Morgunblaðið - 15.05.2012, Page 11
Ljósmynd/Gísli Már Gíslason
Á toppnum Hjónin Gísli Már Gíslason og Sigrún Valbergsdóttir efst á Þórólfsfelli með Tindfjöll í baksýn.
Njálugöngu í fyrsta skipti og Sigrún
segir að þau hafi byggt ferðina upp í
takt við söguna. „Við byrjuðum þar
sem upphaf Njálu er, en í fyrstu setn-
ingu hennar segir: „Mörður hét mað-
ur er kallaður var gígja [...] Hann bjó
á Velli á Rangárvöllum.“ Við hófum
því gönguna við bæinn Völl og geng-
um síðan inn í sögusvið Njálu, yfir í
Fljótshlíðina. Við fylgdum sögunni í
tímaröð og við drápum á réttum stöð-
um á réttum tíma,“ segir Sigrún og
hlær en lokaviðkoman í göngunni var
á Bergþórshvoli, þar sem göngu-
garparnir brenndu alla inni, en að
sjálfsögðu ekki í bókstaflegri merk-
ingu.
Tvær ferðir í röð
Sigrún segir að það leggist
einkar vel í fólk að spyrða saman
gönguferð og sagnaferð, enda lifni
sagan við þegar farið er á slóðir
hennar. „Í Njálugöngunni höfðum
við aðsetur á einum stað, þar sem við
vorum alveg út af fyrir okkur og gát-
um geymt allar okkar byrðar og
þurftum ekki að burðast með stóra
bakpoka í göngunum yfir daginn.
Gengið var frá fimm tímum upp í átta
tíma á dag,“ segir Sigrún og bætir við
að gangan hafi staðir yfir í fjóra daga.
„Eftirspurnin var svo mikil að við
fórum í tvær ferðir í röð. Þetta er
svolítið strembin ganga, við göngum
upp á fjallið Þríhyrning og langa leið
upp á Fljótsdalsheiði og líka upp á
Þórólfsfell. Þetta er alvöruganga þó
að þetta sé líka söguferð, þetta er
engin þægindaferð þar sem keyrt er
milli staða í rútu. Magnús les upp og
segir frá sögunni á ólíklegustu stöð-
um, eins og til dæmis efst uppi á fjöll-
um. Og við veltum fyrir okkur þegar
við horfum yfir sögusviðið hvar
Gunnar hafi farið um og fleira í þeim
dúr.“
Fimm þumlunga lögreður
En þar sem Njála er mikil og
flókin saga var líka sögustund á
morgnana í kjölfar morgunmatar og
einnig hélt Magnús fyrirlestur á
kvöldin, eftir að þau höfðu borðað
kvöldmat sem þau elduðu sjálf.
„Magnús heldur öllum þráðum í þess-
ari fjögur hundruð síðna sögu vel til
haga. Og stundum fór samkoman á
flug, til dæmis var eitt kvöldið tekið
fyrir kynlífsvandamálið hjá Unni
Marðardóttur og Hrúti Herjólfssyni.
„Við veltum upp fyrirbærinu lög-
reður, sem ku vera fimm þumlungar.
En þjóðsagan segir að kona ein hafi
fengið skilnað frá karli sínum sem
státaði ekki af stærri lim en þremur
þumlungum og því hafi hann ekki
uppfyllt skilyrði um lögreður. Kerling
fékk skilnað. Ef Íslendingar ganga í
Evrópusambandið verður þetta sjálf-
sagt ein af tilskipunum þeirra og þá
mega menn nú fara að vara sig.“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2012
Svokallað Live Spinning var haldið á
bílaplani Veggsports, skvass og
heilsuræktar, nú fyrir helgina í tilefni
25 ára afmælis stöðvarinnar.
Veðurguðirnir hafa heldur verið að
stríða landanum síðastliðna daga en
þegar ljósmyndari náði þessum
myndum rigndi í það minnsta ekki.
Það voru Sigurgeir og félagar í hljóm-
sveit hússins sem héldu uppi stuðinu
á meðan dágóður hópur spinning-
garpa hjólaði og púlaði hvað mest
hann mátti. Á eftir var haldið grill-
partí með léttum veitingum til að
fylla á tankinn eftir góða æfingu.
Líkamsræktarstöðin Veggsport var
stofnuð árið 1987 af þeim Hafsteini
Daníelssyni og Hilmari Gunnarssyni.
sem kynnst höfðu skvassi erlendis.
Í dag hefur Veggsport aðsetur á Stór-
höfða og er þar hægt að stunda ým-
iss konar líkamsrækt.
Spinning í Veggsporti
Morgunblaðið/Kristinn
Live Spinning Farið var með spinninghjólin út á plan og púlað þar á þeim.
Púlað og svitnað utandyra
Þátttakendur Dágóður hópur naut þess að hreyfa sig undir berum himni.
Púl Spinning tekur vel á líkamann.
Dagur eitt: Gengið frá Velli og upp á Vatnsdalsfjall, til að njóta góðs út-
sýnis þar yfir og fræðast. Síðan gengið niður í Vatnsdalinn og heim.
Dagur tvö: Gengið á og um Þórólfsfell og horft um Fljótsdalsheiði og
fjallað um söguna innan um og saman við.
Dagur þrjú: Gengið upp á Þríhyrning og um Þríhyrningahálsa.
Dagur fjögur: Farið að Hlíðarenda og gengið þar um, einnig farið að Stóra
Dímoni og gengið þar um. Síðan er farið að Gamla Vorsabæ og að lokum
að Bergþórshvoli.
Útsýni og fræðsla
FJÖGURRA DAGA GANGA
Staðalbúnaður í Volkswagen
Passat Comfortline Plus er fullkomið
leiðsögukerfi með Íslandskorti
og bakkmyndavél.
www.volkswagen.is
Ratvís og
víðsýnn
Volkswagen Passat EcoFuel
Komdu og reynsluaktu Volkswagen Passat
Passat Comfortline Plus
sjálfskiptur kostar aðeins
4.590.000 kr.