Morgunblaðið - 14.06.2012, Blaðsíða 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2012
Ekki þarf að fjölyrða umhæfileika bandaríska tón-listarmannsins, plötu-framleiðandans og of-
urtöffarans Jack White. Sá hefur
sýnt og sannað um árabil hvers hann
er megnugur þegar að þéttu og gríp-
andi rokki kemur, m.a. í tvíeykinu
The White Stripes. White er magn-
aður gítarleikari, situr í 70. sæti tíma-
ritsins Rolling Stone yfir bestu gít-
arleikara allra tíma og er vel að þeim
heiðri kominn. Piltur hefur starfað
með mörgum heimskunnum tónlist-
armanninum og má
þar nefna Jeff Beck,
Aliciu Keys, Bob
Dylan og Lorettu
Lynn. White Stripes
stofnaði hann árið
1997 með þáverandi eiginkonu sinni
Meg White en það er fyrst núna, árið
2012, sem White sendir frá sér sóló-
plötu, Blunderbuss. Og eins og aðdá-
endur White, undirritaður þeirra á
meðal, gátu séð fyrir bregst honum
ekki bogalistin á henni frekar en á
öðrum plötum sem hann hefur komið
að á ferlinum.
Blunderbuss hefur að geyma
þrettán lög og er skemmtilega fjöl-
breytt. Á henni má finna lög sem
minna mjög á smelli White Stripes,
hrátt rokk og kántrískotin lög á borð
við titillag plötunnar. Það lag sem
hvað mest hefur hljómað á öldum
ljósvakans er fyrsta smáskífan af
plötunni,
„Love Int-
erruption“,
einfaldur og
grípandi dúett
Whites og
söngkonunnar
Jon Dolan. Af
öðrum ilmandi
góðum lögum
má svo nefna
ábreiðu af lagi
Little Willie
John, „I’m Shakin“, lag sem ætti að fá
hvaða fýlupoka sem er til að skaka
skrokk. Ef eitthvað skal að plötunni
finna þá er það helst að nokkur lag-
anna eru heldur tilþrifalitlar laga-
smíðar og hefðu mátt missa sín. Má
þar nefna „On and On“, þunglynd-
islegt leiðindalag. Á heildina litið er
Blunderbuss þó hinn eigulegasti
gripur.
Hvítur á leik
Geisladiskur
Jack White - Blunderbuss bbbbn
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
TÓNLIST
Jack White
Sigyn Jónsdóttir
sigyn@mbl.is
„Við héldum fyrst að vinirnir væru
bara að reyna að vera jákvæðir
þegar þeir fengu að heyra eitt og
eitt lag en það virðist sem allir séu
að taka vel í þetta sama hvort sem
það eru metalstrákar eða eldri hús-
mæður,“ segir Bassi Ólafsson,
trommuleikari og upptökustjóri
hljómsveitarinnar Kiriyama Fa-
mily sem gaf nýverið út samnefnda
breiðskífu. Bassi er ánægður með
þær viðtökur sem platan hefur
fengið en partískotin tónlist þeirra,
sem minnir um margt á stuðtónlist
níunda áratugarins, nær greinilega
til breiðari hóps en sveitin gerði
sér grein fyrir í upphafi.
„Það er kannski svona ár síðan
við ákváðum að keyra plötu í gang
og hætta þessu rugli,“ segir Bassi
en það er ekki einungis tónlistin á
plötunni sem hefur vakið mikla
lukku heldur er myndin sem prýðir
plötuumslagið einstaklega
skemmtileg. Þar má sjá kviknakta
hljómsveitarmeðlimina haldandi á
löngu skilti sem hylur það allra
heilagasta.
„Við vildum hafa umslagið eins
og hjá Bítlunum í gamla daga þar
sem allir í hljómsveitinni sjást, öll
andlitin þekkjast,“ útskýrir Bassi
sem fékk í kjölfarið þá hugmynd að
hljómsveitin yrði nakin á myndinni,
bara í gríni. Mikilvægt væri þó að
myndin væri smekkleg og myndi
ekki sjokkera fólk. „Ég smíðaði
skilti fyrir draslið okkar og setti
bleika flúorlýsingu bak við,“ bætir
hann við og segir stemninguna
hafa verið mjög fyndna meðan á
myndatökunni stóð. „Það var svo-
lítið furðulegt að vera allir saman á
sprellanum en við erum svo góðir
vinir að það var bara gaman.“
Leynigestur og ljósasýning
Í kvöld heldur Kiriyama-
fjölskyldan útgáfutónleika í Þjóð-
leikhúskjallaranum sem hefjast kl.
22. „Við spilum ekki naktir á tón-
leikum svo gestir þurfa ekki að
hafa áhyggjur af því,“ fullyrðir
Bassi og lofar miklu fjöri á tónleik-
unum. „Við fáum leynigest og
verðum með svakalega ljósasýn-
ingu, það verður ekkert til spar-
að.“
Nekt Meðlimir Kiriyama Family kviknaktir á umslagi breiðskífu sinnar.
„Allir saman
á sprellanum“
Útgáfutónleikar Kiriyama Family
kiriyamafamily.com
SÍÐUMÚLI 31 | 108 REYKJAVÍK | SÍMI 414 8400 / 414 8409 | HEXA.IS | HEXA@HEXA.IS
SÉRHÆFT FYRIRTÆKI
Í STARFSMANNAFATNAÐI
ERUM FLUTT
AÐ SÍÐUMÚLA 31.
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
MADAGASCAR 3 3D Sýnd kl. 4 - 6
MADAGASCAR 3 2D Sýnd kl. 4
PROMETHEUS 3D Sýnd kl. 7 - 10
SNOWWHITEANDTHEHUNTSMAN Sýnd kl. 7 - 10
THE FIVE YEAR ENGAGEMENT Sýnd kl. 4 - 8 - 10:25
LEITIN AÐ UPPRUNA OKKAR GÆTI
LEITT TIL ENDALOKANNA
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
HHHH
“SCOTT TEKST AÐ SKAPA
RAFMAGNAÐA STEMNINGU Í
PROMETHEUS”
-V.J.V., SVARTHOFDI.IS
HHHH
-ROGER EBERT
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
PIRANHA 3DD KL. 8 - 10 16
PROMETHEUS KL. 5.45 - 8 - 10.20 16
SNOW WHITE AND THE... KL. 5.45 12
MADAGASCAR 3D ÍSL.TAL KL. 3.40 - 5.50 L
MADAGASCAR 2D ÍSL.TAL KL. 3.40 L
PRIANHA 3DD ÓTEXTUÐ KL. 8 - 10 16
PROMETHEUS 3D KL. 5.20 - 8 - 10.30 16
PROMETHEUS 3D LÚXUS KL. 5.20 - 8 - 10.30 16
PROMETHEUS 2D KL. 8 - 10.30 16
MIB 3 3D KL. 5.30 - 8 - 10.30 10
ÞEIR ERU MÆTTIR AFTUR!
TVÖFÖLD SPENNA, TVÖFÖLD HRÆÐSLA
OG TVÖFALT MEIRA KJÖT Í 3-DD!
-V.J.V., SVARTHOFDI.IS- ROGER EBERT
COMPANY BÍÓVIÐBURÐUR KL. 8 L
PIRANHA 3DD KL. 10.30 16
PROMETHEUS 3D KL. 5.20 - 10.30 16
MOONRISE KINGDOM KL. 5.50 - 8 - 10.10 L
MIB 3 3D KL. 5.30 - 10.40 10
GRIMMD: SÖGUR AF EINELTI KL. 5.45 10
AÐEINS EIN SÝNING