Morgunblaðið - 11.06.2012, Síða 28

Morgunblaðið - 11.06.2012, Síða 28
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar PROMOTHEUS 3D Sýnd kl. 4 - 7 - 10 (Power) SNOWWHITEANDTHEHUNTSMAN Sýnd kl. 4 - 7 - 10 MEN IN BLACK 3D Sýnd kl. 5 - 8 THE FIVE YEAR ENGAGEMENT Sýnd kl. 10:15 HHHH “SCOTT TEKST AÐ SKAPA RAFMAGNAÐA STEMNINGU Í PROMETHEUS” -V.J.V., SVARTHOFDI.IS POWE RSÝN ING KL. 10 HHHH -ROGER EBERT -bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is 28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2012 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Tónleikaröðin Þriðjudagskvöld í Þingvallakirkju hefur göngu sína annað kvöld og er nú haldin í sjötta sinn. Skipuleggjandi raðarinnar frá upphafi er Einar Jóhannesson klar- ínettuleikari og kemur hann jafn- framt fram á tvennum tónleikum raðarinnar, með tríóinu Vei og söng- sveitinni Voces Thules. „Ég er hálfur Þingvellingur og tónleikaröðin er þannig til komin að þegar móðursystir mín, frá Kára- stöðum í Þingvallasveit, féll frá voru síðustu krónurnar í dánarbúinu not- aðar til að stofna tónlistarsjóð fyrir kirkjuna því hún hafði leikið á orgel í henni sem ung kona,“ segir Einar um tildrög tónleikaraðarinnar. Sígild tónlist hefur verið í öndvegi á tónleikum til þessa og segist Einar lítið hafa farið út í léttari tónlist, popp og þess háttar. Að vísu séu fyrstu tónleikarnir í ár með þjóð- lagaívafi en á þeim leikur Gunn- hildur Daðadóttir fiðluleikari. „Þetta getur þróast hvernig sem er og þótt kirkjan sé falleg, mikið djásn, þá komast ekki nema um 50 manns þar inn,“ segir Einar. Þrátt fyrir smæð kirkjunnar hafi þó allt blessast fram að þessu en einu sinni hafi verið svo fjölmennt á tónleikum Voces Thules að færa þurfti þá út á flöt. „Það vildi svo vel til að það var 20 stiga hiti,“ segir Einar kíminn. Það sé unaðs- legt að leika tónlist á jafnfögrum stað. „Svo rabba flytjendur alltaf svolítið við áhorfendur, það myndast mjög vinaleg stemning,“ segir Einar um tónleika raðarinnar. Kveðist á við fossbúann Þriðjudaginn 19. júní heldur sóló- flautuleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Hallfríður Ólafsdóttir, tón- leika í kirkjunni og viku síðar Sig- urgeir Agnarsson sellóleikari og Berglind Stefánsdóttir flautuleikari. Tríó Vei, skipað þeim Ingibjörgu Guðjónsdóttur sópran, Einari og Valgerði Andrésdóttur sem leikur á harmóníum, mun svo kveðast á við fossbúann í Öxarárfossi 3. júlí. 10. júlí er komið að söngsveitinni Voces Thules. Síðustu tónleikar raðarinnar verða haldnir 17. júlí, á þeim leikur gítarleikarinn Arnaldur Arnarson og galdrar þar m.a. fram seiðandi stemningar frá Spáni, eins og Einar orðar það. Tónleikarnir hefjast allir kl. 20, aðgangur er ókeypis en frjáls framlög í tónlistarsjóð kirkjunnar eru vel þegin. Fagrir tónar í fagurri kirkju Ljósmynd/Nökkvi Elíasson Vei Tríó Vei heldur tónleika í Þingvallakirkju 3. júlí næstkomandi.  Þriðjudagskvöld í Þingvallakirkju Hvað ertu að hlusta á um þessar mundir? Allt milli himins og jarðar … en þó aðallega á jarðneska tónlist eins og bluegrass. Hvaða plata er sú besta sem nokkurn tíma hefur verið gerð að þínu mati? Þetta er hlaðin spurning sem ekki er hægt að svara. En ef ég þyrfti að skjóta nokkrum þá væru það plötur eins og Pet Sounds, Sgt. Pepper, Dark Side of the Moon. Hver var fyrsta platan sem þú keyptir og hvar keyptir þú hana? Ætli það hafi ekki verið fyrsta plata The Beat- les. Hvaða ís- lensku plötu þykir þér vænst um? Þarna er heldur ekki hægt að taka eina plötu út en en mér þykir vænt um Vísna- og Íslandslagaplöt- urnar. Hvaða tónlistarmaður værir þú mest til í að vera? Ég er sáttur og mér líður vel í eigin skinni. Hvað syngur þú í sturtunni? Gamla negrasálma. Hvað fær að hljóma villt og gal- ið á föstudagskvöldum? Þegar ég er að vinna þá hljóma lögin sem ég er að flytja ann- ars horfi ég frekar á góða kvikmynd ef ég á frí og hvíli tónlistina. En hvað yljar þér svo á sunnu- dagsmorgnum? Puccini. Í mínum eyrum Björgvin Halldórsson Líður vel ı́ eigin skinni Ljósmynd/Ari Magg Bo Syngur gamla negrasálma í sturtunni og yljar sér við Puccini á sunnudagsmorgnum. Moonrise Kingdom MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS PROMETHEUS KL. 5.50 - 8 - 10.15 16 SNOW WHITE AND THE... KL. 8 - 10.15 12 MIB 3 3D KL. 6 10 PROMETHEUS 3D KL. 6 - 9 16 MOONRISE KINGDOM KL. 5.50 - 8 - 10.10 L SNOW WHITE AND THE HUNTSMAN KL. 9 12 MIB 3 3D KL. 6 - 9 10 GRIMMD:SÖGUR AF EINELTI KL. 5.45 10 MBL PROMETHEUS 3D KL. 5.20 - 8 - 10.30 16 PROMETHEUS 3D LÚXUS KL. 5.20 - 8 - 10.30 16 PROMETHEUS 2D KL. 5.20 - 8 - 10.30 16 SNOW WHITEAND THE HUNTSMAN KL. 8 - 10.40 12 MIB 3 3D KL. 5.30 - 8 - 10.30 10 MIB 3 2D KL. 5.30 10 LORAX – ÍSLENSKT TAL 2D KL. 3.30 L LORAX – ÍSLENSKT TAL 3D KL. 3.30 L LEITIN AÐ UPPRUNA OKKAR GÆTI LEITT TIL ENDALOKANNA „SCOTT ... TEKST AÐ SKAPA RAFMAGNAÐA STEMNINGU Í PROMETHEUS“ -V.J.V., SVARTHOFDI.IS - ROGER EBERT FBL

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.