Morgunblaðið - 15.05.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍFÚtivist og hreyfing
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2012
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þ
etta var alveg gríðarlega
flott ferð og skemmtileg,“
segir Sigrún Valbergs-
dóttir sem er nýkomin úr
fjögurra daga Njálugöngu
um Njáluslóðir. Ferðin var á vegum
Ferðafélags Íslands og var Sigrún far-
arstjórinn. Hún skipulagði gönguleið-
irnar og hélt utan um hópinn. „Magnús
Jónsson var sagnaþulurinn í ferðinni,
en hann hefur verið með Íslendinga-
sögunámskeið hjá Endurmenntun Há-
skólans og er heldur betur vel að sér í
sögunum. Þetta eru því sögugöngur en
undanfarin átta ár höfum við Magnús
verið með skipulagðar gönguferðir í
tengslum við slóðir Íslendingasagna,“
segir Sigrún og bætir við að þau Magn-
ús séu bæði miklir göngufíklar.
Upphaf Sturlunga-veldisins
„Við förum alltaf á vorin í þessar
ferðir og í fyrstu ferðinni sem var árið
2005 gengum við aðeins í einn dag, yfir
Sælingsdalsheiði þar sem merkilegir
atburðir gerðust og voru upphafið að
því að Sturlungar byrjuðu að byggja
upp sitt veldi undir lok tólftu aldar. Á
hverju vori förum við á nýja staði og
tökum fyrir nýjar sögur. Við höfum
gengið um Miðfjörðinn og tekið þar
fyrir Grettissögu, í Hofi í Vatnsdal tók-
um við fyrir Vatnsdælu, við tókum
Laxdælu í göngu um Sælingsdalinn og
Eirbyggju á Snæfellsnesinu, svo nokk-
ur dæmi séu nefnd. Íslendingasög-
urnar eru svo margar að okkur mun
sennilega ekki endast ævi eða göngu-
kraftur til að ganga á slóðum þeirra
allra.“
Gengið inn í sögusvið Njálu
Þetta vorið var sem sagt farið í
Njála lifnar við í
fjögurra daga göngu
Gunnar og Njáll, Hallgerður og allar aðrar persónur Njálu lifnuðu heldur betur við
hjá því fólki sem fór í Njálugöngu á Njáluslóðum nýlega. Sagnaþulurinn og göngu-
garpurinn Magnús Jónsson sá um að segja frá Njáli og hans fólki en Sigrún Val-
bergsdóttir var fararstjóri í ferðinni sem farin var á vegum Ferðafélags Íslands.
Í hlíðum Vatnsdalsfjalls Frá sögugöngu FÍ nú í maí, sagnaþulur
ferðarinnar Magnús Jónsson segir frá og les úr Njálu fyrir hópinn.
Njáluslóðir Hér er vaðið yfir Þórólfsá og hefur fararstjórinn Sigrún Val-
bergsdóttir, sem hér sést fremst á myndinni, slengt skónum um hálsinn.
Hjólað í vinnuna-átakið er nú í full-
um gangi og stendur til 29. maí
næstkomandi. Það er Íþrótta- og
Ólympíusamband Íslands sem hef-
ur staðið að átakinu frá árinu
2003. En megin-markmið þess er
að vekja athygli á hjólreiðum sem
heilsusamlegum, umhverfisvænum
og hagkvæmum samgöngumáta.
Á vefsíðunni hjoladivinnuna.is er
hægt að fylgjast með árangri og
einnig horfa á myndbönd sem send
hafa verið inn í keppnina. Á síðunni
segir að starfsmenn vinnustaða
hér á landi hafa tekið vel við sér
því þátttakan hafi margfaldast þau
átta ár sem verkefnið hefur farið
fram.
Í upphafi stóð átakið yfir í eina
viku, næstu þrjú ár í tvær vikur og
síðustu fimm ár í þrjár vikur.
Vefsíðan www.hjoladivinnuna.is
Morgunblaðið/Ómar
Útivera Það er góð alhliða hreyfing að hjóla og sparar líka bensín.
Heilsusamlegt og hagkvæmt
Rútuhlaupið svokallaða er 20-30
km hlaup frá Nesjavallaleið til
Laugardalslaugarinnar í Reykjavík.
Mæting er við Sundlaugarnar í
Laugardal kl. 9.15. og heldur rútan
stundvíslega af stað korteri seinna
úr bænum í áttina að Nesjavöllum.
Mun rútan stoppa 30 km síðar
og þátttakendur hlaupa til baka
niður í sundlaugar. Drykkjar-
stöðvar verða á uþb. 5 km fresti og
á þeim verður hægt að stíga um
borð í rútuna og hvíla næstu 5 km
eða byrja hlaupið þegar 20 km eru
eftir. Skráning og nánari upplýs-
ingar á hlaup.is.
Endilega …
… hlaupið
Rútuhlaupið
Morgunblaðið/Ómar
Fjör Endað við Laugardalslaug.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Akureyri
Húsavík
Vestmannaeyjum
1.290,-
1.290,-1.290,-
1.250,- 1.290,-
1.890,-
110 cm
1.890,-
1.290,-
GÆÐASKÓFLUR
Haki
1.890,-Malarhrífa verð frá
1.390,-
Laufhrífa
690,-
Strákústur
30cm breiður
695,-
Garðtól á góðu verði