suðurlandi og
í Sjálfstæðisflokknum.
Minnisvarði um Ingólf Jónsson,
kaupfélagsstjóra, alþingismann og
ráðherra, var afhjúpaður á bakka
Rangár á Hellu árið 2004. Staðsetn-
ingin er engin tilviljun enda er iðu-
lega vísað til hans sem Ingólfs á
Hellu.
Ingólfur lést 14. júlí 1984.
Merkir Íslendingar
Ingólfur
Jónsson
30 ára Snævar ólst upp í
Reykjavík, er margfaldur
Íslandsmeistari í júdói,
yngsti Norðurlandameist-
ari okkar í júdói og starfar
nú við ferðamannaþjón-
ustu.
Kona Unnur Lind Kon-
ráðsdóttir, f. 1983, við-
skiptafræðingur.
Foreldrar Sigríður Sig-
urðardóttir, f. 1954, smur-
brauðsdama, og Jón Hlíð-
ar Guðjónsson, f. 1953,
starfsmaður Icelandair.
Snævar Már
Jónsson
NÝ
www.avon.is
Glæsileg heimasíða og vefverslun
Frábær opnunartilboð
Skráðu þig á póstlista
www.avon.is
Þú gætir dottið í lukkupottinn
og unnið Avon Gjafabréf að
verðmæti 10.000 kr.
Nýjir sölufulltrúar velkomnir!
Þær sem gerast sölufulltrúar
fyrir 11. maí fá glæsilegar gjafir.
Sjá nánar á www.avon.is
Dalvegi 16B, 201 Kópavogi, sími 577 2150
Baðolían frá AVON er komin aftur.
Baðolían sem beðið
hefur verið eftir!