Morgunblaðið - 15.05.2012, Blaðsíða 14
BAKSVIÐ
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís-
lands, fór hörðum orðum um Jó-
hönnu Sigurðardóttur forsætisráð-
herra í útvarpsviðtali í Bylgjunni á
sunnudag. Þar sagði hann forsætis-
ráðherra vera í stríði gegn sér og
hefði aldrei fyrirgefið honum að hafa
vísað Icesave-málinu í þjóðar-
atkvæðagreiðslu. „Hún telur þetta
vera dauðasök,“ sagði forsetinn.
Forsetinn nefndi sérstaklega ræðu
Jóhönnu á flokksstjórnarfundi Sam-
fylkingarinnar í mars á þessu ári sem
dæmi um þá ýmsu „leiðangra“ sem
hann segir hana hafa farið í gegn sér.
Í þeirri ræðu gerði forsætisráðherra
og formaður Samfylkingarinnar það
að umtalsefni að mikil gerjun væri í
samfélagsumræðunni og benti á að
ekki færri en tíu mismunandi aðilar
stefndu á framboð til Alþingis. Sagði
hún svo: „… og ýmislegt bendir til
þess að sitjandi forseti hyggist stíga
enn frekari skref í að færa embætti
forseta Íslands inn á átakavettvang
stjórnmálanna – þvert gegn þeim
hugmyndum og hefðum sem gilt hafa
um hlutverk forsetans sem samein-
ingartákns þjóðarinnar.“
Í viðtali við RÚV sagði Jóhanna
svo að mikilvægt væri að forseti
hverju sinni skildi stjórnskipun Ís-
lands með þeim hætti sem ætti að
skilja hana og hann færði sig ekki inn
á hinn pólitíska vettvang.
Deildu um siðareglur forseta
Fleiri skot hafa þó gengið á milli
þessara tveggja æðstu forystumanna
þjóðarinnar á síðustu misserum. Það
var í maí árið 2010 sem bréfaskipti á
milli forsætisráðuneytisins og for-
setaembættisins hófust um siða-
reglur fyrir embættið. Óskaði ráðu-
neytið eftir upplýsingum frá
forsetaembættinu um hvernig yrði
staðið að því að móta reglur um emb-
ættið með vísan í skýrslu rannsókn-
arnefndar Alþingis.
Ólafur Ragnar hélt því fram að
bréf forsætisráðuneytisins byggðist
á misskilningi og bauð Jóhönnu að
draga bréfið til baka á fundi þeirra í
júní. Forsætisráðuneytið ítrekaði
hins vegar fyrirspurn sína í bréfi í
byrjun júlí.
Þessu bréfi svaraði forsetinn um
miðjan júlí. Sagði hann engin for-
dæmi fyrir bréfaskrifum forsæt-
isráðuneytisins og að efni þeirra og
form væru í engu samræmi við
stjórnskipan lýðveldisins, stöðu for-
sætisráðherra innan ríkisstjórnar né
sjálfstæði forseta og Alþingis. Enn-
fremur sagði forsetinn að bréfin
væru „rakalaus tilraun til íhlutunar í
samskipti forsetaembættisins og Al-
þingis“.
Í svarbréfi forsætisráðuneytisins
er þessum ásökunum hafnað og því
haldið fram að ráðuneytið hefði að-
eins verið að óska eftir upplýsingum
frá forsetaembættinu. Mótmælti
ráðuneytið framsetningu forsetans á
málinu.
Forseti og forsætis-
ráðherra í hár saman
Morgunblaðið/Eggert
17. júní Forsetinn og forsætisráðherra saman á þjóðhátíðardaginn 2010.
Skömmu áður sendi ráðuneytið forsetanum fyrirspurn um siðareglur.
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2012
Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra var ósátt við Ólaf
Ragnar Grímsson forseta í sept-
ember í fyrra og taldi hann hafa
vegið ómaklega að ríkisstjórn-
inni.
Í viðtali við Ríkisútvarpið
hafði forsetinn látið hafa eftir
sér að ríkisstjórnin hefði látið
undan þrýstingi og ofbeldi Evr-
ópuþjóða með því að fallast á
kröfur Breta og Hollendinga í
Icesave-málinu.
Kvaðst Jóhanna ætla að ræða
ummælin við forsetann við
fyrsta tækifæri.
Vó ómaklega
að stjórninni
ICESAVE-MÁLIÐ
Aðalfundur fríkirkjusafnaðarins í
Reykjavík var haldinn í gærkvöldi
og var kjörið nýtt fimm manna safn-
aðarráð. Harðar deilur hafa verið í
söfnuðinum að undanförnu og fyrir
skömmu sögðu þrír af liðsmönnum
þáverandi safnaðarráðs sig úr því.
Einnig hafa verið deilur milli prest-
anna tveggja, Hjartar Magna Jó-
hannssonar og Bryndísar Valbjarn-
ardóttur.
Nýr formaður safnaðarráðs, Eyj-
ólfur Ágúst Kristjánsson, var áður
varamaður. „Það var rætt um sam-
skiptavanda í starfseminni,“ segir
Eyjólfur. „Við teljum að þetta sé af-
leiðing þess að skipulag hafi ekki
verið nógu skýrt. Skerpa þurfi á
skipulaginu og það er verk sem við
ætlum að vinna nú á nýju ári.“
Hann segir að ekki hafi verið tek-
ist á um nein stórmál en að sjálf-
sögðu geti einhverjir verið óánægðir
í 10 þúsund manna söfnuði. Fram
hafi komið gagnrýni á Hjört Magna
en henni verið svarað. kjon@mbl.is
Nýtt safnaðarráð
Fríkirkjunnar
Formaðurinn segir þörf á að efla
skipulag til að draga úr núningi
www.falkinn.is
...sem þola álagið!
TRAUSTAR VÖRUR...
Raftæknivörur
Mótorvarrofar
og spólurofar
Það borgar sig að nota það besta!
E
i
n
n
t
v
e
i
r
o
g
þ
r
í
r
3
1
.3
0
1
Skynjarar Töfluskápar
Hraðabreytar Öryggisliðar
Aflrofar Iðntölvur
th
or
ri@
12
og
3.
is
/3
1.
31
3
ÓDÝRAR FLÍSAR
SJÓN ER SÖGU RÍKARI
Mjög ÓDÝRAR flísar
3. flokkur, henta vel utanhúss, á svalirnar, sameignir,
bílskúr, geymsluna, iðnaðarhúsnæðið og nánast hvar
sem er. Stærðir 20x20, 30x30, 30x60.
Af hverju lenda flísar í 3. flokki?
Flísarnar hugsanlega hornskakkar. – Eitthvað að yfirborði flísanna.
–Litatónar etv. ekki alveg réttir. – Kannski aðeins kvarnað úr hornum.
– Afgangar af
framleiðslu frá
1. og 2. flokk.
ATH! 3. flokkur
er aðeins seldur í í
heilum pakkningum
og ekki er hægt að
skila afgöngum.
Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is
Gæði og glæsileiki á góðu verði
Allar stærðir og áferðir í 3. flokki
á sama verði 2.290 kr pr m2