Morgunblaðið - 11.06.2012, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 11.06.2012, Blaðsíða 10
V/Reykjalund - Mosfellsbæ - Sími 562 8500 - www.mulalundur.is Múlalundur - fyrir betri framtíð BARMMERKI FUNDURINN ÆTTARMÓTIÐ ENDURFUNDIR N NÁMSKEIÐIÐ RÁÐSTEFNUR Við öll tækifæri Barmmerkin fást í mörgum litum sem bjóða upp á flokkun ættartengsla þegar ættarmót er haldið. Snúrur í hangandi merki Vörunr. 1033 Vörunr. 1020 K Vörunr. 1025 K Vörunr. 1018 K Hægt er að velja á milli þess að hafa snúru, hangandi klemmu eða klemmu og nælu á baki bammerkis. Pappírinn kemur rifgataður í A4 örkum, fyrir þá sem vilja prenta sjálfir. Nokkrar algengustu gerðir barmmerkja: Vörunúmer h (mm) br (mm) 130-1018K 28 70 130-1020K 43 70 130-1025K 55 90 130-1033 55 85 Sjá nánari upplýsingar á vef okkar: www.mulalundur.is 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2012 upp með þessum hætti þá er unnið allan sólarhringinn, það er bara þannig. Svo stækkar þetta og vex og kemur smátt og smátt. Ég kvarta ekki í dag,“ segir Helga Björg sem hægir þó hvergi á og prjónar auk þess til að fá góðar hugmyndir. Hún segir það sitt jóga. Á einu borði í vinnustofunni eru prufur af peysum í bútum sem hugs- aðar eru utan yfir útivistarflíkur ferðamanna og á að vera auðvelt að smeygja utan yfir sig ef kólnar í veðri. Engir sauðalitir þar, heldur litagleðin í fyrirrúmi eins og annarri hönnun Helgu Bjargar. Dorrit Moussaieff hefur heillast af vörum MÝR design og Helga Björg segist prjóna á hana eftir pöntun. Hagkaupsslopparnir Fyrst um sinn seldi Helga Björg vörur sínar í Austurríki þar sem hún var búsett og rekur þar enn verslun og gallerí, Atelier Einfact, í fé- lagi við systur sína, Lindu Björk. Þar er líka birgirinn sem hún kaupir allt efni hjá. „Ég fer alltaf á sama staðinn í Austurríki og kaupi efni hjá fullorðnum manni sem rekur vefn- aðarvöruverslun og selur Svanhildur Eiríksdóttir svei@simnet.is L itir, blúndur, slaufur og pífur er það sem ein- kennir hönnun Helgu Bjargar Steinþórs- dóttur í MÝR design. Hún hrífst af þessum kvenlegu þátt- um og nostrar við hverja flík. Helga Björg leggur áherslu á að fjölda- framleiða ekki hönnun sína, heldur saumar einungis eina flík í stærð úr sama efni. Hún vill að hver kona eigi sitt og saumar ekki aukalega þó ein- hver komi á vinnustofuna og vilji fá alveg eins kjól og hún Dúdda á. „Það væri vissulega freistandi að fjöldaframleiða þær flíkur sem mikil eftirspurn er eftir og hafa ver- ið vinsælar, en ég vil það ekki,“ segir Helga Björg í samtali við blaða- mann. Hann tekur ofan fyrir þessari ákvörðun hönnuðarins. Prjónar á Dorrit eftir pöntun MÝR design hefur fengið mikla athygli að undanförnu og einhverjir gætu haldið að Helga Björg væri til- tölulega ný í faginu, en það er langt frá því. Hún hefur verið að í sjö ár og byggt smám saman ofan á fyrirtæki sitt, sem í upphafi var sprotafyrir- tæki. „Þegar maður er að vinna sig Prjónar og hugsar um hönnun á meðan Hún segist eiga erfitt með að sauma í svörtu enda er litagleðin orðin sérkenni hönnunar hennar. Helga Björg Steinþórsdóttir hjá MÝR design hefur fengið mikla og jákvæða athygli að undanförnu. Tískan er margbreytileg og hefur verið sagt að hún fari í hringi. Oft getur verið erfitt að fylgjast með því hvað er inni og úti hverja stundina og suma óar beinlínis við að finna sér nýja flík fyrir sumarið. Tískusamfélagið Polyvore kemur til bjargar en þar er hægt að fylgj- ast með öllu því heitasta í tískunni í dag. Til dæmis má finna grein um sólgleraugnatísku sumarsins á forsíðu Polyvore en samkvæmt henni eru hringlaga sólgleraugu í anda Johns Lennons og Andy War- hols algjör skyldueign fyrir sum- arið. Á síðunni má einnig finna snið- ugar leiðir til að para saman föt, til dæmis hvernig sé hægt að nota pils bæði í vinnunni og við fínni til- efni. Einnig má skrá sig inn á síð- una og deila óskalistanum eða jafnvel hugmyndum með hinum notendum síðunnar. Fyrir einstaklinga sem hafa keypt sér flík en hafa ekki hug- mynd um hvernig sé smekklegast að nota hana er svo hægt að senda inn spurningu á spjallborð síð- unnar. Þá geta aðrir notendur gef- ið álit sitt á flíkinni og hverju sé best að klæðast við. Vefsíðan www.polyvore.com AFP Stórfín tískuráðgjöf Sýning á verkum fyrsta árs nemenda við Sjónlistadeild Myndlistaskólans í Reykjavík var opnuð í Gallerí Tukt í Hinu Húsinu um helgina. Verkin á sýningunni eru fjölbreytt og til- raunakennd og koma nemendur víða við. Flest verkin voru unnin í verk- stæðisáfanga í umsjón Kolbeins Huga Höskuldssonar, Sigtryggs B. Baldvinssonar og Önnu Hallin, þar sem unnið var í fjölbreyttan efnivið út frá hugmyndum sem þróuðust á námskeiði í umsjón Ingirafns Stein- arssonar og Þorvalds Þorsteinssonar. SÝNINGIN 10 MÁNUÐIR Gallerí Tukt Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.  Vörur frá MÝR design eru til sölu í Duty free Store í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, auk vinnu- stofu í Eldey og Atelier Einfact í Austurríki.  Helga Björg hannar líka veski og aðra fylgihluti, skartgripi og húfur.  Helga Björg er hönnuður mánaðarins á Hótel Reykjavík Natura nú í júnímánuði, auk þess er tískusýning í matsal hótelsins alla föstudaga í júní kl. 17 - 19.  Uppi á lofti í vinnustofu Helgu Bjargar er safn með prufustykkjum, mis- tökum og fyrstu kjólum. Öll snið eru útfært í samvinnu við Lilly Aletta kjólameistara og klæðskera. Tvær saumakonur starfa á vinnustofunni. Líka húfur, skart og veski HÖNNUÐUR MÁNAÐARINS Er kominn tími á að endurnýja innihurðina? Hjá Parka færðu gullfallegar innihurðir frá Grauthoff. Þær eru yfirfelldar með sam- lokukörmum sem auka hljóðeinangrun og brunavörn. Margar útfærslur eru fáanlegar í öllum viðartegundum. Sjón er sögu ríkari. Dalvegi 10-14 ▪ 201 Kópavogur ▪ Sími: 595 0570 ▪ parki.is - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is ...þú leitar og finnur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.