Morgunblaðið - 15.05.2012, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2012
„Þetta er fyrsti afmælisdagurinn sem ég man eftir sem ég er ekki í
próflestri og það er nokkuð skrítin tilfinning sem ég gæti vel van-
ist.“ Ragnheiður segir að hún hafi oftast verið að lesa undir próf í
stærðfræði á afmælisdaginn en það hafi ekki komið að sök þar sem
hún er einstaklega lunkin í stærðfræði enda stundar hún nám í iðn-
aðarverkfræði við Háskóla Íslands í dag og er stúdent af stærð-
fræðibraut frá Menntaskólanum í Reykjavík. Þá hefur hún fengið
inngöngu í sumarnám hjá Stanford University í Bandaríkjunum en
hann er einn besti tækni- og raungreinaskóli í heiminum og aðeins
afburðanemendur fá inni í þeim virta skóla.
Auk þess að vera afburðanemandi stundar Ragnheiður hernaðar-
æfingar í Elliðaárdalnum eins og hún orðar það sjálf en hún á að
sjálfsögðu við þrekæfingar hjá líkamsræktarstöðinni Bootcamp.
„Bootcamp er ekki komið í dalinn en þetta hefur fengið mikla um-
fjöllun í fjölmiðlum að undanförnu.“ Þá æfði hún og spilaði hand-
bolta með Stjörnunni frá barnsaldri.
„Ég er nýbyrjuð að vinna hjá Landsvirkjun þannig að lunganum
af afmælisdeginum verður varið í vinnunni en því sem eftir lifir af
honum ætla ég að eyða með fjölskyldunni. Mér hefur alltaf fundist
mikilvægt að eyða sjálfum afmælisdeginum í rólegheitum með fjöl-
skyldunni en halda síðan síðar upp á tímamótin með vinum.“
Ragnheiður Björk Halldórsdóttir er 21 árs
Afmæli Bauð vinum sínum í matarboð um helgina í tilefni afmælisins.
Stefnir á nám í
Stanford í sumar
Þ
órhallur ólst upp í Kópa-
voginum. Hann lauk
námi í tæknifræði frá
Köbenhavns Teknikum
1979 og stundaði nám við
University of Colorado í Boulder
1986.
Þórhallur hóf störf hjá Áætlunar-
deild Vegagerðar ríkisins 1979, var
umdæmistæknifræðingur á Austur-
landi 1980 og á Suðurlandi frá 1981-
95, var aðstoðarmaður Þorsteins
Pálssonar í dóms- og kirkjumála-
ráðuneytinu 1995-99 en tók þá við
sem framkvæmdastjóri Neyðarlín-
unnar.
Umferðaröryggisáætlanir
Þórhallur var ritstjóri og ábyrgð-
armaður héraðsblaðsins Suðurlands
1987-92 með hléum, var formaður
blaðstjórnar kjördæmisráðs Sjálf-
stæðisflokksins á Suðurlandi frá
sama tíma, sat í stjórn Knattspyrnu-
deildar Ungmennafélags Selfoss
1988-91 og í stjórn Skákfélags Selfoss
í tvö ár, var formaður sjálfstæð-
isfélagsins Óðins á Selfossi 1989-96,
sat í stjórn kjördæmisráðs Sjálfstæð-
isflokksins á Suðurlandi, var formað-
ur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í
Árnessýslu, í stjórn samgöngu-
nefndar Sjálfstæðisflokksins um
margra ára skeið, var formaður um-
ferðarmálanefndar Selfoss 1990-94,
var forseti Rótaryklúbbs Selfoss
1992-93, var félagi í Rótaryklúbbnum
Görðum, Garðabæ, var formaður um-
Þórhallur Ólafsson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar, 60 ára
Á Baulu Talið frá vinstri: Guðmundur „stóri“ Jónsson, starfsmaður 112; Jón Helgi Guðmundsson slökkviliðsm.; Ari
Trausti Guðmundsson forsetaframbj.; Afmælisbarnið; Páll Ásgeir Ásgeirsson, leiðsögum. og rith.; Páll Guðmunds-
son, framkvæmastj. FÍ; Auður Elva Kjartansdóttir snjóflóðafr. og Rósa Sigrún Jónsdóttir, leiðsögum. og rith.
„Þú bláfjallageimur ...“
Við Gerpi Þórhallur Ólafsson og eiginkona hans, Gróa Dagmar.
50 ára Stefanía Jörgensdóttir er fimmtug í dag, 15. maí.
Í tilefni þess opnar hún málverkasýningu í Gróskusalnum,
Garðatorgi 3, á morgun, 16. maí kl. 17. Sýningin heitir:
Töfrandi tónar Ítalíu. Myndirnar á sýningunni eru undir
áhrifum frá bænum Lucca í Toscana-héraði á Ítalíu en þar
sótti Stefnía námskeið í málun og menningu haustið
2011, ásamt listakonum af vinnustofunni Art 11 í Kópa-
vogi. Sýningin verður opin til 20. maí frá kl. 14 til 18. Mál-
verkin verður einnig hægt að skoða á vefsíðunni:
www.artwanted.com/stefa. Stefanía er gift Einari Ein-
arssyni svæfingalækni og á tvo syni 18 og 20 ára.
Árnað heilla
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Kópavogur Viðar Óli fæddist 26. júlí
kl. 16.29. Hann vó 3.440 g og var 51
cm langur. Foreldrar hans eru Inga
Lára Ólafsdóttir og Gunnar Bjarni
Viðarsson.
Reykjavík Bryndís Halldóra fæddist 1.
mars kl. 10.48. Hún vó 2.930 g og var
49 cm löng. Foreldrar hennar eru Að-
alheiður M. Steindórsdóttir og Stefán
Halldórsson.
Nýir borgarar
Bíldshöfði 14 » 110 Reykjavík » Sími 567 6744 » gsvarahlutir.is
Triscan gormar, bremsu- og stýrishlutir
Pöntum á fimmtudögum, varan komin á mánudegi