Morgunblaðið - 11.06.2012, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.06.2012, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 1 1. J Ú N Í 2 0 1 2  Stofnað 1913  134. tölublað  100. árgangur  HELGA BJÖRG NOSTRAR VIÐ HVERJA FLÍK STREYMI TÍMANS KRAFTUR OG SKÖPUN Í MINNINGUNUM ÚTILISTAVERK AFHJÚPAÐ I I ÞAÐ KEMUR ALLTAF NÝR DAGUR 26MÝR DESIGN 10 Mikil bráðnun verður af Vatnajökli í sumar að sögn Magnúsar Tuma Guðmundssonar, prófessors í jarð- eðlisfræði við Háskóla Íslands, en hann var fararstjóri rannsókn- arferðar á vegum Jöklarannsókna- félagsins sem nýlega var farin í Grímsvötn og Vatnajökul. Afleiðinga Grímsvatnagossins gætir enn. „Við reiknum með að mjög mikil bráðnun muni eiga sér stað á vest- anverðum Vatnajökli í sumar,“ segir Magnús. Landris við Vatnajökul var einnig mælt, en það nemur nú um 3 cm á ári vegna minnkunar jökulsins. Afleiðingarnar eru meðal annars hækkun vatnsborðs í jökulvötnum og ám, „vatn mun aukast í jökulám, sérstaklega sunnan til, þótt veðrátta ráði reyndar mestu um það,“ segir Magnús. Í leiðangrinum var siglt á þeim hluta lónsins sem eftir var. Þar voru tekin sýni og mælingar fram- kvæmdar. ,,Lónið er í raun og veru stórmerkilegt því það er mjög heitt, í gígnum var dálítil á með 45 gráða heitu vatni. Einnig var nokkur hundruð metra breiður hluti lónsins við baðvatnshita, eða 25-40 gráður. Austari hluti lónsins er þó töluvert kaldari, en samt býsna volgur miðað við að ísveggir umkringja hann á all- ar hliðar,“ segir Magnús Tumi en hátt hitastig lónvatnsins er leifar af hita úr eldgosinu. Og öskufokið held- ur áfram. Magnús segir að í þurrka- tíð verði töluvert fok í sumar og geti jafnvel varað lengur. gudrunsoley@mbl.is »12 Mikil bráðnun á Vatnajökli Umkringd ís Heit lón eru í gígnum frá seinni hluta gossins í maí í fyrra í suðvesturhorni Grímsvatna, en myndin er tekin þann 3. júní síðastliðinn.  Afleiðinga eldgossins gætir áfram  45 gráða heit lón  Landris þrír cm og vatnsborðið hækkar í jökulám Ljósmynd/Magnús Tumi Guðmundsson Tónleikar Elvis Costello fóru fram í Hörpu í gær- kvöldi og var rífandi stemmning að sögn við- staddra, en Costello bauð tónleikagestum að biðja um óskalög á vefsíðu sinni í aðdraganda tón- leikanna. Costello, sem heitir réttu nafni Declan McManus, hefur dvalið hér á landi frá því á föstudag og mun staldra við í nokkra daga. Þetta er ekki fyrsta Ís- landsferð tónlistarmannsins því hann kom hingað til lands árið 2003 með Diönu Krall, þáverandi unn- ustu sinni og núverandi eiginkonu. Upprunalega átti að halda tónleikana 21. nóv- ember á síðasta ári, en þeim var frestað vegna veik- inda föður Costellos. Morgunblaðið/Sigurgeir S. Costello fór á kostum Enski hjartaknúsarinn mættur til landsins Skúli Hansen skulih@mbl.is „Það að þessi stofnun skuli vera svona hryllilega á sig komin og svona ónýt að inn- an, að það vanti stórar fjárhæðir upp á að eignir dugi fyrir skuldum, er nátt- úrulega að sjálf- sögðu á ábyrgð þeirra sem ráku þennan sparisjóð,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, efna- hags- og við- skiptaráðherra, um stöðu SpKef en rík- ið þarf að greiða 25 milljarða króna, með vöxtum, vegna samruna spari- sjóðsins við Lands- bankann. Að sögn Stein- gríms er um að ræða sokkinn kostnað sem verði að færa inn í bækur rík- isins. Hann segir þetta eðlisólíkt ýmsum öðrum útgjöldum að því leytinu til að hér sé um að ræða hreint tap. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að 25 milljarðar króna muni lenda á skattgreiðendum lands- ins vegna SpKef-málsins. „Það er einungis beinn útlagður kostnaður en við vitum auð- vitað aldrei hver er kostnaðurinn af því að halda svona uppvakningsbanka uppi, en það er nafnið sem Árni Páll Árnason gaf þessum bönkum í ráðherratíð sinni,“ segir Guðlaugur Þór. Hann segir að skynsamleg- ast hefði verið vorið 2009, þegar menn sáu stöðuna, að fara með SpKef og Byr í slita- meðferð. Óskað hefur verið eftir athugun á aðkomu Steingríms að málinu. MSokkinn kostnaður »4 Ábyrgð stjórn- endanna  25 milljarðar lenda á skattgreiðendum SpKef-málið » Þingmaður segir kostnað skattgreiðenda vegna málsins nema um 25 milljörðum. » Ráðherra seg- ir að um sé að ræða hreint tap. » Óskað eftir at- hugun á aðkomu ráðherra.  Eftir bankahrunið 2008 stöðv- uðust framkvæmdir við ráðstefnu- og tónlistarhúsið við Austurhöfn, sem síðar fékk nafnið Harpa sem kunnugt er, og samkvæmt upplýs- ingum Morgunblaðsins kom sá möguleiki til alvarlegrar skoðunar innan stjórnsýslunnar að hætta al- farið framkvæmdum og láta rífa húsið. Eftir nokkra krísufundi, þar sem listamenn voru m.a. fengnir til að sannfæra embættismenn, stjórn- málamenn og bankamenn um þýð- ingu og hlutverk hússins fyrir menningarlíf þjóðarinnar, ákváðu ríki og borg að halda fram- kvæmdum áfram. Var það talið hagkvæmara en að stoppa verkið og láta verktaka fara í þrot. »6 Kom til tals að láta rífa tónlistarhúsið Harpa Fleiri en milljón gestir hafa komið í tónlistarhúsið á rúmu ári. Morgunblaðið/Júlíus  „Þetta er orðið ófremdarástand hringinn í kring- um landið, það er í raun alveg sama hvar borið er niður. Varg- inum mun fjölga stjórnlaust ef ekki verður komið böndum á hann,“ segir Hall- dór Halldórsson, formaður Sam- bands íslenskra sveitarfélaga, um baráttuna við varg á borð við ref og mink. Sveitarfélögin greiddu um 120 milljónir króna árið 2010 til refa- og minkaveiða en ríkið hefur dregið verulega úr þátttöku í þess- um kostnaði. Halldór segir þetta hafa haft mikil áhrif og mörg smærri sveitarfélög eigi í vandræð- um með að halda varginum í skefj- um á stóru landsvæði. »16 Ófremdarástand í eyðingu vargs 29

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.