Morgunblaðið - 15.05.2012, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2012
STUTTAR FRÉTTIR
● Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody’s
lækkaði lánshæfiseinkunn tuttugu og
sex ítalskra banka í gærkvöldi. Meðal
annars var einkunn Unicredit og In-
tesa Sanpaolo lækkuð.
Ástæða lækkunarinnar er sam-
kvæmt tilkynningu frá Moody’s varn-
arleysi bankanna ef efnahagskreppan
eykst á evrusvæðinu. Einkunn
ítalskra banka er nú með því lægsta
sem gerist á meðal banka í Vestur-
Evrópu.
Ítalskir bankar
lækka í einkunn
● Samanlögð kreditkortavelta og de-
betvelta einstaklinga innanlands jókst
um 6,1% að raungildi í apríl milli ára.
Virðist bakslag marsmánaðar því hafa
verið tímabundið, segir í Morgunkorni
Íslandsbanka.
Kreditkortavelta í apríl var samtals
31,4 milljarðar króna, og er það aukning
um 8% frá fyrri mánuði og aukning um
7% að raungildi frá sama mánuði fyrra
árs.
Debetkortaveltan í aprílmánuði var
samtals 30,7 milljarðar króna eða nán-
ast sú sama og í fyrri mánuði, en aukn-
ingin nemur 4,2% að raungildi frá sama
mánuði fyrra árs.
Mikil aukning varð á
kortaveltu í apríl
Slitastjórn Kaupþings Singer &
Friedlander, dótturfélags Kaup-
þings í Bretlandi, hefur endurgreitt
almennum kröfuhöfum um 3,36
milljarða punda, jafnvirði ríflega 680
milljarða íslenskra króna, af 4,6
milljarða punda skuld þrotabúsins.
Endurheimturnar eru því um 73%,
nú þegar meira en þrjú og hálft ár er
liðið frá hruni íslenska bankakerfis-
ins. Það er Financial Times sem
greinir frá þessu, en þar kemur enn-
fremur fram að bresk sveitarfélög og
góðgerðasamtök séu á meðal þeirra
kröfuhafa sem hafa fengið fé sitt
greitt til baka.
Á það er bent í frétt Financial
Times að einstakir innstæðueigend-
ur, sem voru tryggðir af breska inn-
stæðutryggingasjóðnum, hafi þegar
fengið fjármuni sína greidda að fullu
til baka. Hins vegar óttuðust margar
sveitarstjórnir og góðgerðarfélög –
en innstæður þeirra voru í sumum
tilfellum ekki tryggðar af breska
innstæðutryggingasjóðnum – að
tapa stórum hluta af innstæðum sín-
um í bankanum.
Endurskoðunarfyrirtækið Ernst
& Young, sem er skiptastjóri þrota-
bús hins fallna banka, býst við því að
greiðslum úr búinu verði lokið á síð-
ari hluta næsta árs. Áætlanir gera
ráð fyrir því að lánardrottnar muni
að endingu fá greiddar til baka á
milli 79% til 86% af kröfum sínum.
Financial Times hefur það eftir
sérfræðingum að endurheimtur úr
þrotabúinu hafi verið mun meiri
heldur en áætlanir hafi gert ráð fyrir
í upphafi. Ian Stewart, sem starfar
fyrir slitastjórn bankans, segir að
góðar endurheimtur skýrist meðal
annars af því að ekki hafi verið ráðist
í brunaútsölu á fasteignalánasafni
bankans í London, en verðmæti þess
hefur hækkað frá því að bankinn fór í
greiðsluþrot. Að sama skapi hækk-
aði verðmæti lána sem voru með veð-
um í snekkjum og einkaþotum, en
hins vegar þurfti að afskrifa töluvert
af lánum bankans í tengslum við
fasteignaþróunarverkefni.
hordur@mbl.is
Endurheimtur
KSF komnar í 73%
KSF Góðar endurheimtur úr búinu.
Kröfuhafar fá 3,36 milljarða punda
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
„Ég á 365. Ég setti sjálf peninginn
í það. Þess vegna á ég það, annars
myndi ég ekki
nenna að eiga
það,“ segir Ingi-
björg Pálmadótt-
ir, stjórn-
arformaður
fjölmiðla-
samsteypunnar
365, í samtali við
Morgunblaðið.
„SMS kemur mér
ekkert við. Ekki
neitt,“ segir hún.
Ingibjörg er orðin þreytt á fréttum
þar sem eignarhald hennar á 365
er dregið í efa.
Tenging við SMS?
Ingimar Karl Helgason fjölmiðla-
maður skrifaði pistil á vinstri vef-
inn Smuguna, þar sem fram kom
að félag sem hélt utan um helm-
ingshlut Jóhannesar Jónssonar,
stofnanda Bónuss, og viðskipta-
félaga hans í færeyska versl-
unarfyrirtækinu SMS, ætti einnig í
365. Við það vaknaði spurningin
hvort Ingibjörg ætti ein eign-
arhaldsfélögin sem eiga fjölmiðla-
veldið. „Jón Ásgeir eða Jóhannes
Jónsson eiga ekki í félaginu þó að
margir vilji hafa það þannig,“ segir
hún í tölvuskeyti til Morgunblaðs-
ins. Hún eigi sjálf um 90% í 365.
