Morgunblaðið - 14.06.2012, Blaðsíða 10
Ljósmyndir/Oddgeir Karlsson
Svanhildur Eiríksdóttir
svei@simnet.is
U
m miðjan maí tóku 34
erlendir listamenn að
streyma til landsins til
að taka þátt í Fersk-
um vindum, sem
stendur nú sem hæst. Tíu þeirra eru
íslenskir. Nokkrir þessara 44 lista-
manna tóku þátt í listaveislunni
veturinn 2010-2011 þar sem þemað
var norðurljósin. Nú eru það hins
vegar hinar björtu nætur sem eru til
viðfangs, enda Garðurinn m.a. þekkt-
ur fyrir fallegt sólarlag við Garð-
skaga.
Markmið Ferskra vinda er að
auðga andann, bæði þeirra lista-
manna sem koma að verkefninu en
ekki síður þeirra sem njóta. „Þátt-
taka í verkefni eins og þessu er mjög
nærandi fyrir listamenn og hér fæð-
ast margar hugmyndir. Þessi sam-
vinna er ekki síður mikilvæg fyrir
tengslanet listafólksins sem tekur
þátt hverju sinni og það lærir hvað af
öðru. Þetta verkefni á eftir að skilja
eftir öðruvísi vinda í hug fólks og
hjarta,“ sagði Mireya Samper, verk-
efnisstjóri og einn þátttakenda í
Ferskum vindum.
Ég og við í samfélaginu
Íbúar í Garði og nærsveitum
hafa undanfarna daga getað notið
listviðburða sem bornir hafa verið
fram í listaveislunni en henni lýkur
með hátíð sem opnuð verður form-
lega á laugardag. Þá verður afrakst-
urinn sýndur víðsvegar um sveitarfé-
lagið, en mörg listaverkanna eru
varanleg og eru því gefin af lista-
mönnunum til samfélagsins. Eitt
þessara verkefna er listaverkatjald-
stæði sem garðarkitektinn Stanislas
Bohic hannaði og ellefu listamenn
setja nú svip sinn á með listaverkum
úr steinum, bæði skúlptúrum og lág-
myndum, en einnig teikningum á
steina. Öll verkin eru sprottin af upp-
lifun listafólksins af landi og þjóð og
úr efnivið sem finna má í Garði eða
næsta nágrenni.
Ástarsaga á tjald-
stæði bjartra nátta
Um Garðinn blása ekki bara ferskir vindar heldur sækja 44 listamenn þangað
innblástur til listsköpunar sem bæjarfélagið verður auðugra af. Alþjóðlega lista-
veislan Ferskir vindar í Garði er nú haldin í annað sinn. Þemað er bjartar nætur.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2012
Indland er sannarlega skemmtilegt
land til að heimsækja og margar leið-
ir til að njóta þess. Ein leið er að fara
inn á heimasíðuna indoroutes.com,
en hjá því fyrirtæki er ýmist hægt að
láta skipuleggja fyrir sig ferðir á Ind-
landi eða kaupa svokallaðar pakka-
ferðir. Fyritækið er staðsett í héraði
sem heitir Rajasthan og er á Norður-
Indlandi og því skal engan undra að
það einbeitir sér að ferðum á því
svæði. Til dæmis er hægt að kaupa
ferð sem kallast Gullni þríhyrningur-
inn, en þá er farið frá Delhi til Agra
þar sem ástarhöllina Taj Mahal er að
finna, og svo þaðan til Jaipur og síð-
an aftur til Delhi. Einnig er hægt að
kaupa hjá þessu fyrirtæki safariferðir
um Rajasthan-hérað, heimsækja tígr-
isdýr og ferðast á úlfaldabaki. Eða
fara í nokkurra daga siglingu á báti.
Nú eða fara í sérstaka jógaferð til að
íhuga og stunda aðra andlega iðkun.
Vefsíðan www.indoroutes.com
AP
Indland Er forvitnilegt heim að sækja og ótalmargt er þar hægt að gera.
Fyrir þá sem vilja til Indlands
Styrktarfélagið Göngum saman, sem styrkir
grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini, fagnar 5
ára afmæli á þessu ári. Af því tilefni ætlar Guðný
Aradóttir, einn stofnenda félagsins, einkaþjálfari
og stafgönguleiðbeinandi, að vaka eina sumar-
nótt og ganga frá Þingvöllum til Reykjavíkur. Hún
safnar áheitum og býður jafnframt gestum að
ganga með sér gegn því að þeir greiði 100 krónur
fyrir hvern kílómetra sem lagður verður að baki.
Þátttakendur hittast við World Class Laugum, á
morgun, föstudag, kl. 19. Þaðan verður ekið að
Vinaskógi þar sem gangan hefst kl. 20.
