Morgunblaðið - 14.06.2012, Side 1

Morgunblaðið - 14.06.2012, Side 1
F I M M T U D A G U R 1 4. J Ú N Í 2 0 1 2  Stofnað 1913  137. tölublað  100. árgangur  ÁSTARSAGA Á TJALDSTÆÐI Í GARÐI VIÐSKIPTI ANDSTÆÐUM TEFLT SAMAN Á LITRÍKRI HÁTÍÐ MIÐSUMARSTÓNLIST 34FERSKIR VINDAR 10 Reuters Systurskip Costa Concordia lagðist á hliðina við strendur Ítalíu í vetur.  Costa Pacifica, eitt þeirra skipa sem koma hingað næstkomandi mánudag, er systurskip hins fræga Costa Concordia sem strandaði við Giglio-eyju við vesturströnd Ítalíu fyrr á þessu ári. Samkvæmt upplýsingum sem fengust frá Faxaflóahöfn mun Costa Pacifica, sem er rúm 114 þús- und brúttótonn að stærð, flytja hingað til lands um 3.100 farþega næstkomandi mánudag. Von er á fjórum skemmti- ferðaskipum á mánudag, samtals með 6-7 þúsund farþega. »14 Systurskip Costa Concordia kemur til Íslands á mánudag Baldur Arnarson baldura@mbl.is Verði sumarþing haldið í júlí hefðu þingmenn aðeins um þrjár vikur til að ljúka störfum. „Það þarf að rýma þingsalinn og gera ýmsar ráðstafanir. Síðan þarf að raða upp sætum með nokkrum fyrirvara vegna þess að það þarf að senda út boðskort með merkt- um sætum. Þá er búnaður í saln- um mjög sérhæfður. Þessu fylgir því ansi mikið umstang. Ég tel að við þyrftum viku til tíu daga að lágmarki til að undirbúa innsetn- ingu nýs forseta 1. ágúst nk. Reynslan bendir til þess,“ segir Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis. Sumarþingi þyrfti því að ljúka eigi síðar en 20. júlí svo hægt sé að undirbúa innsetningu. Þingað í júlí eða ágúst Þingflokksformenn flokkanna funduðu tvívegis um framhaldið í gærkvöldi og sagði Ragnheiður El- ín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, eftir síðari fundinn á ellefta tímanum í gær- kvöldi að málin myndu að líkindum skýrast eftir næsta fund þing- flokksformanna klukkan tíu árdeg- is í dag. Forystumenn flokkanna hafi að loknum síðari fundinum rætt við bakland sitt um næstu skref. Ragnheiður Elín telur fullvíst að hlé verði gert á þingstörfum fyrir helgi. „Ég tel hins vegar allar lík- ur á sumarþingi, hvort sem það verður í júlí eða ágúst.“ Gunnar Bragi Sveinsson, for- maður þingflokks Framsóknar, taldi „allt benda til þess“ að gert yrði hlé á þingstörfum á morgun og að útlit væri fyrir sumarþing. Óvíst væri með þing í júlí. Forseti þrengir að þinginu  Ef þing starfar í júlí þyrfti því að ljúka innan þriggja vikna vegna innsetningar forseta  Útlit fyrir þinghlé á morgun Á góðviðrisdögum er vinsælt að sigla á sjónum við Nauthólsvík á kajökum og seglbátum. Þar er meðal annars haldið úti vinsælum siglinganámskeiðum fyrir börn og ungmenni. Góðir siglingamenn kippa sér ekki upp við það þótt báturinn hallist helst til mikið því þeir kunna þá list að koma honum aftur á réttan kjöl. Sú list er einmitt kennd á siglinganámskeiðum. Vagg og velta í Nauthólsvíkinni Morgunblaðið/Ómar  Íslenska ríkið fékk sanngjarnt verð við einka- væðingu bank- anna á árunum 1998-2003 ef horft er til verðs á bönkum annars staðar á Norður- löndum og Evrópu á sama tíma. Þetta má lesa úr ársskýrslu Banka- sýslu ríkisins sem kemur út í dag. Mælikvarðinn sem Bankasýslan horfir til er verð viðskiptabanka með tilliti til eigin fjár. »Viðskipti Fengu sanngjarnt verð fyrir bankana –– Meira fyrir lesendur FYLGIR MEÐ MORGUNBLAÐINU Í DAG Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is „Nú förum við í það að dusta rykið af samn- ingum og gögnum sem þurfti að leggja til hliðar. Við förum á fulla ferð að vinna í því og undirbúa að koma málinu í gang aftur,“ segir Pétur Þór Jón- asson, stjórnar- formaður Greiðrar leiðar og fulltrúi fé- lagsins í stjórn Vaðla- heiðarganga hf. Frumvarp um fjár- mögnun ganganna var samþykkt með öruggum meirihluta eftir aðra umræðu á Alþingi í gær og var það afgreitt úr fjár- laganefnd í gær- kvöldi. Búist er við að málið verði á dagskrá þingsins í dag og miðað við stuðninginn við málið í gær er hugsanlegt að frumvarpið verði samþykkt í dag. Frestur sem samið var um við verktaka sem skiluðu tilboðum í verkið rennur út á miðnætti en Pétur segir að viðræður hafi verið í gangi um aukafrest ef málið sé í þann veginn að fara í gegn. Nú þurfi að ganga frá samningum við þá sem áttu lægstu tilboðin enda var því ekki lokið þegar málinu var slegið á frest. Íslenskir aðalverktakar áttu lægsta tilboðið í verkið. Pétur segist eiga von á að menn geti hafið undirbúningsframkvæmdir fljótlega þótt ekki sé hægt að fullyrða það með vissu. „Það er alveg ljóst að við viljum ekki tapa meiri tíma en þegar er orðið,“ segir hann. MMeirihluti fyrir Vaðlaheiðargöngum »2 Rykið dustað af göngum  Vaðlaheiðargöng jafnvel samþykkt í dag Kostnaður » Frumvarpið felur í sér að ríkið lánar Vaðlaheið- argöngum hf. allt að 8,7 millj- arða. » Vegagerðin á 51% í Vaðla- heiðargöngum hf., Greið leið á 49% hlut. FINNUR.IS Framleiðendur matvæla á Íslandi í sókn Söngvarinn þolir ekki marglyttur í heitum sjó Að sögn Helga Bernódussonar, skrifstofustjóra Alþingis, verður reynt að láta starfsfólk þingsins fara í sumarfrí eftir því sem hægt er, starfi þingið fram á sumarið. Starfsfólkið vinni sérhæfð störf og því sé ekki hlaupið að því að fylla skörð þess. Helgi telur aðspurður að kostn- aður samfara aukadögum á þingi verði ekki mikill. Reyna að gefa sumarfrí MANNAHALD Á ÞINGI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.