Morgunblaðið - 14.06.2012, Blaðsíða 30
30 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2012
H
allgrímur fæddist í
Västerås í Svíþjóð,
átti þar heima í eitt ár
og síðan í þrjú ár í
Uppsölum, en ólst síð-
an upp í Vesturbænum í Reykjavík.
Hallgrímur var í Melaskóla og
Hagaskóla, stundaði nám við
Menntaskólann í Reykjavík og lauk
þaðan stúdentsprófi 2002 og stundar
nú nám í hagfræði við Háskóla
Íslands.
Hóf sellónámið sex ára
Hallgrímur hóf nám við Suzuki-
skólann 1988 og stundaði þar nám á
selló til 1997, var síðan áfram í einka-
tímum hjá Noru Sue Kornblueh selló-
leikara og kennara á árunum 1997-
2001. Hann hóf þá nám við Tónlistar-
skólann í Reykjavík og stundaði síðan
tónlistarnám við Listaháskóla Ís-
lands í tvo vetur.
Hallgrímur var í unlingavinnunni
og vann síðan hjá Reykjavíkurborg,
vann við mötuneyti Landspítala
Háskólasjúkrahúss á sumrin og var
síðan kaffibarþjónn á Kaffitári á ár-
unum 2007-2008 og af og til með námi
til 2010.
Hallgrímur var einn af stofnendum
hljómsveitarinnar Malneirophrenia
árið 2000 og hefur leikið með hljóm-
sveitinni fram til dagsins í dag, ásamt
Gunnari Theodór Eggertssyni rithöf-
undi sem spilar á píanó og Halli Erni
Árnasyni sem leikur á bassa en upp-
haflega voru fimm meðlimir í hljóm-
sveitinni.
Malneirophrenia hefur m.a. verið
Hallgrímur J. Jensson sellóleikari 30 ára
Í Moskvu Hallgrímur, lengst til hægri, með Árstíðum í Rússlandi þar sem hljómsveitin vakti mikla athygli.
Úr klassískum selló-
leik í „kammerpönk“
Systkinin Hallgrímur og Laufey, systir hans, en hún lærir á fiðlu í Utrecht.
Linda Rún Pétursdóttir, verður 24 ára á morgun og ætlar aðskella sér til Kaupmannahafnar í tilefni dagsins. „Ætli égeigi ekki eftir að kaupa mér mikið af fötum. Svo er aldrei að
vita nema ég fái mér einn ískaldan bjór,“ segir Linda, en hún tók þá
skyndiákvörðun að panta tvo miða fyrir sig og kærastann til Kaup-
mannahafnar. Parið ætlar sér að dvelja þar í 4 daga og á örugglega
ekki eftir að sjá eftir því. „Þetta var mjög fyndið, ég sagði kærast-
anum ekkert frá þessu og sendi honum svo bara sms og tilkynnti
honum að hann væri á leiðinni til útlanda,“ segir Linda hlæjandi, en
kærastinn var mjög ánægður með þetta.
Linda vinnur við hestatamningar og reiðkennslu í Borgarfirði og
útskrifaðist seinasta sumar frá Háskólanum á Hólum. „Ég hef mjög
gaman af starfi mínu og elska þetta út í gegn,“ segir Linda, en hest-
ar eru hennar helsta áhugamál.
Linda hefur ekki bara áhuga á hestum, hún hefur einnig mikinn
áhuga á söng og leiklist. „Ég hef lokið grunnstigi í Söngskóla
Reykjavíkur og hef verið nemandi á nokkrum leiklistarnám-
skeiðum,“ segir Linda, en hún hefur einnig tekið þátt í nokkrum
leikritum. „Það gæti vel verið að það yrði að raunveruleika einn
daginn,“ segir Linda aðspurð, en sá draumur blundar í henni að fara
í leiklistarnám á náinni framtíð. pfe@mbl.is
Linda Rún Pétursdóttir verður 24 ára í dag
Linda ætlar að skella sér til Kaupmannahafnar í tilefni dagsins.
Kom kærastanum
rækilega á óvart
Hrafnhildur Ming Þórunnardóttir, Sveina Björt Kristbjargardóttir, Arna Sólrún
Heimisdóttir, Helena Ýr Stefánsdóttir, Kaja Bo Trotter og Hassa Eiyas Labyad
héldu tombólu við Garðatorg í Garðabæ. Þau söfnuðu 17.602 kr. sem þau gáfu
Rauða krossi Íslands.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Reykjavík Daníel Kári fæddist 30.
ágúst. Hann vó 3.265 g og var 51 cm
langur. Foreldrar hans eru Sigurbjörg
Magnúsdóttir og Stefán Orri Stef-
ánsson.
Reykjavík Fríða María fæddist 18.
ágúst kl. 16.28. Hún vó 3.620 g og var
51,5 cm löng. Foreldrar hennar eru
Hrafnhildur Sverrisdóttir og Franc-
isco Da Silva Chipa.
Nýir borgarar
ARMANI
D&G
STENSTRÖMS
BALDESSARINI
SCHUMACHER
ALEXANDER WANG
CAMBIO
ROCCO P
PEDRO GARCIA
PAOLO DA PONTE
VOR/
SUMAR
2012
SÆ
VAR KARL
HVERFISGÖTU 6 •
S.
55
1 3
47
0