Endilega...
...gangið með
Guðnýju
Morgunblaðið/Golli
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Fjarðarkaup
Gildir 14. - 16. júní verð nú áður mælie. verð
Svínakótilettur úr kjötborði.......... 1.598 1.598 1.198 kr. kg
Nautafille úr kjötborði ................ 2.898 3.598 2.898 kr. kg
Hamborgarar, 4x80 g m/brauði .. 620 720 620 kr. pk.
KF lúxus lambalæri .................... 1.398 1.498 1.398 kr. kg
Fallalambs lambalærisn. þurrkr. .. 2.598 3.259 2.598 kr. kg
Fjallalambs skyndigrill þurrkrydd . 2.455 3.069 2.455 kr. kg
SS grill læri kryddlegið ............... 1.832 2.291 1.832 kr. kg
Hagkaup
Gildir 14. - 18. júní verð nú áður mælie. verð
SS kryddlegnar lambatvírifjur ...... 2.249 2.998 2.249 kr. kg
Íslandsnaut kryddl. kótilettur....... 2.249 2.999 2.249 kr. kg
Nautaat Entrecote ..................... 2.797 3.995 2.797 kr. kg
Íslandsnaut piparsteik................ 2.491 3.559 2.491 kr. kg
Holta kjúklingabringur mariner. ... 1.998 2.854 1.998 kr. kg
Holta buffalóvængir, 800 g ......... 449 697 449 kr. pk.
Daloon vorrúllur, 3 teg., 600 g .... 559 699 559 kr. pk.
Kjarval
Gildir 14. - 17. júní verð nú áður mælie. verð
SS grískar grísahnakkasneiðar .... 1.998 2.498 1.998 kr. kg
SS CajP’s lærissneiðar ............... 2.718 3.398 2.718 kr. kg
Eðal bleikjubitar, 800 g .............. 1.679 1.868 1.679 kr. ltr
Fersk jarðarber, 250 g................ 299 479 299 kr. pk.
Veronabrauð nýbakað ................ 399 479 399 kr. kg
Maryland kex, 4 teg. .................. 149 169 149 kr. stk.
Emmess hnetu- og daimtoppar... 659 1098 659 kr. pk.
Krónan
Gildir 14. - 17. júní verð nú áður mælie. verð
Lambafille m/fitur. krydd/
ókrydd. .....................................
3.498 3.898 3.498 kr. kg
SS amerískar pylsur m/epl/kanil 299 359 299 kr. pk.
SS mexíkó grísakótilettur ............ 1.868 2.198 1.868 kr. kg
Eðalf. laxabitar hvítlauks ............ 1.756 2.198 1.756 kr. kg
Náttúru bökunarkartöflur ............ 296 329 296 kr. kg
Ísl. konfekt tómatar, 250 g ......... 270 338 270 kr. pk.
Ísl. kirsuberjatómatar, 250 g....... 270 338 270 kr. pk.
Nóatún
Gildir 14. - 17. júní verð nú áður mælie. verð
Lamba Rank m/rifjum úr kjötb. ... 3.698 4.198 3.698 kr. kg
Lambakótilettur úr kjötborði........ 1.898 2.298 1.898 kr. kg
Grísakótilettur úr kjötborði .......... 1.198 1.498 1.198 kr. kg
Ungnautahamborgari, 90 g ........ 169 185 169 kr. stk.
ÍM kjúklingabringur .................... 2.338 2.598 2.338 kr. kg
Blálöngusteik m/sítr.smjöri ......... 1.598 1.798 1.598 kr. kg
Stjörnu hrásalat, 350 g .............. 229 289 229 kr. pk.
Þín Verslun
Gildir 14. - 17. júní verð nú áður mælie. verð
Svínalundir úr kjötborði .............. 1.998 2.698 1.998 kr. kg
Lambainnralærisvöðvi úr kjötb. ... 2.998 3.598 2.998 kr. kg
Ísfugls hvítlauksvængir ............... 379 598 379 kr. kg
Coke light, 2 ltr .......................... 239 298 120 kr. ltr
Egils Mix, 2 ltr............................ 249 298 125 kr. kg
Chicago Town pitsa, 340 g.......... 589 795 1.733 kr. kg
Ballerina kremkex, 190 g............ 229 275 1.206 kr. kg
Helgartilboðin
Morgunblaðið/Golli
Ég og við Manou vill skilja eftir hluta af sjálfum sér í samfélaginu í Garði.
Völundarhús Saulius Valius Listamennirnir sem eiga listaverk á svæðinu.
Heilsueldhúsið
heilsurettir.is