Morgunblaðið - 15.05.2012, Page 13

Morgunblaðið - 15.05.2012, Page 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2012 Sumir lífeyrissjóðir eru að öllu leyti búnir að uppfylla ákvæði samkomu- lagsins við stjórnvöld um hlut lífeyr- issjóða í fjármögnun sérstakra vaxta- bóta, með þátttöku í gjaldeyris- útboðum Seðlabankans. Aðrir sjóðir munu ljúka við að uppfylla þetta í næsta útboði bankans skv. upplýs- ingum Arnars Sigurmundssonar, formanns Landssamtaka lífeyris- sjóða. Þetta þýðir að stjórnvöldum ber að standa við sinn hluta samkomulags- ins og fella brott lagaákvæði um skattlagningu á hreina eign sjóð- anna. Sú skattlagning er tímabundin og svarar til um 1.400 milljóna kr. á tveimur árum. Skv. samkomulaginu samþykktu lífeyrissjóðirnir að til að skila hlut þeirra í fjármögnun vaxta- bóta á árunum 2011 og 2012 styðji þeir við framkvæmd áætlunar um að aflétta gjaldeyrishöftum með þátt- töku í 3-4 gjaldeyrisútboðum. 3 af 4 útboðum lokið Arnar segir að nú sé þremur af fjórum útboðum lokið og þetta hafi gengið alveg þokkalega. ,,Sumir sjóð- ir eru búnir að uppfylla þetta ákvæði að öllu leyti en ég býst við að eftir næsta útboð verði allir búnir að því. Lífeyrissjóðirnir geta líka að sjálf- sögðu tekið þátt í útboðunum alfarið á viðskiptalegum forsendum og hafa sumir gert það.“ Ríkisstjórnin lofaði að leggja fram frumvarp um afnám skattsins ekki síðar en á haustþingi. Að mestu búnir að losa sig við skattinn Guðni Einarsson gudni@mbl.is Álfasteinn af Sandskeiði, sem rúmar híbýli álfa á tveimur hæðum, verður fluttur til Vestmannaeyja í dag. Þar verður bjarginu komið fyrir við Höfðaból, heimili Árna Johnsen al- þingismanns, á sunnanverðri Heima- ey. Þetta er í fyrsta skipti svo vitað sé til í víðri veröld sem álfar flytja með allt sitt hafurtask og híbýli á milli landshluta. Endaði við álfasteininn Álfaflutningarnir eiga sér rúmlega tveggja ára aðdraganda. Upphafið var þegar Árni lenti í harðri bílveltu í hálku og krapa að kvöldi 22. janúar 2010. Slysið varð rétt sunnan við Litlu kaffistofuna ofan við Sand- skeið. Bíllinn fór fimm veltur og stað- næmdist við stóran stein í dalverpi, fjörutíu metrum neðan við þjóðveg- inn. Árni slapp óbrotinn en bíllinn, stór jeppi, gjöreyðilagðist. Þótti mik- il mildi hvað Árni slapp vel frá slys- inu. Árni sagðist hafa velt því fyrir sér hvort steinninn sem bíllinn stoppaði við utan vegar gæti hafa verið álfa- steinn. Þegar framkvæmdir hófust við breikkun Suðurlandsvegar fékk hann Ingileif Jónsson verktaka til að bjarga steininum frá því að lenda undir veginum og flytja hann upp að Litlu kaffistofunni. Þrjár kynslóðir í sama steini „Ég fékk Ragnhildi Jónsdóttur, álfasérfræðing úr Álfagarðinum í Hellisgerði í Hafnarfirði, til að koma með mér að skoða steininn,“ sagði Árni. Með þeim slógust í för þær Púl- letín huldukona og Tamína álfur, að því er Ragnhildur sagði Árna þegar þau fóru í leiðangurinn. Þegar þau komu að steininum fóru þær þrjár út en Árni sat í bílnum um stund meðan Ragnhildur kannaði málið og hvort álfar byggju í bjarginu. „Þegar ég kom út úr bílnum sagði Ragnhildur að þetta væri stórkost- legt. Hún hefði aldrei fyrr hitt þrjár kynslóðir álfa í sama steini,“ sagði Árni. „Hún sagði að á efri hæðinni byggju gömul hjón en á þeirri neðri hjón með þrjú börn.