Rétt er að geta þess að Ingibjörg
hefur erft mikið fé en faðir hennar
stofnaði Hagkaup.
„Ég á Moon“
Ingibjörg á 90% A-hlutabréfa
365 og öll B-hlutabréfin í gegnum
þrjú eignarhaldsfélög, auk þess
sem hún heldur á 8% hlut í eigin
nafni. Moon Capital, félag sem er
skráð í Lúxemborg, heldur um
43,5% hlut, að því er fram kemur í
samantekt Fjölmiðlanefndar um
eignarhald á fjölmiðlum. A-
hlutabréf hafa meira atkvæðamagn
en B.
Moon Capital S.á.r.l., sem er fé-
lag skráð í Lúxemborg, á 43,3% í
365. „Ég á Moon,“ segir Ingibjörg í
samtali við Morgunblaðið. Fram
kom í fréttum í mars að félag undir
forystu Jóhannesar, sem heitir
Apogee, hefði selt 50% hlut í SMS,
og að Apogee væri í eigu Moon
Capital. „Moon á Apogee. Það hef-
ur komið fram,“ segir Ingibjörg.
– En var Apogee ekki í SMS?
„Apogee kemur SMS ekkert
við,“ segir Ingibjörg.
– Ég hélt að Apogee hefði verið
eigandi að verslunarfyrirtækinu í
Færeyjum SMS, 50%?
„Það er ekkert sem kemur mér
við. SMS kemur mér ekkert við.
Ekki neitt,“ segir Ingibjörg.
– En af hverju átti Moon í Apo-
gee sem átti SMS?
„Það kemur 365 ekkert við,“ seg-
ir Ingibjörg.
Hún vildi ekki tjá sig frekar um
málið en sagði skýrt: „Jón Ásgeir á
ekki 365.“ Jón Ásgeir er eig-
inmaður Ingibjargar og sonur Jó-
hannesar Jónssonar. Hann varð
stjórnarformaður fyrirtækisins í
lok árs 2006 en fréttir bárust af því
að Ingibjörg hefði tekið við því
starfi í upphafi árs 2009.
Þegar Morgunblaðið ræddi við
Jóhannes í síðustu viku vildi hann
ekki ræða um það hvernig eign-
arhaldi væri háttað á SMS og út-
skýra tenginguna við 365.
Sérhæft í stofnun
eignarhaldsfélaga
Moon Capital var stofnað af
European Marketing & Research
Services ltd. Samkvæmt fyr-
irtækjaskrá í Lúxemborg situr Ka-
rim Van Den Ende í stjórn félags-
ins, en hann stofnaði KV Associates
S.A. sem sérhæfir sig m.a. í fjár-
mála og skattaráðgjöf (e. wealth
and tax planning). Van Den Ende
vildi ekki ræða við Morgunblaðið í
gær. Ingibjörg segist í tölvupósti
ekki eiga European Marketing &
Research Services ltd. Það sé félag
sem starfi við að stofna eign-
arhaldsfélög.
Ingibjörg er þreytt á um-
ræðunni um eignarhald 365
„SMS kemur mér ekkert við“ Kom auga á tengingu Moon Capital við SMS
Ingibjörg á 365
» Ingibjörg S. Pálmadóttir
segist eiga sjálf um 90% hlut í
365.
» Blaðamaður Smugunnar
taldi sig koma auga á teng-
ingar milli SMS-verslunarkeðj-
unnar í Færeyjum sem Jóhann-
es Jónsson átti hlut í og 365.
» „SMS kemur mér ekkert við.
Ekki neitt,“ segir Ingibjörg.
Eign Ingibjargar í 365
Ingibjörg
Pálmadóttir
IP studium ehf.
ML 102 ehf.
25,8%
12,5%
7,9%
Moon
Capital
S.á.r.l.
43,5%
SMS
Apogee
Moon
Capital
Ingibjörg
Pálmadóttir
Morgunblaðið/Heiddi
!"# $% " &'( )* '$*
+,-.,/
,0,.11
+,2.-
,+.12/
,+.323
+1.0+/
+32.,1
+.241
+53.24
+-,./4
+,-.2/
,03.34
+,2.54
,+.5+1
,+./+-
+1.0-4
+32.--
+.21,-
+54.+2
+-,.5,
,++.55+4
+,-.1/
,03.1-
+,-.3/
,+.51,
,+./45
+1.+,
+3-.0/
+.2143
+5/.43
+-3.34
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
HVER ER STAÐAN
Á ÞINNI HEILSU?
HEILSUMAT HENTAR ÞEIM
SEM VILJA PERSÓNULEGA RÁÐGJÖF
VARÐANDI BETRI LÍFSSTÍL
Markmiðið með Heilsumati er að veita vandaða ráðgjöf
hjúkrunarfræðings um heilsufar, hreyfingu og næringu
sem og áhættuþætti helstu sjúkdóma.
Betri heilsa borgar sig!
Faxafeni 14 · Sími 560 1010 · heilsuborg.is
Innifalin er mæling í líkamsgreiningartæki þar sem
grunnorkuþörf þín er reiknuð út
Verð kr. 6.900.
Pantaðu tíma
í Heilsumat
í síma 560 1010 eða á
mottaka@heilsuborg.is