“ Ragnhildur bar það undir álfana hvernig þeim litist á að flytja til Vest- mannaeyja. „Þau sögðust hlakka til flutninganna,“ hafði Árni eftir Ragn- hildi. „Gamli maðurinn á efri hæð- inni, sem orðinn er nokkur hundruð ára gamall, var feginn því að færa ætti steininn því þá væri hægt að rétta hann við. Nú er steinninn svo skakkur að gamli maðurinn þarf eig- inlega að sofa standandi í rúminu.“ Vildu hafa steininn á grasi „Svo spurðu þau hvort hægt væri að setja steininn niður þar sem væri gras. Jú, ég sagði að það væri ekkert vandamál en spurði hvers vegna þau vildu gras. „Það er af því að þau lang- ar að fá sér kindur,“ svaraði Ragn- hildur. Þá spurðu þau hvort það væri hægt að láta gluggavegginn snúa að fallegu útsýni. Ég lofaði að gera það,“ sagði Árni. Ragnhildur sýndi Árna gluggahliðina. Álfarnir sögðu Ragnhildi að það hafi allt verið á tampi á heiðinni þeg- ar Árni lenti í slysinu um árið. Þá hafi verið ræst út í öllum álfabyggðum og allt í uppnámi þar til stór vera kom og tók stjórnina. „Ragnhildur sagði að þetta hafi verið verndarvættur minn, því tími minn var ekki kominn,“ sagði Árni. Gæruklædd bastkarfa Álfarnir munu ferðast til Eyja í bastkörfu sem klædd verður gæru- skinni, svo það fari vel um þá á ferða- laginu. Ragnhildur í Álfagarðinum verður einnig með í föruneytinu til að gera álfunum flutninginn auðveldari og tryggja að rétt verði gengið frá álfasteininum. Álfar flytjast búferl- um til Vestmannaeyja  Heimili álfanna, 30 tonna bjarg, flutt af Sandskeiði að Höfðabóli á Heimaey  Ætla að fá sér kindur í Eyjum Morgunblaðið/Árni Sæberg Álfabústaður Árni Johnsen við álfasteininn sem vegur um 30 tonn. Bjargið verður flutt með Herjólfi til Vestmannaeyja í dag og álfarnir einnig. Ársalir fasteignamiðlun og fyrirtækjasala Ef þú vilt selja, leigja eða kaupa fasteign eða selja eða kaupa fyrirtæki í rekstri, hafðu samband. Ársalir FASTEIGNAMIÐLUN Engjateigi 5, 105 Rvk 533 4200 Ársalir ehf fasteignamiðlun 533 4200 og 892 0667 arsalir@arsalir.is Engjateigi 5, 105 Rvk Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali SMIÐJUVEGI 10 (GRÆN GATA) | 200 KÓPAVOGI | SÍMI 414 8400 / 414 8409 | HEXA.IS | HEXA@HEXA.IS SÉRHÆFT FYRIRTÆKI Í STARFSMANNAFATNAÐI Fjallalamb á framandi máta Grillað fillet á spjóti, marinerað í hvítlauk, ólífuolíu, tímian & dijon sinnepi, borið fram á salatbeði með hægelduðum rauðlauk, ristuðum sveppum, bakaðri kartöflu & hvítlauks dressingu 2.690 kr. Hálendis spjótNÝTT Grillhúsið Tryggvagötu og Sprengisandi, sími: 5275000, grillhusid@grillhusid.is, www.grillhusid.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.